Reykjavík - 01.06.2013, Side 14
14 1. júní 2013
Árni Bjarnason er formaður félags
skipstjórnarmanna og lifir og hrærist
í málefnum stéttarinnar frá degi til
dags. Hann segist hafa verið baldinn
unglingur og er því tekinn til yfir-
heyrslu blaðsins að þessu sinni.
Fullt nafn:
Árni Bjarnason
Aldur:
60.
Foreldrar:
Bjarni Jóhannesson skipstjóri Sigríður
Freysteinsdóttir
Hvert liggja ættir þínar?
Í Flatey á Skjálfanda og Arnar-
dalsættina
Grunn- og/eða framhaldsskóli sem
þú sóttir:
Lauk 3. stigi Stýrimannaskólans ́ ´ 73.
Síðan útgerðartækni í Tækniskóla Ís-
lands ´´85.
Hvernig unglingur varstu?
Baldinn
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór?
Íþróttakennari
Maki?
Steinunn Sigurðardótir
Starf maka?
Bankastarfsmaður
Börn?
Sigurður f.“76 Heimir Örn f. “79 og
Rósa María f. “91.
Hefurðu búið erlendis?
Nei
Stærsti sigurinn:
Hola í höggi
Mesta axarskaftið:
Að byrja ekki 50 árum fyrr í golfi
Vandræðalegasta augnablikið:
Stóð upp sem ungur drengur og
klappaði eins og brjálæðingur í miðju
lagi á tónleikum hjá karlakórnum
Geysi þar sem pabbi var að syngja.
Hélt að lagið væri búið. Borgarbíó
þétt setið.
Helstu áhugamál:
Tónlist, Íþróttir, hagsmunamál sjó-
manna og þjóðmál almennt
Ertu tilfinninganæmur?
Já
Ertu rómantískur?
Því miður þá held ég að vanti aðeins
upp á það
Nefndu góða uppskrift að róman-
tísku kvöldi:
Fallegt umhverfi, góður matur, seið-
andi tónlist og staðfastur ásetningur
um að lát sér líða vel.
Hvað gerir konur aðlaðandi?
Bros, hlátur og hlýja
Hver er þinn helsti kostur?
Létt lund og gengur yfirleitt vel í sam-
skiptum við annað fólk.
En galli?
Ekki nógu góður ræðumaður
Hvernig metur þú stöðu sjómanna-
stéttarinnar í dag?
Sjómenn eru eins og annað fólk að
því leiti að þeir vilja vita hvernig þeim
reiðir af í nánustu framtíð. Sú enda-
lausa óvissa sem varað hefur undan-
farin ár er ekki boðleg hvorki fyrir
sjómenn né útvegsmenn.
Hvaða breytingar hefur þú helst séð
hjá stéttinni á þínum ferli í kjara-
málum sjómanna?
Fækkun slysa sérstaklega dauðaslysa.
Umskipti í tryggingarmálum sjó-
manna.
Er starf sjómannsins metið að verð-
leikum?
A.m.k. á sjómannadaginn. Íslenskir
sjómenn eru um þessar mundir einir
sjómanna á Norðurlöndum sem ekki
eru taldir verðskulda skattaívilnanir
vegna sérstöðu sjómannsstarfsins. Það
er ákveðin vísbending um viðhorf til
sjómannastéttarinnar.
Kanntu að bakka bíl með kerru
aftaní?
Já
Ertu leikinn á strauborðinu?
Nei
Skemmtilegasta starfið á ferlinum?
Skipstjóri
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
gerir?
Knúsa barnabörnin
Ertu flughræddur?
nei
Ertu með bíladellu og hvernig bíl
áttu?
Nei. Mazda X 7. 2007 model
Ferðastu mikið (innalands og/eða
utan)?
Töluvert
Fallegasti staðurinn á Íslandi?
Akureyri
Fallegasti staðurinn í útlöndum?
Vancuver Island Kanada
Eftirminnilegur staður?
S-Afríka
Ertu hjátrúarfullur?
Já
Trúir þú á líf eftir dauðann?
Já
Hefurðu farið til spámiðils og/eða
trúir þú á slíkt?
Nei
Ertu góður í eldhúsinu?
Nei
Ferðu oft út að borða?
Ekki nógu oft
Besti/eftirminnilegasti veitingastað-
urinn (innanlands eða utan)?
Sjávarkjallarinn
Uppáhaldsmatur?
Lambahryggur
Uppáhaldsdrykkur?
Kaffi/vatn
Áttu þér uppáhalds tónlistarmann
eða tónlist?
Marga.
Besta bókin?
Í verum Eftir Theodór Friðriksson
Uppáhalds leikari?
Guðlaug María Bjarnadóttir,systir mín
Hvað gerir þú þegar þér leiðist?
Spila á hljómborð
Hvað gerir þú þegar þú ert argur eða
ekki í góðu skapi?
Spila á hljómborð
Hvað leiðist þér einna mest?
Öfgakennd viðhorf og skoðanir
ákveðins hóps fólks til sjómanna og
sjávarútvegs.
Evrópusambandið, já eða nei?
Nei.
Lífsmottó?
Hver er sinnar gæfu smiður
Einkarekið Apótek
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Hvað veistu
um borgina þína?Svar:
Árið 1919 en tók ekki til starfa fyrr en árið 1923.
Til hamingju með daginn
www.3frakkar.com - Sími: 552-3939
Sjómenn
ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939
Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00
Opið um helgar frá 18:00 - 23:00
frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com
Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar
Þrír Frakkar
Café & Restaurant
Ferskur léttsteiktur bláugga-
túnfiskur m/soya-s jörsósu
og wasabi-kartöflumús
Menningararfurinn á Kjarvalsstöðum
Sýningin Íslensk myndlist 1900-1950 verður opnuð í dag, laugardaginn 1. júní kl. 16 á
Kjarvalsstöðum. Sýningin er sögu-
legt yfirlit íslenskrar myndlistar frá
1900-1950 þar sem hátt í tvöhund-
ruð málverk og höggmyndir eftir 40
listamenn eru til sýnis í Vestursal
og Kjarvalssal. Verkin á sýningunni
koma víða að, frá listasöfnum, stofn-
unum og einkasöfnum. Mörg verk-
anna á sýningunni eru mikilvæg
í íslenskri listasögu og hafa ekki
verið sýnd um langt árabil. Mark-
mið sýningarinnar er að rannsaka
og dýpka þekkingu okkar á menn-
ingararfinum.
Sýningunni er skipt í fjórar frá-
sagnir og fjögur tímabil: Rómantík
og róttækni 1900-1930, Landslag
1930-1950, Maðurinn og umhverfi
hans 1930-1950, Ný-róttækni og
upphaf abstraktlistar 1940-1950.
Sýningarstjóri er Ólafur Kvaran.
Listasafn Reykjavíkur býður alla
velkomna á opnun sýningarinnar
Árni Bjarnason er formaður félags skipstjórnarmanna
„Íslenskir sjómenn eru þeir einu á Norðurlöndunum sem ekki eru
taldir verðskulda skattaívilnanir vegna sérstöðu sjómannsstarfsins“
YFIRHEYRSL
A