Fréttir - Eyjafréttir - 08.04.2010, Page 8
8
Frcttir / Fimmtudagur 8. apríl 2010
Kynslóðaskipti hjá Skátafélaginu Faxa - Páll Zóphoníasson hættir
S'
Eg held að skátastarfið eigi
eftir að blómstra
-segir Alma, nýr félagsforingi Skátafélagsins Faxa
Alma Eðvaldsdóttir er nýr félags-
foringi Skátafélagsins Faxa og
tekur við af Páli Zóphóníassyni
sem hefur gengt stöðunni í 24 ár.
Alma gekk til liðs við skátahreyf-
nguna þegar hún var níu ára gömul
og bjó þá í Hafnarfirði en ári seinna
flutti fjölskyldan til Vestmannaeyja.
„Ég gekk í skátana 1986, var fyrst
í Hraunbúum í Hafnarfirði og ári
seinna gekk ég til liðs við Skáta-
félagið Faxa. Ég starfaði með Faxa
frá 1987 til 1995 en þá fór ég til
Svíþjóðar og vann þar sem au pair í
níu mánuði. Ég staldraði stutt við
heima því eftir tvo mánuði lá
leiðin til Noregs þar sem ég var í
átta mánuði. Eftir það lá leið mín
til Reykjavíkur þar sem ég bjó til
ársins 2002 og fór að vinna á
skemmtiferðaskipi sem sigldi víða
um heim. Ég var þar í þrjá mánuði
og flutti aftur til Éyja í framhald-
inu.“ segir Alma þegar hún er spurð
út í skátastarfið og aðdraganda þess
að hún er nú félagsforingi skáta-
hreyfingarinnar í Eyjum.
Gengur út á að gera
krakkana sjálfstæða
Eftir ævintýrið á skemmtiferða-
skipinu heillaði Leikfélag Vest-
mannaeyja og kom Alma að starf-
semi félagsins með afgerandi hætti.
Hún hefur sjálf staðið á sviðinu í
uppfærslum, tók að sér stjórnarsetu
í félaginu, leikstýrði og skrifaði
leikritið Rokkubusku sem vakti
mikla athygli á síðasta ári. „Ég
verð eitthvað við leikhúsið áfram
og ætla t.d. að starfa með Sólar-
geislum Ægis sem er sjálfstæður
leikhópur og starfar innan íþrótta-
félagsins Ægis.
Ég mun hins vegar fyrst og
fremst einbeita mér að skátastarfinu
sem er bæði skemmtilegt og
gefandi. Ég var í skátastarfi öll mín
unglingsár og kom aftur til starfa í
skátahreyfingunni 2003 en varð þá
að hætta vegna veikinda.
Ég hef gaman að starfi með börn-
um og ungu fólki, útiveran er
heillandi og allt sem tengist skáta-
starfi," segir Alma og bætir því við
að hún sé aldeilis ekki ein um að
stjórna starfinu því fimm manna
stjórn skipuleggi skátastarfið hjá
Faxa.
„Skátastarfið gengur út á að gera
krakkana sjálfstæða og kenna þeim
að bjarga sér hvort sem er úti í nátt-
úrunni eða í lífmu sjálfu. Þannig
byggir sá sem starfar með skát-
unum upp sjálfstraust sem nýtist á
öðrum veltvangi. Skátastarf er í
raun svolítið hefðbundið, verk-
efnavinna, útivera, fjallgöngur og
útilegur eru okkar aðalsmerki."
Aðalstarfið er á veturna
Hvernig gengur aðfá fólk til þess
að leiða starfið?
„Við eigum mikið af reynslumiklu
fólki sem við getum alltaf kallað í
ef eitthvað er um að vera og á þarf
að halda. Enda eru einkunnarorð
skátahreyfingarinnar: Ávallt við-
búin. Nú eru um 45 krakkar í
skátunum og svo erum við með
þrjá sveitarforingja með mikla
reynslu sem hafa verið öflugir og
haldið starfmu gangandi. Tveir af
þessum foringjum flytja til Reykja-
víkur næsta haust og nú vinnum
við að því að fá eldri skáta til liðs
við okkur og það gengur ágætlega.
