Fréttir - Eyjafréttir - 08.04.2010, Side 7
Fréttir / Fimmtudagur 8. aprfl 2010
7
Golfklúbbur Vestmannaeyja - Styttist í að golfvertíðin hefjist
í athugun að opna allan völlinn
fyrr en venjulega að þessu sinni
- segir Elsa Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri GV
Óhætt er að segja að talsverður
vorhugur sé kominn í kylfinga í
Vestmannaeyjum enda styttist í að
golftímabilið hefjist fyrir alvöru.
Raunar eru þeir hörðustu búnir að
spila í allan vetur, ef frá er talinn
stuttur snjóakafli fyrr í vetur.
Elsa Valgeirsdóttir, framkvæmda-
stjóri Golfklúbbsins, segir að ætl-
unin hafi verið að hafa golfmót á
dagskrá um páskana en vegna
slæmrar veðurspár fyrir laugar-
daginn hafi verið horfið frá því.
„Við vomm líka með á dagskránni
að hafa mót á laugardaginn kemur
en það er eins með það, veðurspáin
er ekki sérlega hagstæð fyrir þann
dag svo óvíst er að verði af því.“
Vallarstarfsmenn em byrjaðir að
vinna að undirbúningi þess að opna
allan völlinn en yfir vetrartímann
em aðeins tólf brautir af átján opnar
fyrir spilamennsku. Brautunum sex,
sem liggja næst sjónum, er hlíft
enda eru þær viðkvæmastar. Hingað
til hefur verið miðað við að opna
allan völlinn í maíbyrjun en Elsa
segir í athugun að opna fyrr að þessu
sinni, þar sem tíðarfar hafi verið
fremur hagstætt í vetur og völlurinn
virðist í góðu ásigkomulagi.
„Fyrstu alvörumótin verða þó ekki
fyrr en í maí. Það er mikið búið að
hringja og bóka rástíma bæði í apríl
og maí af fólki ofan af landi, bæði
einstaklingar og sérstaklega þó
hópar. Fólk á fastalandinu veit að
völlurinn hér er alltaf með fyrstu
völlum á landinu til að verða klár í
spilamennsku og nýtir sér það
meðan enn er lokað á öðmm völl-
um.“
Elsa segir að þann 15. maí verði
farið af stað með nokkuð sérstakt
mót sem ber hið undarlega nafn
Karlremba. „Jú, þetta er karlamót,
eins og nafnið gefur til kynna, svona
eins konar mótvægi við Hatta- og
kjólamótið sem haldið hefur verið á
hverju sumri og er kvennamót.
Þarna verða spilaðar 27 holur í
liðakeppni þar sem tveir em saman í
liði, fyrst níu holur í Texas
Scramble, þá níu holur í foursome
og svo níu holur í tvímenningi. Það
verður gaman að sjá hvemig þetta
kemur út, þetta var hugsað sem
innanfélagsmót en menn eru þegar
byrjaðir að hringja ofan af landi og
spyrja hvort þeir megi vera með,
þannig að áhuginn virðist vera til
staðar," sagði Elsa að lokum
Gamall draumur að verða að veruleika
-segir Hólmgeir Austfjörð í Topppizzum, sem ásamt eiginkonu sinni
hyggst opna nýjan grillstað við Vestmannabrautina í sumar
Gamla skóbúðin, að Vestmanna-
braut 23, fær brátt nýtt hlutverk því
að þau hjón, Hólmgeir Austfjörð og
Jóhanna Inga Jónsdóttir, sem rekið
hafa pizzustaðinn Topppizzur að
Heiðarvegi 10, hafa keypt húsnæðið
og ætla að opna þar grillhús í sumar.
„Við eram að vinna á fullu í að
koma húsnæðinu í stand, fjórir
smiðir í vinnu eins og er og væntan-
lega bætast svo fleiri iðnaðarmenn í
hópinn þegar á líður" sagði Hólm-
geir.
„Reyndar áttum við von á að þurfa
að lagfæra mun meira en raunin
hefur verið. Það vora einhverjir sem
reyndu að telja okkur ofan af því að
kaupa húsið, sögðu þetta ónýtan
fúahjall, en annað hefur komið í
ljós, húsið er í mjög góðu standi og
ekki ein einasta fúaspýta í því. Þetta
hefur greinilega verið vel byggt í
upphafí."
Hólmgeir segir að fyrstu áætlanir
hafi miðað að því að opna nýja stað-
inn fyrir sjómannadag. „En það er
engin pressa á okkur með þá dag-
setningu, það hefur allt sinn tíma og
við viljum vanda til verka frekar en
að fara að opna á einhverjum
ákveðnum degi með hlutina hálf-
karaða. Það getur því allt eins verið
að við opnum eitthvað seinna og við
höfum engar áhyggjur af því. Við
eram með hinn staðinn, á Heiðar-
veginum, í fullum rekstri og verðum
alveg þar til við opnum á nýja
staðnum.
