Fréttir - Eyjafréttir - 08.04.2010, Qupperneq 1
Bílaverkstæðið
BRAGGINN sf.
Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð - Sími 481 3235
Réttingar og sprautun - Sími 481 1535
Konný átti
bestu myndina
Forsíðumyndin að þessu sinni
er sigurmynd marsmánaðar í
ljósmyndakeppni Frétta og
Byggðasafnsins. Þema þess
mánaðar var hraunið og það er
Laufey Konný Guðjónsdóttir
sem tók þessa fallegu mynd.
Alls bárust 66 myndir í keppn-
ina og Jóhanna Yr Jónsdóttir,
safnstjóri Byggðasafnsins, sem
situr í dómnefnd, sagði valið í
raun ekki hafa verið erfitt að
þessu sinni. Þessi mynd hefði
staðið upp úr, að mati dóm-
nefndar. Jóhanna sagði einnig
að konur hefðu átt stóran hluta
af þeim myndum sem þótt
hefðu bestar að þessu sinni.
„Konurnar eru að koma
sterkar inn,“ sagði Jóhanna.
Þema aprflmánaðar er höfnin
og Jóhanna sagði að nú þegar
væru komnar inn 20 myndir og
því útlit fyrir góða þátttöku.
37. árg. I 14. tbl. I Vestmannaeyjum 8. apríl 2010 I Verð kr. 300 I Sími 481-1300 I www.eyjafrettir.is
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknar:
Ferja milli Eyja og Skotlands
-Ef Katla gýs og allt fer á versta veg þá takmarkast flug til
landsins. Þá væri gott að hafa annan möguleika í stöðinni
Sigurður Ingi Jóhannsson, þing-
maður Framsóknarflokksins í Suð-
urkjördæmi, hefur lagt fram þings-
ályktunartillögu þess efnis að sam-
gönguráðherra kanni hagkvæmni
ferjusiglinga á milli Vestmannaeyja
og Bretlandseyja. Meðflutnings-
menn að tillögunni eru fjórir þing-
menn Framsóknarflokksins.
„Hugmyndin gengur út á að hefja
siglingar á stærri ferjum sem geta
flutt fólk, bfla og vörur á milli
Skotlands og Vestmannaeyja. Síðan
er möguleiki á umskipun í Vest-
mannaeyjum og ferjun upp í Land-
eyjahöfn. Þannig opnaðist mögu-
leiki á að fólk keyri frá meginlandi
Evrópu með viðkomu í Vestmanna-
eyjum,“ sagði Sigurður en hann
reiknar með að siglingatíminn verði
um 30 klukkustundir, jafnvel 20 yfir
sumartímann, allt eftir því úr hvaða
höfn er haldið. „Tillagan snýst um
að ráðuneytið láti gera hagkvæmis-
úttekt og kanni hvort lög og
reglugerðir standi í vegi fyrir
þessu,“ sagði Sigurður og var í
framhaldinu spurður hvort gera
þurfi miklar breytingar á hafnar-
aðstöðu í Vestmanneyjum verði
hugmyndin að veruleika.
„Það þarf væntanlega að stækka
hafnarsvæðið. Menn eru ekki að
leggja í beinan kostnað heldur skapa
fleiri möguleika þ.e.a.s ef útreikn-
ingar sýna _að hugmyndin reynist
hagkvæm. Ég á von á að ferjusigl-
ingafyrirtæki sýni þessu áhuga og
þá yrði að bjóða þær út og fara eftir
samkeppnisreglum. Fólksflutningar
yrðu meiri og vöruflutningar auð-
veldari, vögnum keyrt beint um
borð og síðan gætu þeir tekið vörur
til baka. Við sjáum Vestmannaeyjar
sem millilið á þessum flutningum
því siglingin er mun styttri en þegar
skip sigla fyrir Reykjanes," sagði
Sigurður Ingi og tók fram að nýlega
hefðu komið upp ný og óvænt rök
með tillögunni. „Rökin eru þau að ef
Katla gýs og allt fer á versta veg þá
takmarkast flug til landsins. Þá væri
gott að hafa annan möguleika í
stöðunni," sagði Sigurður Ingi en þá
væri hægt að flytja fólk og vörur til
og frá landinu sjóleiðina.
Elliði leiðir
áfram lista
sjálfstæðis-
manna
Framboðslisti sjálfstæðismanna
tii bæjarstjómarkosninga þann 29.
maí nk. var samþykktur á fundi
fulltrúaráðs flokksins í gærkvöldi.
Er hann þannig skipaður:
I. Elliði Vignisson, bæjarstjóri, 2.
Páley Borgþórsdóttir, lögmaður
og formaður bæjarráðs, 3. Páll
Marvin Jónsson, líffræðingur og
bæjarfulltrúi, 4. Gunnlaugur
Grettisson, viðskiptafræðingur og
forseti bæjarstjórnar, 5. Helga
Björk Ólafsdóttir, leik- og
grunnskólakennari, 6. Hildur
Sólveig Sigurðardóttir, sjálfstætt
starfandi sjúkraþjálfari, 7. Trausti
Hjaltason, stjórnmálafræðingur
og framkvæmdastjóri, 8. Arnar
Sigurmundsson, framkvæmda-
stjóri, 9. Hildur Zoega Stefáns-
dóttir, fiskverkakona, 10. Þor-
björn Víglundsson, stýrimaður,
II. Drífa Kristjánsdóttir, trygg-
ingaráðgjafi, 12. Guðmundur
Huginn Guðmundsson, skipstjóri,
13. Gígja Óskarsdóttir, framhalds-
skólanemi og 14. Leifur Arsæls-
son, fyrrv. útgerðarmaður.
Kennir skák
á Grænlandi
Eyjamaðurinn Sverrir Unnarsson
hefur undanfarna daga dvalið á
austurströnd Grænlands og kennt
skák.
Er hann í þorpinu Ittoqqort-
oormiit við Scoresbysund. Þar
hefur hann við annann mann
kennt börnum í þorpsinu skák en
mikill áhugi er á skákíþróttinni
meðal barna á svæðinu.
Það var Taflfélagið Hrókurinn
sem hratt verkefninu af stað árið
2003 og árlega hefur fólk farið á
vegum félagsins til þorpa á aust-
urströnd Grænlands til að kenna
skák.
Vetur konungur hefur hvergi
nærri kvatt nágranna okkar í vestri
og fá íslendingamir að kynnast
fimbulkulda, hundasleðum og
öðru sem tilheyrir grænlensku
samfélagi.
| Friðarhöfn | Sími481 3500 |
VIÐ LÁTUM BÍLINN GANGA... ne táhamar VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐI
...SVO ÞÚ ÞURFIR ÞESS EKKI
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / <S£> ÞJÓNUSTUAÐILI )l í EYJUM FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM.864-4616