Reykjavík


Reykjavík - 09.03.2013, Blaðsíða 10

Reykjavík - 09.03.2013, Blaðsíða 10
10 9. mars 2013 Hundurinn Píla vinnur fyrir matnum sínum: Þefar upp meindýr og gefur merki um dvalarstað þeirra Hundurinn Píla er enginn venjulegur hundur. Milli þess sem hún leikur sér og hvílir lúin bein að hundasið þá fer hún í vinnuna. Vinnan hennar snýst um að finna meindýr, mýs og rottur í húsum og hefur Píla einstakt nef fyrir þeim hvimleiðu gestum. Píla er tveggja ára blendingstík af labrador og schäferkyni. Eigandi hennar, Sigurður Ingi Sveinbjörnsson, meindýraeyðir, ætlaði að þjálfa hana til að finna geitungabú. Fljótlega kom í ljós að Pílu var afar illa við geitungana og þeim enn verra við hana svo það starf var fljótlega gefið uppá bátinn. Hæfileikar Pílu komu í ljós eitt sinn þegar hún fékk að fylgja eiganda sínum á vettvang þar sem talið er að mýs hefðu hreiðrað um sig milli þilja en óvíst nákvæmlega hvar. Hún þefaði bæli músanna uppi með mikilli ná- kvæmni svo ekki þurfti að rífa niður nema afar takmarkaðan hluta af vegg til að ná meindýrunum. Íbúar í við- komandi húsi urðu afar ánægðir með að sleppa svo billega en oft þarf að rífa niður heilu veggina til að útrýma vá- gestinum. Í framhaldinu var Píla þjálfuð til að bregðast við þeirri skipun að „finna mús“. Þegar Píla kemur í hús og fer að leita gengur hún afar skipulega til verks og leitar kerfisbundið að músinni. Þegar hún hefur fundið staðinn gefur hún merki með því að klóra á staðinn með ákafa og þá er hægt að hefjast handa. Eigandi Pílu segir hana hafa alltaf rétt fyrir sér. Margir séu tortryggnir í upphafi en það rjátlist fljótt af mönnum þegar árangurinn kemur í ljós. Hann segir að mjög mikið sé af mús þennan veturinn. Sjálfsagt hafi það eitthvað að segja að síðasta sumar hafi verið afar gott og hagstætt fyrir mýs sem skýri það að stofninn fá því í sumar hafi verið óvenju stór og mildur vetur sé kjöraðstæður fyrir þær. Píla fær alltaf harðfisk í verðlaun að loknu góðu dagsverki sem er það allra besta sem hún fær. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina Fimmta geðorðið nær yfir lík-amlega þáttinn í heilsuflétt-unni en hinir þættirnir eru félagslegi þátturinn og svo andlegi þátturinn eða geðheilsan. Það hefur bein áhrif á andlega líðan að rækta hinn líkamlega þátt heilsunnar og því er fimmta geðorðið hvatning um reglulega hreyfingu. Allir vita hvað líkamsrækt er og þekkja mikilvægi þess að styrkja líkamann. Geðrækt er þýðing á því sem á ensku er nefnt „mental health promotion“ og er þá átt við allt sem gert er til að hlúa að geðheilsunni. En geðrækt er nýlegt hugtak og því er ágætt að útskýra það með tilvísun í líkamsrækt. Flestir kannast við þá vellíðan sem fylgir því að taka á líkamlega. Í kjölfar slíkra átaka flæða hormón um líkamann sem veita okkur eftir- sóknaverða og heilbrigða vellíðan. Þegar fólk er spurt af hverju það stundi reglulega hreyfingu er al- gengasta svarið: „Vegna þess að mér líður vel af því.“ Reglulegri hreyfingu fylgja jákvæðar tilfinn- ingar, bætt líðan, minni streita, sterkari sjálfsmynd og hún getur komið í veg fyrir geðheilsuvanda- mál. