Fréttir - Eyjafréttir - 08.04.2010, Side 12
12
Fréttir / Fimmtudagur 8. apríl 2010
Oskar Pétur, ljósmyndari, sá nýtt gos verða til á Fimmvörðuhálsi og segir það einsta
Eg veit ekki hvort þarna hafi ég komist
-Frammi fyrir þessu sjónarspili náttúrunnar færðist yfir mann ró og gleði yfir því að i
Það var í síðustu viku að Óskar
Pétur Friðriksson, ljósmyndari, hélt
að gosstöðvunum á Fimmvörðu-
hálsi. Hann fór báðum megin að
gosinu. Gekk á þriðjudeginum á
Morrisheiði úr Þórsmörk og sá
hraunfossana sem renna í átt að
Mörkinni. En ævintýrið átti eftir að
verða meira því hann var aftur
mættur að gosstöðvunum daginn
eftir og hafði farið Fimmvörðuháls
frá Skógum. Þá varð hann einn
þeirra sem sáu nýja gossprungu
opnast sem Óskar Pétur segir
ógleymanlega stund.
„A þriðjudeginum fór ég inn í
Þórsmörk með Grétari syni mínum
sem beið meðan ég gekk á Morris-
heiðina sem var í allt fimm klukku-
stunda ganga, þrír upp og tveir
niður. Ansi glannaleg ganga, ekki
síst Kattarhryggimir og upp á
Utgönguhöfða en veðrið var ynd-
islegt. Þegar upp á Morrisheiðina
var komið blasti við hvar hraunið
hefur runnið niður gilin tvö,
Hvannárgil þar sem hraunið var á
fullu en í Hrunagili hafði það
stoppað. Maður sá gríðarlega mikið
hraun og kom manni á óvart hvað
óhemjumikið magnið var. Skyggni
mjög gott og margt um manninn og
sumir m.a.s. á reiðhjólum, einir sex
eða sjö. Ég talaði við fólk sem var
gjörsamlega bergnumið og margt
að sjá eldgos í fyrsta skipti. Ég var
þama þar til sólin var að hverfa við
sjóndeildarhringinn og þá var þetta
mikið sjónarspil. Á leiðinni niður
sást roðinn frá gosinu í gegnum
gufuna sem gerði þetta ótrúlega
magnað.“
Óskar segir að á leiðinni niður
hafi hann náð að fylgjast með gos-
inu en þá var ennþá stanslaus
straumur fólks upp á Morrisheiðina
og allir vildu fá að vita hvemig
þetta væri.
Á miðvikudeginum hélt Óskar
Pétur upp frá Skógum með frænd-
um sínum, Gísla Jóhannesi
Óskarssyni, Guðjóni syni hans og
Söndru Vatnsdal, unnustu Guðjóns.
Þau fóm upp á Pajerojeppa, lítið
breyttum, og gekk vel miðað við
GUÐJÓN og Sandra við eldstöðvarnar. Nýa fellið til hægri og sprungan sem þau sáu opnast til vinstri. niður Hvannárgil, séð frá
Morrisheiði.
NÝ ELDSTÖÐ verður til. Þarna er gossprungan að byrja að opnast og fyrstu strókarnir að rísa. ÚTSÝNI frá Morrisheiði.