Reykjavík - 01.06.2013, Síða 2
2 1. júní 2013
Gallupkönnun sýnir ánægju íbúa með sumarlokun Laugavegar:
Vaxandi ánægja með sumar-
götur, 67,9% hlynnt lokunum
Samkvæmt könnun meðal borg-arbúa þá eru íbúar eru almennt mjög ánægðir með það fyrir-
komulag að hluta Laugavegs skuli breytt
í sumargötu fyrir gangandi og hjólandi
vegfarendur. Stuðningur íbúa í þeim
hverfum er næst liggja miðborginni
er mjög afgerandi. Þetta kemur fram
í nýrri könnun sem Capacent Gallup
hefur gert. Hugmyndin að sumargötum
kemur upphaflega af samráðsvefnum
Betri Reykjavík.
Fleiri borgarbúar eru hlynntari því
að breyta hluta Laugavegs í göngugötu
yfir sumartímann en nokkru sinni fyrr.
Niðurstöður viðhorfskönnunar sem
Capacent Gallup gerði fyrir umhverfis-
og samgöngusvið Reykjavíkurborgar
sýna að 67,9% aðspurðra eru hlynntir
því að hafa göngugötu á hluta Lauga-
vegar.
Sambærileg könnun var gerð í mars
- apríl 2012 og sýndu niðurstöður
hennar að 63,2% aðspurðra voru
hlynntir slíkum breytingum. Í könnun-
inni nú eru 29,8% svarenda alfarið
hlynntir göngugötu á hluta Laugavegs,
27,7% mjög hlynntir og 16,3% frekar
hlynntir. Aðeins lítið brot aðspurðra
er alfarið andvígt breytingunum, eða
5,7%.
Almenn ánægja er með sum-
argöturnar hjá svarendum í öllum
hverfum borgarinnar. Íbúar þeirra
hverfa sem næst liggja miðborginni
eru þó algjörlega afgerandi í viðhorfi
sínu til sumargötukaflans á Laugavegi.
41% íbúa í Miðborg og Vesturbæ eru
alfarið hlynntir og 37% íbúa í Hlíðum
og Laugardal. Meirihluti íbúa í öðrum
hverfum borgarinnar eru þó einnig
mjög hlynntir því að breyta hluta
Laugavegs í sumargötu.
Úrtak könnunarinnar var 1150
manns á Reykjavíkursvæðinu, 18 ára
og eldri. Fjöldi svarenda var 695 og
svarhlutfall því 60,4%.Sumargötur í
Reykjavík verða opnaðar í dag, laugar-
daginn 1. júní.
Á morgun, sunnudag fagna landsmenn Sjómannadeginum og nú eru 75
ár liðin frá því hann var fyrst haldinn hátíðlegur. Í tímans rás hefur sjó-
mennskunni verið sungið lof og dýrð og heimur sjómannsins sveipaður
rósrauðum bjarma í dægurlagatextum sem dásama frelsið og lífsstílinn sem
sjómennskunni fylgja eða réttara sagt fylgdu. Mikill árangur hefur náðst í
því að fækka slysum á sjó og er það ekki síst að þakka betri búnaði og tækni
en ekki síst Slysavarnaskóla sjómanna sem starfræktur er af Landbjörgu.
Ekki er lengur heimilt að starfa á sjó, samkvæmt lögum, lengur en 180 daga
á ári nema viðkomandi sæki slysavarnanámskeið sjómanna. Þá þekkingu
þarf að endurnýja á fimm ára fresti og er það vel. Árin 2011 og 2008 voru
engin banaslys á íslenskum skipum og er það sennilega einu árin frá
landnámi sem ekkert slíkt slys er skráð í annála. Ástæður þessara jákvæðu
breytinga eru margskonar, skipakostur hefur batnað, öryggiskröfur eru allt
aðrar en fyrr og þekking sjómannanna sjálfra er mun meiri með tilkomu
laga frá 2010 sem kveða á um að allir sjómenn sæki slysavarnanámskeið.
Á árum áður áttu margir unglingar þess kost að vinna sér inn vænar
upphæðir á sumrin og oft voru vel launuðu störfin tengd fiskinum. Sumir
voru svo ljónheppnir að komast á sjó, það var möguleiki ef maður þekkti
mann sem þekkti annan mann. Aðrir fengu vinnu í frystihúsi þar sem
unnið var meðan fiskur var í húsinu og gátu vaktirnar orðið ansi langar
og strembnar. Með góðum bónus var hægt að vinna sér inn fyrir uppihaldi
næsta skólaár og gott betur. Í dag er ekki algengt að ungmenni vinni í
fiski, að minnsta kosti ekki á höfuðborgarsvæðinu. Þeirra missir er mikill.
Lifið heil,
Hólmfríður Þórisdóttir
Leiðari
Jón var kræfur
karl og hraustur...
Reykjavík vikublað
21. Tbl. 4. áRganguR 2013
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang:
amundi@fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is.
auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578
1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjórar: Hólmfríður Þórisdóttir, sími 699 0450, netfang:
holmfridur@vedurehf.is, Sigurður Þ Ragnarsson netfang: sigurdur@vedurehf.is, Ljósmyndari: Þórir Snær
Sigurðarson, sími 615 2049. Blaðamenn: Linda Hrönn Þórisdóttir, Þórir Snær Sigurðarson. Veffang:
fotspor.is, Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 47.500 eintök. dreifing:
Fríblaðinu er dreiFt í 47.500 e intökum
í allar íbúðir í reykjavík
Tillögur um
breytingar á
umferð við
Grafarholt
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í um-
hverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur
hafa lagt fram tillögu um breytingar á
umferðartengingum við Grafarholt.
