Reykjavík


Reykjavík - 01.06.2013, Page 8

Reykjavík - 01.06.2013, Page 8
8 1. júní 2013 Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannadagsráðs í viðtali við Reykjavík, vikublað: „Krafan var að meira yrði gert til að bæta öryggi sjómanna‘‘ Sjómannadagurinn er á sunnudaginn og í ár eru 75 ár liðin síðan dagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur þann 6. júní árið 1938. Sjómannadagsráð kom þessum hátíðardegi sjómanna á lagg- irnar á sínum tíma. Formaður ráðsins, Guðmundur Hallvarðsson, ræðir hér um stofnun og sögu Sjómannadagsráðs og það gildi sem Sjómannadagurinn hefur í íslensku samfélagi. Guðmundur segir að upphaf sjó- mannadagsins megi rekja til ársins 1936 þegar bréf barst til Félags ís- lenskra lofskeytamanna frá kollegum þeirra á Norðurlöndunum þess efnis að stofna minningardag um drukknaða loftskeytamenn á hverju ári. Henrý Hálfdánarsyni, sem þá var formaður Félags loftskeytamanna, fannst eðlilegt að færa daginn yfir á íslenska staðhætti og ræddi við önnur stéttarfélög sjó- manna í Reykjavík og Hafnarfirði. „Á þessum tíma voru sjóslys tíð og mikil og að áliti margra var almennt lítið gert úr því hversu margir fórust á sjó. Minningarathafnir voru vissulega haldnar og peningasamskot voru fyrir ekkjurnar sem sátu eftir með fjölda barna. En krafan var að meira yrði gert til að bæta öryggi á sjó en gert hafði verið,‘‘ segir Guðmundur. Þann 25. nóvember árið 1937 var Sjómannadagsráð formlega stofnað af 11 sjómannafélögum úr Reykjavík og Hafnarfirði í Oddfellowhúsinu við Vonarstræti. Tilgangur ráðsins var sá að hafa einn dag á ári til minningar um drukknaða sjómenn, minna á mikilvægi sjómannastéttarinnar og stuðla að meiri samheldni innan starfsgreina sjómanna. Sjómenn heiðraðir við fótskör mesta sjófara Ís- landssögunnar Fyrsti sjómannadagurinn var haldinn þann 6. júní 1938 undir stjórn Sjómanna- dagsráðs að sögn Guðmundar og bar daginn upp á annan í hvítasunnu. Ræður voru haldnar og drukknaðra sjómanna minnst við styttu Leifs Eiríkssonar á Skólavörðuholtinu. Um 10 þúsund manns mættu til að taka þátt í hátíðar- höldunum og bætir Guðmundur við að þá voru Reykvíkingar 37 þúsund svo þetta var geysilega fjölmenn samkoma. Guðmundur telur að ástæða þess að hátíðarhöldin voru efst á Skólavörðu- holtinu, langt frá sjó sé sú að menn álitu og álíta enn að Leifur Eiríks- son sé mesti sjófari Íslandssögunnar. Kappróður var háður við höfnina og ýmsar íþróttagreinar viðhafðar á gamla Melavellinum þar sem Þjóðar- bókhlaðan er nú til húsa. Töluvert safn- aðist af fé með blaða- og merkjasölu. Dansleikir voru haldnir víða um bæinn og aðaldansleikurinn var á Hótel Borg þar sem sjómannahátíð fór fram. Þessi hátíð þótti takast einstaklega vel. Ágóðinn af hátíðarhöldunum var notaður til að reisa minnisvarða sem Ríkharður Jónsson myndhöggvari var fenginn til að hanna. Minnisvarðinn er steinsteyptur viti á stalli úr fjörugrjóti og stóð fyrst á leiði óþekkta sjómannsins í Fossvogskirkjugarði. Hann var síðar fluttur um set þar sem erfitt var að kom- ast að leiðinu. Hvíldarheimili fyrir far- menn og fiskimenn Sjómannadagsráð áleit að meira þyrfti að koma til en að halda Sjómanna- daginn hátíðlegan einu sinni á ári. Guð- mundur segir að í marsmánuði 1939 hafi verið komið á stefnuskráarnefnd. Formaður nefndarinnar var Sigurjón Á Ólafsson alþingismaður sem einnig var formaður Sjómannafélags Reykjavíkur. Eftir þriggja vikna vinnu skilaði nefndin áliti um hvað ríki og sveitarfélög myndu ekki gera í nánustu framtíð, það væri að byggja elli- og hvíldarheimili fyrir far- menn og fiskimenn. Því var samþykkt að ráðið myndi fara