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að regluleg hreyfing dregur úr þunglyndi og kvíða og bætir and- lega líðan en hreyfingarleysi eykur líkur á þunglyndi. Regluleg hreyfing bætir líka líðan þeirra sem glíma við langvarandi geðröskun. Staðreyndin er sú að regluleg hreyfing veitir ekki einungis vellíðan rétt eftir að henni er lokið heldur stuðlar hún að betri líðan til lengri tíma litið. Sýnt hefur verið fram á samband milli þess hversu mikið fólk hreyfir sig og hve vel því líður á efri árum. Þeir sem hreyfa sig minna hafa meiri tilhneigingu til að verða þunglyndir á efri árum heldur en þeir sem hreyfa sig reglulega. Og þeir sem hreyfa sig reglulega alla ævi eru hamingjusamari í ellinni. Fólk nefnir margar mismunandi ástæður fyrir því að hreyfa sig ekki reglulega – fæstar þeirra eru góðar og gildar. Regluleg hreyfing þarf ekki að vera mikil eða taka langan tíma en hver og einn þarf að finna hreyfingu við hæfi til þess að geta notið hennar. Sumir tengja reglulega hreyfingu við félagsskap og nota tækifærið til að hitta skemmtilega vini um leið og þeir hreyfa sig. Með því er hægt að slá þrjár flugur í einu höggi og sinna öllum þáttum heilsunnar í einu: þeim andlega, líkamlega og félagslega. Möguleikarnir til að hreyfa sig reglulega eru margir. Sumum hentar vel að fara í líkamsræktarstöðvar, öðrum að fara út að ganga, í sund, á hestbak, í jóga eða hvað sem er. Það sem verður fyrir valinu er aukaat- riði. Aðalatriðið er að finna hent- uga hreyfingu og byrja sem fyrst því regluleg hreyfing virðist vera nauðsynleg fyrir geðheilsuna frá vöggu til grafar. Kjarni með þessu geðorði: • Regluleg hreyfing er nauðsynleg fyrir geðheilsuna frá vöggu til grafar. • Hreyfing dregur úr þunglyndi og kvíða og bætir andlega líðan. • Regluleg hreyfing stuðlar að hamingjusamri elli. geðoRð 5 af 10 Höfundur er Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sálfræðingur og höfundur bókar um geðorðin 10 Íslensk myndlist fyrir heimili og fyrirtæki Til leigu og sölu myndlist eftir íslenska listamenn. Leigan er 1.000 – 10.000 kr. á mánuði. Listaverkin má leigja þar til þau eru að fullu greidd eða ljúka greiðslu fyrr og dregst þá frá áður greidd leiga. Listaverkin eru til sýnis á staðnum og einnig eru upplýsingar og myndir á www.artotek.is Artótek Tryggvagötu 15, sími 411 6100 artotek@borgarbokasafn.is www.artotek.is Artótek í Borgarbókasafni Daði Guðbjörnsson: Í grænum fílingBjörg Eiríksdóttir: Munnur Soffía Sæmundsdóttir: Inn dalinn Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is Ve rs lu ni n B el la d on na á F ac eb oo k Kjólar, buxur, bolir og leggings Stærðir 40-56 AðhAldsfAtnAður í miKlu úrvAli Leiðrétting Vegna mistaka birtist í síðsta tölublaði Reykjavíkur-viku- blaðs kjarninn sem átti að birtast með greininni í dag , og gerir. Í síðustu viku var hins vegar fjallað um það að læra af mistökum og á eftirfarandi kjarni við það. Beðist er velvirðingar á mistökunum. • Enginn er fullkominn og öllum verða einhvern tíma á mistök. • Oft er það mikilvægt skref í átt að velgengni að læra af eigin mistökum. • Eitt af því sem greinir þá ham- ingjusömu frá þeim óhamingju- sömu er viðhorf þeirra til eigin mistaka og mótlætis í lífinu. v i k u b l a ð Auglýsingasíminn er 578 1190 Netfang: auglysingar@fotspor.is.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.