Í tillögunni er lagt til að í samstarfi
við Vegagerð ríkisins og Strætó bs.
verði kannaðir tiltækir kostir við að
bæta umferðartengingar við Graf-
arholt, íbúum hverfisins til hagsbóta
og með það að markmiði að fjölga
möguleikum Strætó bs. á að bæta
þjónustu við hverfið.
Þá verði athugaðir kostir þess að
leggja afrein af Suðurlandsvegi norð-
urstefnu inn á Krókháls til austurs
í átt að Grafarholti og/eða afrein af
Vesturlandsvegi (austurstefnu) inn í
hverfið að vestanverðu.
Metanstöð
við Álfheima?
Olíuverzlun Íslands hf. hefur sótt um
breytingar á lóð til til að koma fyrir
metanafgreiðslu
Lóðin sem um ræðir nr. 49 við
Álfheima. Umsókninni var vísað til
afgreiðslu borgarráðs.
Vill byggja 4
hæða hús
Sótt hefur verið um fyrir byggingu
fjögurra hæða húss með verslunum
á jarðhæð og 8-10 íbúðum á efri
hæðum á lóð nr. 56 við Laugaveg.
Í dag eru verslunin Nikita og Epic
með starfsemi í húsinu.
Vinnustofur
listamanna við
Skólastræti 3
Sótt hefur verið um leyfi fyrir því að
innrétta vinnustofur listamanna við
Skólastræti.
Einnig var sótt um leyfi til þess að
lækka botnplötu, endurbyggja fram-
hlið og stækka hús nr. 3B á lóðinni
nr. 3 við Skólastræti.
Stutt og laggott
Spurning vikunnar er:
Hvaða ár var Borgarbókasafn Reykjavíkur stofnað?
Hvað veistu um borgina þína?
Svarið er að finna á síðu 14. Sumaráætlun
Strætó tekur gildi
Sumarakstur Strætó á höfuð-borgarsvæðinu hefst þann 9. júní nk. Breytingar verða á
leiðum 2, 11, 12, 13, 14, 15 og 28,
þessar leiðir munu aka á 30 mínútna
fresti allan daginn.
Vegna lokunar á Hverfisgötu í
sumar munu leiðir 1, 3, 6, 11, 12 og
13 flytjast yfir á Sæbraut. Vagnarnir
munu aka Snorrabrautina að Sæbraut-
inni og að Kalkofnsvegi við Hörpu,
þaðan fara vagnarnir að Lækjartorgi.
Vagnarnir munu svo aka sömu leið
til baka.
Biðstöðvar verða við Hörpu og
Sólfarið
Reiðhjólauppboð
lögreglunnar næstu helgi
Rúmlega 100 reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamuna-deild lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu laugardaginn 8. júní
nk. klukkan 11. Þetta eru reiðhjól sem
hafa fundist í óskilum víða í umdæm-
inu og enginn hefur hirt um að sækja.
Uppboðið verður haldið í húsnæði
Vöku í Skútuvogi 8 í Reykjavík. Vænt-
anlega verður líf og fjör á uppboði lög-
reglunnar enda á það sér langa sögu og
á þeim er jafnan múgur og margmenni.
Fyrst verða reyndar boðnar upp fáeinar
barnakerrur og barnavagnar, en síðan
reiðhjólin.
Á síðasta ári voru tilkynningar um
stolin reiðhjól rúmlega 700 hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ekki
er ljóst hvað verður um meirihluta
þeirra enda berst aðeins hluti hjólanna
til óskilamunadeildar. Algengt er að
hjól berist þangað nokkrum mánuðum
eftir að þeim var stolið. Eigendunum
nægir því sjaldnast að koma bara til
lögreglu strax eftir þjófnaðinn, þeir
verða líka að koma aftur nokkrum
vikum seinna til að fullreyna hvort
hjólin séu í vörslu lögreglu eða ekki.
Samhliða þessu er fólki bent á mik-
ilvægi þess að geyma reiðhjól á eins
öruggum stað og unnt er og alls ekki
skilja þau eftir ólæst. Ef illa fer, og hjóli
er stolið, getur komið sér vel ef eig-
andinn hefur raðnúmer (stellnúmer)
þess tiltækt. Það auðveldar lögreglu
að koma því til skila ef það á annað
borð kemur í óskilamunadeild hennar.
Sólblómagult var það!
Almenningur átti þess kost að velja lit á tvö hjólahlið í Reykjavík í sumar.
Hægt var að velja á milli fjögurra lita
en þeir voru ferskjurauður, sólblóma-
gulur, himinblár og tyggjóbleikur og
fór valið fram á Facebooksíðu borg-
arinnar. Langflest, eða samtals 291
atkvæði, hlaut sólblómagula hjólið
en það tyggjóbleika næstflest. Mið-
borgin verður einstaklega litrík í
sumar skreytt grænum, gulum og
bleikum hjólahliðum, sumarblómum,
útibekkjum og borðum sérstaklega til
þess að skapa umgjörð fyrir mannlíf
og stemningu.
Laugavegurinn verður göngugata
frá Vatnsstíg og Skólavörðustígur
frá Bergstaðastræti í sumar. Kvosin
mun að sama skapi vera mestmegnis
tileinkuð gangandi og hjólandi veg-
farendum líkt og undanfarin sumur.