Nýi staðurinn við Vestmanna-
brautina verður meira en bara pizzu-
staður að sögn Hólmgeirs. „Þetta
verður grillhús og allt þar að hafa
sem hugurinn gimist. Auðvitað
verða pizzumar áfram í boði, í sama
gæðaflokki og þær hafa verið hjá
okkur hingað til og áfram undir
sama nafni, Topppizzur. En sjálfur
staðurinn fær nýtt nafn. Reyndar
eram við búin að ákveða það en það
HÓLMGEIR: Þetta verður grillhús og allt þar að hafa sem hugurinn girnist. Auðvitað verða pizzurnar
áfram í boði, í sama gæðaflokki og þær hafa verið hjá okkur hingað til og áfram undir sama nafni,
Topppizzur.
verður ekki gefið upp fyrr en við
opnum, fólk verður bara að bíða í
smáspennu eftir því,“ segir Hólm-
geir og bætir við að fólk virðist vera
spennt fyrir þessu framtaki þeirra.
„Ég hef alla vega ekki fengið
annað en jákvæð viðbrögð við þessu
og við ætlum að sjálfsögðu að reyna
að standa undir væntingum. Raunar
þarf margt að ganga upp í þessu
dæmi og þessa dagana erum við að
leita okkur að tækjum og tólum sem
þarf fyrir rekstur eins og þennan.
Þetta er eitthvað sem ég er búinn að
ganga með í maganum, ég held frá
því að ég var átta ára gutti, að opna
mitt eigið grillhús, og nú má
kannski segja að gamall draumur sé
að verða að veruleika,“ sagði
Hólmgeir að lokum.
Lyf og heilsa í Baldurshaga
Lyf og heilsa flytja í nýtt versl-
unarhúsnæði í Baldurshaga í
sumar. Hildur Steingríms-
dóttir, lyfjafræðingur, sagði
miklu skipta að verslunar-
rýmið er tæplcga helmingi
stærra en húsnæðið við
Strandveg.
„Það er meginástæðan fyrir
því að við flytjum því það
hefur verið heldur þröngt um
okkur enda mikið að gera.Við verðum með betra vöruúrval,
afgreiðslan stærri og allt rýmra. Eg vonast til þess að við getum
flutt í júlí en þori ekki að nefna dagsetningu,“ sagði Hildur en sjö
starfsmenn, sumir í hlutastörfum, starfa hjá Lyfjum og heilsu í
Vestmannaeyjum.
í mörg horn að líta hjá
lögreglu í síðustu viku:
Tvær lík-
amsárásir
Það var í mörg horn að líta hjá
lögreglu í sl. viku og um páska-
helgina, enda töluvert um
skemmtanir á skemmtistöðum
bæjarins.
Nokkuð var um pústra á og við
skemmtistaði og vora tvær lík-
amsárásir kærðar til lögreglu. Þá
var eitthvað um kvartanir vegna
hávaða í heimahúsum auk þess
sem aðstoða þurfti fólk vegna
hinna ýmsu atvika sem upp komu
og tengdust ölvunarástandi þess.
Tvær líkamsárásir voru kærðar
til lögreglu eftir páskahelgina og
var í báðum tilvikum urn minni
háttar áverka að ræða. Báðar
árásimar áttu sér stað aðfaranótt
3. aprfl sl., önnur í Höllinni þar
sem dyravörður var sleginn af
gesti staðarins.
Hin átti sér stað við heimahús í
Áshamri og var árásarmaðurinn
handtekinn og fékk gistingu í
fangageymslu lögreglustöðvar-
innar þar til hann var hæfur til
skýrslutöku. Sami aðili mun hafa
skemmt bíla fyrir utan sama hús.
Verkfærum,
bjór og
sterku stolið
Á miðvikudaginn í síðustu viku
var lögreglu tilkynnt um þjófnað
á verkfærum og smáhlutum frá
Gisithúsinu Hamri.
Sama dag var tilkynnt um
innbrot á Pizza 67 en þaðan var
stolið bjór, sterku áfengi og
peningum. Ekki er vitað hver eða
hverjir þarna vora að verki en
granur leikur á að einn og hinn
sami hafí verið að verki.
Biður lögreglan þá sem ein-
hverjar upplýsingar hafa um
hugsanlega gerendur í þessum
tveimur tilvikum að hafa sam-
band.
Fjórtán brot
í umferðinni
Alls liggja fyrir 14 kærar vegna
brota á umferðarlögum eftir
síðustu viku.
Þar af voru fjórir stöðvaðir
vegna hraðaksturs, fimm fyrir að
tala í farsíma í akstri án hand-
frjáls búnaðar og einn fyrir að aka
án þess að hafa öryggisbeltið
spennt.
Þá vora tveir drengir stöðvaðir á
torfæruhjólum á Fellavegi en
báðir voru þeir réttindalausir auk
þess sem hjólin vora óskráð.