Reykjavík


Reykjavík - 01.06.2013, Síða 12

Reykjavík - 01.06.2013, Síða 12
1. júní 201312 línur frá honum til mín. „Blaðamaður horfir í augu Hauks og spyr – hafa óskir Sigfúsar ræst? „Það verða aðrir að dæma um en ég vona“ segir hann og brosir. Haukur segir að eðlilega hafi oft verið glaumur og gleði um borð en þegar stoppað var í höfnum kom fyrir að fólk fór í land og skellti sér á ball. „Mamma sagði mér eitt sinn þegar hópurinn fór á tiltekinn veitingastað í Hamborg og Sigfús Halldórsson var með, að þegar hópurinn gekk í salinn og hljómsveitin kom auga á Sigfús, hafi þeir umsvifalaust breytt um lag og spilað „Litlu fluguna“ Sigfúsi til heiðurs. Þetta er svona lítil saga um hvaða sess Sigfús skipaði í hugum fólks, m.a. í útlöndum“. Bjallan var mikilvæg En hvar var Haukur þegar eldra fólkið fór á ballstaðina? „Ég fékk einfaldlega leyfi til að vera eftir um borð og ég nýtti mér þá tækifærið og lét stjana svolítið við mig. Þannig var ég eitt sinn inni í káetu að lesa og langaði allt í einu í banana. Þá þrýsti ég á bjölluhnapp og þá kom þerna vörmu spori og spyrði hvað hún gæti gert fyrir mig og ég sagði kurteislega að hún gæti fært mér banana. Skömmu síðar kom hún með bananann á bakka og rétti mér. Þetta var alveg ótrúlega notalegt. Já maður var fljótur að ganga á lagið!“ segir hann og hlær. Þá hafi auk þess margt af þeim mat og drykkjum sem voru um borð ekki verið til á Íslandi og það fannst honum gaman að upplifa og njóta. „Þannig var boðið uppá danskt appelsín, Valash held ég að það hafi heitið. Þá var hægt að fá smartis, toblerone og fleira flott- erí. Þannig að það er auðvelt að sjá hve mikið ævintýri þetta var allt saman fyrir pjakk eins og mig“. Farið að gjósa Þegar skipið var í Kaupmannahöfn var sett tilkynning uppá vegg um að neðansjávargos væri hafið rétt vestur af Vestmannaeyjum. Gossins varð vart kl. 7:15 14. nóvember 1963. „Já það var sett þarna tilkynning og vitað að við myndum sigla fram hjá svæðinu á heimleiðinni“ segir Haukur. „Þessa daga sem við sigldum frá Kaupmanna- höfn til Íslands var gosið við það að ná uppúr sjónum og því fylgdu þá miklar gufusprengingar þegar glóandi kvikan streymdi upp til yfirborðs og sjórinn breyttist í gufu á augabragði og kvikan splundraðist“ segir Haukur. „Við sigldum þarna framhjá ég þetta var ógleymanleg sjón. Þvílíkar drunur samfara gufusprengingunum, það nötraði allt og skalf og gjóskan og jafnvel heilu björgin þeyttust upp í loft eins og flugeldar og gosmökkurinn var alveg hrikalega stór.