Fréttir - Eyjafréttir - 08.04.2010, Page 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 8. aprfl 2010
Höllin - Góð heimsókn:
Dikta sækir
Eyjamenn
heim
Þann 21. apríl, síðasta vetrardag,
mun vinsælasta band Islands í
dag mæta í Höllina og halda
magnaða tónleika fyrir Eyja-
menn.
Þetta er bandið DIKTA sem
hefur slegið heldur betur í gegn í
ljósvakamiðlum, á þar tvö topp-
lög og er að gera allt villaust í
bænum.
DIKTA hélt magnaða tónleika
á NASA um daginn og komust
færri að þar en vildu og svo sló
sveitin gjörsamlega í gegn á
„Aldrei fór ég suður“ á Isafirði
um páskahelgina. Það má því
búast við magnaðri upplifun
þann 21. apríl forsala hefst á
fimmtudaginn kl 12:00 á Vol-
cano Café.
Verð á tónleikana er 2000 kr í
forsölu og 3000 við hurð.
Höllin Vestmannaeyjum
Sveitarstjórnar-
kosningarnar 2010:
Hægt að
kjósa utan
kjörfundar
- en hvað ætlarðu að
kjósa? Framboðslistar
liggja ekki fyrir
Frá og með 6. apríl verður hægt
að kjósa utan kjörfundar í sveit-
arstjórnarkosningum. Kosið
verður 29. maí næstkomandi en
frestur til að skila inn framboðs-
lista rennur út 8. maí næstkom-
andi. Og þá vandast málið. Hvað
á að kjósa? Eins og staðan er í
dag liggur ekki Ijóst fyrir hvaða
framboð hægt verður að kjósa
um 29. maí næstkomandi.
Þó er ljóst að Framsóknar-
flokkur, Sjálfstæðisflokkur og
Vestmannaeyjalistinn muni bjóða
fram en þessir tveir listar mynda
bæjarstjóm í dag þar sem Sjálf-
stæðismenn eru með íjóra bæjar-
fulltrúa en Vestmannaeyjalistinn
þrjá. Samfylkingin, Vinstri-
Grænir og óháðir standa að
Vestmannaeyjalistanum.
Þeir sem kjósa utankjörfundar
áður en framboðslistar liggja
fyrir, verða því í raun að giska á
hvaða framboð verða í boði.
Kosningin fer þannig fram að
kjósandi stimplar eða skrifar
bókstaf þess lista sem hann ætlar
að kjósa.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá Sýslumannsemb-
ættinu í Vestmannaeyjum getur
kjósandi, sem kosið hefur fram-
boð sem ekki býður fram, breytt
atkvæði sínu og kosið upp á nýtt.
Eins og áður sagði rennur frestur
til að skila inn framboðslista út
8. maí næstkomandi. Hægt er að
kjósa utankjörfundar hjá öllum
sýslumönnum á landinu.
Hún varð nokkuð dýr soðn-
ingin í humar og skötusel
-Dæmdur í 600 þús. kr. sekt fyrir að taka of mikið í soðið af afla
BROTIÐ fólst m.a. í því að hinn ákærði hefði Iandað framhjá vigt 243 kg af slitnum humri og 20 kg af
slægðum skötusel.
í vikunni var kveðinn upp dómur í
Héraðsdómi Suðurlands sem ákæru-
valdið, sýslumaðurinn í Vestmanna-
eyjum, höfðaði gegn skipstjóra og
útgerðarmanni humarbáts í Vest-
mannaeyjum, vegna brota á lögum
um umgengni um nytjastofna sjávar.
Brotið var framið í júní 2008, í lok
humarúthalds skipsins og fólst í því
að hinn ákærði hefði landað framhjá
vigt 243 kg af slitnum humri og 20
kg af slægðum skötusel, sem fund-
ust í bifreið útgerðarinnar. Fram
kom að þetta hefði verið umframafli
úr síðasta togi úthaldsins og hefði
áhöfnin hirt hann í stað þess að
kasta honum í sjóinn. Að auki fund-
ust í frystigeymslu útgerðarinnar
256 kg af slitnum humri sem
samkvæmt framburði hins ákærða
var meðafli er hefði fengist við
veiðar í fiskitroll, fyrr á árinu.
Hvorki humarinn né skötuselurinn
höfðu verið skráð í afladagbók
skipsins og laut ákæran því bæði að
löndun framhjá vigt og þeirri van-
skráningu.
Réttur til að taka í soðið?
Akærði hélt því fram að humarinn
og skötuselurinn væri hluti af hinum
venjuhelgaða rétti áhafnar, að taka
sér í soðið. Dómkvaddur matsmað-
ur tók undir það en taldi að eðlilegt
væri að slík soðning skipverja á
humarbát væri eitt til tvö kíló af
humri í veiðiferð. Aftur á móti þætti
heill innkaupapoki yfir viðmiðunar-
mörkum.
