Fréttir - Eyjafréttir - 08.04.2010, Side 14
14
Fréttir / Fimmtudagur 8. apríl 2010
GÖNGUGARPAR á Heimaklctti Már Jónsson, Svavar Steingrímsson og Haildór Halldórsson.
Eyjamenn nýttu góða veðrið til útivistar og gönguferða:
Alls fóru 114 á Heimaklett á páskadag
Eyjamar skörtuðu sínu fegursta um
páskahelgina og margir notuðu
tækifærið til útivistar og göngu-
ferða. Á páskadag mátti sjá fólk á
göngu um nær alla eyju, hvort sem
var á götum bæjarins eða á hæstu
fjallatindum. Það má því segja að
Vestmannaeyingar hafi nýtt bæði
tímann og veðrið til að efla líkama
og sál.
Fjöldi manns gekk á Heimaklett,
þar var fólk á ferðinni alla helgina.
Svavar Steingrímsson, göngu-
garpur, tók saman hversu margir
skráðu sig í gestabókina á toppnum
og það vom hvorki fleiri né færri
en 180 manns sem lögðu leið sína á
Heimaklett þessa daga.
Straumurinn var mestur á páska-
dag en þá skráðu 114 manns sig í
bókina. Til gamans má einnig geta
þess að frá miðjum marsmánuði
2008 til byrjun aprílmánaðar 2010
skráðu tæplega fimm þúsund
manns sig í gestabókina, eða 4989
á tveggja ára tímabili. Fólk ætti
engu að síður að gæta þess að fara
varlega hvort sem lagt er á Heima-
klett eða í aðrar göngu- og fjalla-
ferðir. Gott ráð er að hafa kunnuga
með til leiðsagnar og stuðnings
ÁÐ á leiðinni upp Stórkostlegt útsýni. Hluti leiðarinnar er farinn i
þegar leiðin liggur á nýjar og áður
ókunnar slóðir.
I góðu skyggni er útsýnið frá
Heimakletti yfir eyjamar og upp til
landsins engu líkt. Eyjan iðaði af
lífi og sjá mátti fólk á göngu um
Eggjarnar, upp Hána og stór göngu-
hópur lagði á Klifið. Auk þess gekk
fólk á Helgafell og Eldfell enda
stendur valið eingöngu um fjöl-
breyttar og skemmtilegar göngu-
leiðir um eyjuna. Kristján Egilsson
leiddi páskagöngu að Páskahelli
eins og undanfarin ár.
Á milli þrjátíu og fjörutíu manns
mættu og nutu þess að ganga undir
leiðsögn að hellinum og svo til
baka að krossinum norðan við
stigum eins og sjá má á myndinni til
hægri.
gíginn í Eldfelli. Þar var boðið upp
á Svala og hraunbakað rúgbrauð
sem Rut Zohlen bakar af alkunnri
snilld. Göngufólki var einnig boðið
að taka þátt í getraun um hvenær
gosinu á Fimmvörðuhálsi lýkur og
sá eða sú sem kemst næst því fær
uppstoppaðan lunda í verðlaun.
FJÖLMENNI á toppnum, fólk á öllum aldri lét sig hafa það að ganga á Heimaklett um páskana.