Aðalstarfið er á veturna, og eru
fundir einu sinni í viku, á fundum
eru ýmis verkefni leyst, farið er í
alls kyns leiki og krökkunum kennt
margt, t.d. að binda hnúta, skyndi-
hjálp, rötun og ýmislegt sem getur
nýst í framtíðinni. Síðan erum við
mjög heppin að eiga Skátastykkið
sem hefur verið nýtt fyrir útilegur
og aðra skemmtilega viðburði, og
svo förum við á skátamót á sumrin.
Það eru mörg mót haldin á hverju
sumri og þá er að velja og hafna.
Mér fannst alltaf jafn gaman að
skátastarfi sem barn og unglingur
og ég held að stundum hafi ég
verið meira uppi í skátaheimili en
heima hjá mér. Ég kynntist krökk-
um sem voru í starfinu með mér og
svo fórum við á Ulfljótsvatn þar
sem við hittum krakka víðs vegar
af landinu. Við fórum líka á skáta-
mót og þar kynntumst við líka fólki
þannig að starfið er mjög mikilvægt
enda er því ætlað að auka skilning
og efla félagsleg tengsl milli fólks.“
Vil virkja eldri skáta
Er þetta fólk ennþá starfandi með
hreyfingunni?
„Já, það er fullt af fólki sem ég
kynntist hér áður og er ennþá starf-
andi. Ég var á skátaþingi um
miðjan mars og þar var fólk á
öllum aldri, alveg upp í áttrætt og
allt á fullu í skátastarfi. Eitt sinn
skáti ávallt skáti,“ segir Alma
hressilega og heldur áfram. „Ég hef
mikinn áhuga á að virkja eldri skáta
og fá þá inn í starfið. Það getur
verið gaman fyrir þá að hittast
reglulega, t.d. einu sinni mánuði.
Það væri heldur ekki ónýtt ef ein-
hver þeirra vildi koma inn sem
sveitarforingi enda afar mikilvægt
að fá inn fólk með reynslu og
þekkingu.“
Alma hefur mikla trú á öllu sem
tengist skátastarfi og sjálf er hún að
bæta við sig þekkingu. „Ég er að
fara í Gilwell námskeið sem er
æðsta foringjaþjálfun innan skáta-
hreyfingarinnar og tekur eitt ár að
vinna. Ég byrja í ágúsl og skátar
sem sækja þetta námskeið eru á
öllum aldri. Við vinnum mikla
verkefnavinnu heima og skráum
dagbók yfir heilt starfsár ásamt
helgamámskeiðum sem við þurfum
að sækja. Gilwell námskeiðið er
hálfgerð endastöð í foringjaþjálfun
skáta, þeir sem sitja það hafa sótt
öll önnur námskeið sem eru í boði
og allir sem ljúka náminu fá
sérstakan klút sem sýnir að þeir
hafa lokið því.“
Ertu bjartsýn fyrir hönd Faxa?
„Ég held að skátastarfið eigi eftir
að blómstra.Við ætlum að leggja
meiri áherslu á göngur, útilegur og
útiveru en verið hefur. Þetta verður
skemmtilegt starf sem ég hlakka til
að takast á við,“ sagði Alma og
verður örugglega með góða skapið
í farteskinu eins og endranær.
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir.
SKÁTAHÖFÐINGINN og félags-
foringinn ásamt sveitarforingjum
hjá Faxa. Frá vinstri: Guðrún
María Guðbjörnsdóttir, sveitar-
foringi, Bragi Björnsson, ská-
tahöfðingi, Páli Zóphoníasson,
fráfarandi félagsforingi og
Sigurleif Kristmannsdóttir,
sveitarforingi.
. í
FÉLAGSFORINGJAR fyrr og nú. Vigdís Rafnsdóttir, sem var félagsforingi frá 1976 til 1986 en |