Fréttir - Eyjafréttir - 08.04.2010, Síða 13
Fréttir / Fimmtudagur 8. aprfl 2010
13
;a upplifun:
í hóp útvalinna
þetta tækifæri
aðstæður en keyra varð mjög ró-
lega. Tók ferðin um klukkutíma en
þá voru þeir komnir að öðrum
skálanum og þaðan gengu þau um
klukkutíma að gosstöðvunum.
„Það var alveg stórfenglegt að
koma þarna að gosinu og sló mann
hvað drunumar eru miklar. Við
byrjuðum á að koma okkur fyrir og
mynda þetta og löbbuðum með
hraunkantinum, alveg að því þar
sem hraunið rennur niður í Hmna-
gil. Sáum hrauná renna niður eftir
hrauninu sem rann nokkuð hratt
yfir. A einum stað sáum við hvar
hraunkanturinn opnaðist allt í einu
og byrjaði að hrynja mikið úr
honum. Þama notuðum við tæki-
færið til að skipuleggja tökur fyrir
kvöldið."
Veðrið var stillt og bjart en kalt,
frostið um tíu stig. Þama var margt
fólk og endalaust flug rétt yfir
hausunum á fólkinu. „Lá við að
maður gæti teygt sig í þyrlumar
þegar þær renndu sér yfir svæðið.
Þetta minnti okkur að öllu leyti á
Heimaeyjargosið og fellið sem
þama er risið er alveg eins og
Eldfellið okkar. Það kom mér samt
mest á óvart hvað mikill massi var
kominn upp á þessum tíu dögum
frá því gosið hafði staðið. Fólk var
líka að upplifa þetta mjög sterkt og
þetta er eitthvað sem ég hefði aldrei
í lífinu viljað missa af,“ sagði
Oskar sem nú beið myrkurs ásamt
félögum sínum.
„Við sátum utan í hól suðaustur af
nýja fellinu þar sem við fengum
okkur nesti og biðum eftir því að
sólin settist og færi að dimma. Þá
sest þyrla um 20 m frá okkur uppi á
hólnum. Fólk úr henni fór að
mynda gosið þegar þyrluflug-
maðurinn kemur til okkar og segir
að það sé eitthvað að gerast hinunt
megin við fellið. Allan daginn hafði
ég verið með verk í nára og átti
ekki auðvelt með gang en þama
hvarf hann og hlutirnir tóku að
gerast hratt. Við fórum af stað og
komum okkur fyrir uppi á hraun-
kantinum sem var mjög heitur.
Fyrstu myndina tek ég tólf mínútur
yfir sjö og við fórum koma því
áleiðis hvað var að gerast. Hringdi
ég í Fréttablaðið og Eyjafréttir og
náði að senda mynd úr símanum
mínum og var hún komin inn á
HJÓLREIÐAKAPPAR á Morrisheiði.
Visir.is 15 mínútur yfir sjö þar sem
sést hvar sprungan er að opnast. Þá
voru gossúlumar um tveir og hálfur
metri. Þetta byrjaði eins og hver og
varð eins og fæðing þegar gos-
strókamir byrjuðu að koma upp
hver af öðrum. Sprungan gæti hafa
verið 150 til 200 metra löng. Ég var
; mjög upptekinn við að mynda, var
á fullu og ætlaði að reyna að
komast nær. Var þá stoppaður af
björgunarsveitarmönnum en komst
þá upp á annan hól þar sem sást vel
yfir gosið. Þama sáum ekki alveg
upphafíð að nýja gosinu en gátum
fylgst með hvar reykjarbólstrar
urðu að fullburða gosi. Og það sem
kom manni á óvart var að gosið í
nýja fellinu bætti í frekar en hitt.
Þvert á það sem maður hélt að
myndi gerast með nýju sprungunni.
Ég hélt áfram að mynda og tók á
fimmta hundrað myndir á þeim
tveimur tfmum sem ég stoppaði
þama. Var maður alveg bergnuminn
að fylgjast með þessu í ljósaskipt-
unum þar sem gufan spilaði líka
stórt hlutverk. A þessum tíma var
þyrla Landhelgisgæslunnar byrjuð
t að tína fólk upp af Morrisheiðinni
og koma því í burtu. Við fengum að
vera töluvert lengur af því að við
vorum blaðamenn og vorum með
þeim síðustu sem var keyrt í burtu.“
i Gerðuð þið ykkur grein fyrir hvað
var að gerast? „Já. Við gerðum
okkur grein fyrir því að þarna hafði
maður upplifað eitthvað sem ekki
f margir hafa gert í veraldarsögunni.
Ég veit ekki hvort þama hafi ég
komist í hóp útvalinna en frammi
fyrir þessu sjónarspili náttúrunnar
á færðist yfir mann ró og gleði yfir
því að fá þetta tækifæri."
Óskar Pétur segir að það hafi ekki
verið alveg án trega sem þau fóru
en þeim var gert að yfirgefa
svæðið. „Við ætluðum að vera
lengur og það var sárgrætilegt að
þurfa að fara burtu því eftir því sem
leið á kvöldið varð krafturinn meiri
og sjónarspilið stórkostlegra. En
við urðum að hlýða eins og aðrir en
svona tækifæri fær maður held ég
bara einu sinni í lífinu. Fyrir það er
ég mjög þakklátur. Ferðin gekk vel
enda við vel búin til að mæta
hverju sem var,“ sagði Óskar að
endingu en ljósmyndir úr ferðinni
má sjá hér á síðunni.
GÍSLI, Guðjón og Sandra við eldstöðvarnar.