“ segir Haukur og bætir við að þetta hafi verið ógleym- anleg sjón. „Það er svolítið merkilegt að nákvæmlega þegar við erum að sigla meðfram gosinu, flýgur flugvél yfir svæðið til að skoða og mynda gosið og nær mjög sérstakri mynd af MS Gullfossi með Surtseyjargosið í baksýn“ segir Haukur. Þessa mynd má sjá risastóra á veitingastaðnum Volcano House við Tryggvagötu í Reykjavík þar sem við erum að drekka kaffið og Haukur fyllist lotningu að sjá myndina, enda er hann um borð í skipinu og man nákvæmlega hvar hann var staddur þegar flugvélin sem tók myndina flaug yfir. „Já ég man það greinlega. Ég stend stjórn- borðsmegin við strompinn efst uppi, dolfallinn yfir því sem fyrir augu ber“. Hann segist sjálfur eiga svona mynd heima hjá sér þó minni sé. Við spyrjum Hörð, sjálfan vertinn, hvort við megum stilla okkur upp við myndina stóru þar sem ég fengi að taka mynd af Hauki við myndina og það reyndist auðsótt. Að því loknu spyr ég hvort ferðin með Gullfossi hafi á einhvern hátt haft áhrif á hann og hann jánkar því. „Já klárlega. Fyrir það fyrsta hef ég einhverra hluta vegna alltaf þótt gaman af að vera í nálægð við sjó- inn og fer oft á bryggjurnar að skoða bátana og mannlífið. Í seinni tíð eignaðist ég svo skútu í félagi við frænda minn. Nú síðan ákvað ég að fara í Stýrimannaskólann og tók þar 30 tonna réttindin og sjálfsagt hefur ferðin með MS Gullfossi, þessu merki- lega og fallega skipi, lagt grunninn að þessum áhuga á sjónum og siglingum“ segir hann einlæglega. Blaðamaður spyr hvort hann vilji segja eitthvað að lokum, og hann tekur því boði með þökkum „Já það vil ég. Þegar ég, 7 ára gamall stóð þarna á efsta þilfari á MS Gullfossi og horfi á Surtsey risa úr sæ og verða til, hét ég mér því að ég myndi einhvern tímann stíga á þessa nýju eyju sem síðar fékk nafnið Surtsey. Í haust verða liðin 50 ár síðan ég horfði á þessa eyju verða til. Einhvern tímann hlýt ég að geta látið þann draum rætast. Annað væri synd“ segir Haukur nokkuð ákafur. Að svo búnu klárum við kaffi- sopann. Tökumst í hendur og blaða- maður þakkar fyrir spjallið. Haukur fer að svo búnu upp í jeppann sinn og segist ætla að kíkja á skútuna sína á leiðinni heim. „Það eru vorhreingern- ingarnar“ segir hann og hlær. Viðtal: HÞ Haukur Holm við myndina frægu. Þegar þessi mynd er tekin stendur Haukur við skorstein skipsins stjórnborðsmegin og virðir fyrir sér myndun Surtseyjar. „Ógleymanlegt“ segir Haukur Framhald af bls 10. Sagnafræðingur fræðir um afstöðu Ásmundar Sveinssonar: Skoðunarferð um borgina og verk Ásmundar skoðuð Þorbjörg Gunnarsdóttir, safnafræðingur ræðir um afstöðu Ásmundar til listar á almannafæri, í görðum, við skóla, verksmiðjur o.s.frv. Ás- mundur hélt alla tíð tryggð við þá hugmynd að listin ætti erindi til fólksins og ætti heima á almanna- færi. Ferðin hefst í höggmynda- garðinum við Ásmundarsafn og síðan verður farið með hópferðabíl vítt um borgina og verk Ásmundar skoðuð. Skoðunarferðin hefst kl 14 á morgun, sunnudaginn 2. júní frá Ásmundarsafni Ásmundur reisti fyrsta högg- myndagarðinn við hús sitt við Freyjugötu árið 1938. Síðar reisti hann höggmyndagarð við heimili sitt og vinnustofu í Sigtúni þar sem nú er Ásmundarsafn. Alls prýða 26 verk garðinn, þar af 3 járnverk. Járn- verkin voru sett upp í garðinum 20. maí sl. þegar 120 ár voru liðin frá