í dómsorði er kveðið á um að það
magn af humri sem þarna var um að
ræða, eða rétt um hálft tonn af slitn-
um humri, sé langt yfir þeim við-
miðunarmörkum sem eðlilegt sé að
miða við þegar skipverjar taka sér í
soðið og var ákærði, skipstjóri og
útgerðarmaður skipsins, dæmdur til
sektarureiðslu að upphæð 600
þúsund kr. og til greiðslu helmings
sakarkostnaðar, þar með talin laun
verjanda hans, kr. 350 þúsund kr.
Hjörtur O. Aðalsteinsson, héraðs-
dómari, kvað upp dóminn. Sam-
kvæmt honum er Ijóst að þama er
um að ræða einhverja dýrkeyptustu
soðningu sem tekin hefur verið á
fískiskipi á Islandi.
Huginn VE
með mestan
kvóta í
makríl
Sjávarútvegsráðherra hefur heimilað
íslenskum
skipum að
veiða 130 þús-
und tonn af
makrfl í sumar.
Aflareynsla þriggja ára er lögð til
grundvallar við veiðar á 112.000
tonnum, 3000 tonn fá skip sem
hyggja á veiðar á línu eða handfæri,
í net eða gildrur og loks er 15.000
tonnum úthlutað til skipa án
veiðireynslu.
Skip Isfélags og Vinnslustöðvar og
Huginn VE fá úthlutað kvóta í
makrfl. Fiskistofa hefur enn ekki
gefið út kvóta í makríl en samkvæmt
útreikningum Morgunblaðsins fær
Huginn VE hæsta kvótann yfir
landið, 7,42% af heildaraflanum og
koma samkvæmt því um 8.300 tonn
í hlut Huginsmanna.
Viðmiðunarárin eru þrjú og á þeim
kom Margrét EA með um 16.600
tonn af makrfl að landi, sem gera
6,93% eða um 7.760 lestir. Börkur
NK fær samkvæmt þessum útreikn-
ingum 6,47% af makrílkvóta upp-
sjávarskipa eða um 7.250 tonn,
Ingunn fær 5,96% eða um 6.575
tonn og Jón Kjartansson um 5,41%
eða 6.060 tonn.
Þegar litið er á einstök ár má sjá að
2007 var Júpiter með mestan
makrflafla eða tæplega 4.400 tonn,
Margrét var með 3.914 tonn og
Huginn með 3.573 tonn. Árið 2008
var Ingunn aflahæst með 9.400 tonn,
Huginn var með 9.300 tonn og
Margrét með 7.773 tonn að því er
kemur fram í Morgunblaðinu.
Þrír Eyjamenn á íslandsmótinu í vaxtarrækt og fit-ness:
ívar Örn náðí þriðja sætinu
Þrír Vestmannaeyingar kepptu á
íslandsmótinu í vaxtarrækt og
fit-ness sem fór fram á Akureyri
um síðustu helgi. Bestum áran-
gri náði Ivar Orn Bergsson sem
náði þriðja sæti í sínum flokki.
Auk ívars Arnar tóku
Eyjakonurnar Sigurlína
Guðjónsdóttir og Jóhanna Björk
Gylfadóttir þátt í mótinu. ÖIl
stóðu þau sig með prýði og Ivar
Örn komst á verðlaunapall því
hann varð í þriðja sæti í vaxtar-
rækt karla í plús 90 kílóa flokki.
Sigurvegari í þeim flokki var
Magnús Bess Júlíusson
margfaldur Islandsmcistari f
vaxtarrækt og heildarsigurveg-
ari í vaxtarrækt karla á mótinu.
„Eg er mjög sáttur og það er
mjög gaman að taka þátt í
þessu. Þetta er þriðja mótið í
vaxtarrækt sem ég keppi á,“
sagði ívar Örn og neitaði því
ekki að það kostaði mikla vinnu
að æfa fyrir slíkt mót.
Keppendur þurfa að huga að
mataræði 10 vikum fyrir mót og
þá borða þeir oftar og öðruvísi
fæði en venjulega. „Jú, ég stefni
á að keppa í nóvember,“ sagði
Ivar þegar hann var spurður
hvort hann ætlaði að halda
áfram. „Eg fæ ótrúlegan stuðn-
ing frá fjölskyldunni og æfi og
stefni á að keppa áfram,“ sagði
Ivar sem má líka vera ánægður
með árangurinn.
Hrikalegur Mynd Jónas
Hallgrímsson.