Dýpkun Landeyjahafnar hófst um helgina
Framkvæmdir í Landeyjahöfn ganga vel en um páskana var byrjað að dýpka höfnina. Það er
dýpkunarskipið Perla, sem er í eigu fyrirtækisins Björgunar hf., sem vinnur verkið en bæði þarf að dýpka
innsiglingarrennuna og sjálft hafnarsvæðið. Heimahöfn Perlu er í Vestmannaeyjum en þar er samhliða
unnið að dýpkun Vestmannaeyjahafnar.
Myndina tók Óskar Pétur
Landeyj ahöfn
sem flutningaleiðir til og frá Aust-
fjörðum og allt vestur á Reykjanes
gætu styst verulega. Auknir vöru-
flutningar með Herjólfi og aukin
útskipun í Eyjum gætu leitt af sér
aukna ferðatíðni og aukin umsvif í
Vestmannaeyjahöfn og þar með
treyst samgöngur til Eyja og aukið
atvinnu. Aftur gætu Rangæingar
notið góðs af, t.d. með vöru-
geymslum og annarri umsýslu, þar
sem nægt landrými er til staðar.
En á þessum tímamótum þurfum
við að hugsa stórt. Við þurfum að
kanna til hlítar alla möguleika í
nýtingu hinnar nýju hafnar og þeirra
tækifæra sem hún býður upp á. I
síðustu viku lögðu þingmenn Fram-
sóknarflokksins fram tillögu til
þingsályktunar um að kannaðir
verði möguleikar á ferjusiglingum
milli Vestmannaeyja og Bretlands.
Ætlunin er að kanna forsendur þess
að flytja vörur og ferðamenn beint
milli Eyja og Evrópu á svipaðan hátt
og gert er með Norrænu milli Seyð-
isfjarðar og Danmerkur. Með
slfkum ferjusiglingum væri hægt að
stórauka straum ferðamanna, inn-
lendra sem erlendra, um Vest-
mannaeyjar og Suðurland, auk þess
sem nýir möguleikar opnast í út-
flutningi frá Eyjum og Suðurlandinu
öllu.
Fyrirkomulag slíkra siglinga má
hugsa sér á margan hátt. Þannig
gætu útgerðarfyrirtæki í Eyjum átt
samstarf við ferðaþjónustuaðila í
Eyjum og á Suðurlandi öllu um
rekstur slíkrar ferju, eða samið við
skipafélög, innlend eða erlend um
reksturinn. Hægt væri að leggja
áherslu á flutning ferðamanna yfir
sumarið, en aukinn hlut frakt-
flutninga yfir vetrartímann.
Afangastaðir á Bretlandseyjum
gætu þannig ráðist af árstíma og
áherslu á ferðamenn eða frakt.
Itarleg hagkvæmniathugun á borð
við þá sem Framsóknarmenn leggja
til er forsenda þess að farið verði af
stað í slfkt verkefni. Mikil vinna er
framundan, en ávinningurinn getur
verið gríðarlegur í sköpun starfa,
aukinni hagkvæmni í flutningum og
stóraukinni ferðaþjónustu.
Nauðsynlegt er að allir þeir sem
hagsmuna eiga að gæta, út- og inn-
flytjendur, ferðaþjónustuaðilar og
sveitarfélög komi að þessari vinnu,
sem og skipafélög og aðrir hugsan-
legir rekstraraðilar. Ríkið getur leik-
ið stórt hlutverk við að koma þessari
vinnu af stað, en skipulag og
framkvæmd verður að vera í
höndum heimamanna.
Mikilvægi samvinnu einstaklinga,
fyrirtækja og sveitarfélaga í Vest-
ntannaeyjum, Rangárþingi og á
Suðurlandi öllu hefur aldrei verið
meira en einmitt nú, því santvinnan
er afl hinna smáu og með sam-
vinnunni eru okkur allar leiðir færar.
Sigurður E. Vilhelmsson
formaður Framsóknarfélags
Vestmannaeyja
Með opnun
Landeyjahafnar í
sumar verður
bylting í sam-
göngumálum
Éyjamanna. Til
þessa hafa menn
einkum einblínt
á þær breytingar
sem hin nýja
siglingaleið hef-
ur á þá sem
þegar ferðast milli lands og Eyja.
Breytingarnar sem verða með hinni
nýju höfn eru hins vegar miklu
víðtækari. Nýir möguleikar opnast í
flutningum á fólki og farmi og ef við
höldum rétt á spilunum geta Vest-
mannaeyjar öðlast nýtt hlutverk sem
hlið Islands að umheiminum.
Með höfn í Bakkafjöru getum við
reynt að breyta ferðamynstri farþega
skemmtiferðaskipa. Nú eru Eyjamar
aðeins viðkomustaður á leið til
Reykjavíkur, þaðan sem farið er í
útsýnisferðir um Suðurland. Ný
höfn á miðju Suðurlandi getur gert
Vestmannaeyjar að upphafsstað
slfkra ferða, þar sem farþegar koma
í land í Eyjum, fara með Herjólfi
upp í Bakkafjöru og áfram að Gull-
fossi og Geysi, austur á Skóga eða í
Skaftafell, á meðan skipin sigla til
Reykjavíkur. Slfkt yrði ekki aðeins
til mikilla hagsbóta fyrir ferða-
þjónustuna í Vestmannaeyjum, held-
ur munu Rangæingar njóta góðs af
aukinni umferð ferðamanna um
svæðið.
Vöruflutningar um Vestmanna-
eyjahöfn geta einnig stóraukist, þar
Sigurður E. Vilhelmsson, formaður Framsóknarfélags Vm:
Nýir tímar með