fæðingu Ásmundar. Verð kr. 1.200. Frítt er fyrir hand- hafa Menningarkortsins, eldri borg- ara og börn undir 18 ára. Óskum öllum launþegum á Íslandi til hamingju með baráttudag verkalýðsins 1. maí Ós sjómön um til hamingju með daginn GULLBERG S E Y Ð I S F I R Ð I GULLBERG SEYÐISFIRÐI GULLBERG SEYÐISFIRÐI GULLBERG SEYÐISFIRÐI GULLBERG SEYÐISFIRÐI GULLBERG SEYÐISFIRÐI GULLBERG SEYÐISFIRÐI MÁLTÍÐ MÁNAÐARINS Á KFC 90568 • P ipar • S ÍA 899krónur Aðeins + + Meltz franskar gos gerðir í boði sweet chili bbq TRANS- TAFI ákvörðun fyrrverandi sjávarútvegsráðherra um auknar hvalveiðar til styrktar íslensku atvinnulífi, enda stuðla sjálf- bærar hvalveiðar að jafnvægi í lífríki sjávar. Við styðjum heilshugar v ið s k ip t a b la ð ið / a x e l jó n / 0 2 0 2 2 0 0 9 Verkalýðsfélag Akranes Útvegsmannafélag Reykjavíkur Útvegsmannafél g Hornafjarðar ákvörðun fyrrverandi sjávarútvegsráðherra um auknar hvalveiðar til styrktar íslensku atvinnulífi, enda stuðla sjálf- bærar hvalveiðar að jafnvægi í lífríki sjávar. Við styðjum heilshugar v ið s k ip t a b la ð ið / a x e l jó n / 0 2 0 2 2 0 0 9 Stálskip ehf Hvalur Félag hrefnuveiðimanna Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar Hafmeyjan ákvörðun fyrrverandi sjávarútvegsráðherra um auknar hvalveiðar til styrktar íslensku atvinnulífi, enda stuðla sjálf- bærar hvalveiðar að jafnvægi í lífríki sjávar. Við styðjum heilshug r v ið s k ip t a b la ð ið / a x e l jó n / 0 2 0 2 2 0 0 9 Verkalýðsfélag Akranes Útvegsmannafélag Reykjavíkur Útvegsmannafélag Hornafjarðar 1.m í Óskum öllum launþegum á Íslandi til hamingju eð b ráttud g verk lýðsins Kópavogsbær raFiðNaða sambaNd ÍsLaNds MÁLTÍÐ MÁNAÐARINS Á KFC 90568 • P ipar • S ÍA www.kfc.is 90568 • P ipar • S ÍA 899krónur Aðeins + + Meltz fr nskar gos gerðir í boði sweet chili bbq TRANS- TAFI ákvörðun fyrrverandi sjávarútvegsráðherra um auknar hvalveiðar til styrktar íslensku atvi nulífi, enda stuðla sj lf- bærar hvalveiðar að jafnvægi í lífríki sjávar. Við styðjum h il hug v ið s k ip t a b la ð ið / a x e l jó n / 0 2 0 2 2 0 0 9 Verkalýðsfélag Akranes Útvegsmannafélag Reykjavíkur Útvegsmannafélag Hornafjarðar ákvörðun fyrrver ndi sjávarút e sráðherra um aukn r hvalveiðar til styrktar íslensku atvinnulífi, enda stuðla sjálf- bærar hvalveiðar ð jafnvæ i í lífríki sjá r. Við sty jum he lshug r v ið s k ip t a b la ð ið / a x e l jó n / 0 2 0 2 2 0 0 9 Stálskip ehf Hvalur Félag hrefnuveiðimanna Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar Hafmeyjan ákvörðun fyrrverandi sjávarútvegsráðherra um auknar hvalveiðar til styrktar íslensku atvinnulífi, enda stuðla sjálf- bærar hvalveiðar að jafnvægi í lífríki sjávar. Við styðjum heilshug r v ið s k ip t a b la ð ið / a x e l jó n / 0 2 0 2 2 0 0 9 Verkalýðsfélag Akranes Útvegsmannafélag Reykjavíkur Útvegsmannafélag Hornafjarðar HVALUR HF.

x

Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.