út í slíkar fram- kvæmdir sjálft og var tillagan samþykkt en fór ekki að fullu í gang fyrr en árið 1942. Fé var safnað áfram og menn voru kappsfullir um þessi áform. Rætt var hvar ætti að byggja dvalarheimili. „Margir vildu byggja á Laugarnestanganum og eiga báta í flæðarmálinu að vestanverðu en hafa kálgarða austanmegin. Bæjaryfirvöld voru ósátt við það því það gæti orðið til trafala við framgang og uppbyggingu Reykjavíkurhafnar,‘‘ segir Guðmundur. Borgin bauð tæplega 6 hektara land í Laugarásnum sem ákveðið var að sam- þykkja. Áfram hélt Sjómannadagsráð að safna fé meðan beðið var með að hefja byggingaframkvæmdir en sér- stakt útflutningsráð sem þá var starf- andi samþykkti þær ekki vegna skorts á gjaldeyri. Sjómannadagsráð lánaði Hafnarfjarðarbæ í millitíðinni peninga til að ljúka við byggingu Sólvangs. Drossíur í happdrættið Árið 1952 var fyrsta skóflustungan tekin að dvalarheimilinu þegar Út- flutningsráð hafði loksins samþykkt framkvæmdina. „Það var þó ekki fyrr en Ólafur Thors ráðherra blandaði sér í málið,‘‘ bætir Guðmundur við. Árið 1954 lagði Ásgeir Ásgeirsson, forseti Íslands hornstein að húsinu . Leyfi fékkst um svipað leyti til að reka happdrætti DAS. Guðmundur segir að Ólafur Thors hafi sagt þegar komið var til fundar við hann; „Hvernig hefði ég getað neitað fulltrúum sjómanna sem komu með tuttugu aflahæstu skip- stjóranna með sér.‘‘ Ólafur Thors sagði einnig að þessir fulltrúar sjómanna færðu sig svo upp á skaftið og vildu líka fá drossíur í vinning. Af þeim 9 drossíum sem fluttar voru inn þetta árið fóru 6 þeirra í happdrættið. Þetta varð til þess að hægt var að halda áfram byggingu dvalarheimilisins. Guðmundur minnist þessa tíma sem ungur drengur: „Ég var 12 ára gam- all og stóð hérna á horni Otrateigs og Sundlaugavegar í hæfilegri fjarlægð frá Oddi sterka af Skaganum sem var í fullum víkingaskrúða og báðir fylgd- umst við með því þegar skrúðgangan kom úr Höfðaborginni fylktu liði með lúðrasveit og víkingaskip í fararbroddi. Í skipinu var fjöldi manna klæddir sem víkingar. Síðan komu vinningarnir, þessar flottu drossíur og nokkrir traktorar. Ekki mátti borga vinninga út í peningum og verðlaunin voru bílar, búvélar og búpeningur.‘‘ Með timburfarm á þilfarinu Á Sjómannadaginn árið 1957 hófst svo starfsemi dvalarheimilisins í Reykjavík sem fékk nafnið Hrafnista. Nafngiftina má að sögn Guðmundar rekja til ársins 1939 þegar Sjómannadagsráð efndi til samkeppni um sjómannaljóð. Ótal fjöldi ljóða barst og sigurvegarinn var Magnús Stefánsson, öðru nafni Örn Arnarson með fallega ljóðið sitt Íslands Hrafnistumenn. Ýmsar leiðir voru farnar til að afla fjárs. Haldnar voru geysilega vinsælar kabarettsýningar, dýrasýningar og tívolí var starfrækt. Efnt var til siglinga og seldir miðar með Esjunni til Akraness auk þess sem kaupskip var fengið að láni þó timburfarmur væri á þilfarinu. Súðin var einnig notuð í þessar siglingar og komust færri að en vildu. Hálfur matsalur Hrafnistu var notaður fyrir kvikmyndasýningar og var það enn ein tekjuöflunin. Árið 1962 var Laugarásbíó fullbyggt. Guðmundur segir að auk þess hafi verið rekið barnaheimili að Laugar- landi í Holtum og voru munaðarlaus sjómannabörn þar fyrst og fremst auk annarra barna sem bjuggu við erfiðan kost. Ekki var sá rekstur til tekju- sjómannadagurinn HaLdinn HátíðLegur í á sunnudaginn „Upphaf sjómannadagsins má rekja til bréfs sem barst Félagi íslenskra lofskeytamanna frá kollegum þeirra á norð- urlöndunum að stofna minningardag um drukknaða loftskeytamenn á hverju ári“ segir Guðmundur Hallvarðsson

x

Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.