Fréttir - Eyjafréttir - 08.04.2010, Page 15
Frcttir / Fimmtudagur 8. apríl 2010
15
Úrslitakeppni 2. deildar kvenna
Stefnum á Islandsmeistaratitil
- Teflum fram leynivopni, segir Unnur Sigmarsdóttir þjálfari ÍBV
ÚRSLITAKEPPNIN HEFST í KVÖLD. Kvcnnalið ÍBV hefur leik í kvöid gegn Víkingi í undanúrslitum 2.
deildar Islandsmótsins í handbolta. Úrslitakeppnin fer fram á Seltjarnanesi..
Kvennalið ÍBV tekur þátt í úr-
slitakeppni 2. deildar Islandsmóts
kvenna í handbolta en úrslita-
keppnin fer fram á Seltjarnanesi
og hefst í dag, flmmtudag með
undanúrslitum. Úrslitakeppnin í
2. deild er með öðru sniði en aðrar
úrslitakeppnir í handboltanum
því aðeins er ein umferð í undan-
úrslitum og síðan úrslitaleikir um
fyrsta og þriðja sætið. IBV endaði
í þriðja sæti 2. deildar og mætir
því Víkingum í undanúrslitum en
Víkingur endaði í öðru sæti. I
hinni viðurcigninni eru það
Grótta, sem endaði í 1. sæti í
deildarkeppninni og FH, sem
endaði í því fjórða.
Ef litið er á lokastöðu liðanna í 2.
deild ætti að vera spennandi úrslita-
keppni framundan. Grótta hafði
reyndar nokkra yfirburði í deildar-
keppninni og endaði með 28 stig
eða sex stiga forskot á Víking.
Víkingar voru svo með 22 stig og
ÍBV og FH bæði með 21 stig.
Leikir IBV og Víkings í vetur voru
æði kaflaskiptir. 7. nóvember léku
liðin í Víkinni. Höfðu Víkingar
mikla yfirburði í leiknum og unnu
37:23 eftir að staðan var 15:6 í
hálfleik. f síðari viðureign liðanna í
deildarkeppninni, sem fór fram í
Eyjum, snerist dæmið hins vegar
við, IBV hafði mikla yfirburði og
vann 33:24 eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 18:13.
Hefði viljað enda ofar
Unnur Sigmarsdóttir, þjálfari ÍBV
sagði í samtali við Fréttir að hún
hefði viljað sjá ÍBV enda ofar. „Ég
er bæði ánægð með lokastöðuna í
deildinni og ekki. Við áttum mikið
inni fyrri hluta móts en höfum svo
spilað mun betur eftir áramót. Þetta
er bara það sem við búum svo oft
við héma í Eyjum, það tekur okkur
lengri tíma að slfpa saman liðið
enda spilum við ekki nálægt því eins
marga æfingaleiki og liðin á
höfuðborgarsvæðinu."
Grótta endaði með 28 stig og sex
stiga forskot á liðið í öðru sœti. Er
Grótta með besta liðið?
„Grótta hefur klárlega verið með
heilsteyptasta liðið í vetur enda eru
þær með breiðan og góðan hóp.
Aftur á móti unnum við þær með
átta mörkum hér heima en töpuðum
fyrir þeim á útivelli með fjórum.
Mfn skoðun er sú að þessi fjögur lið
sem eru í úrslitakeppninni séu mjög
áþekk að getu. FH er t.d. með fínt
lið. Við áttum að vinna þær þegar
við spiluðum við þær á útivelli en
misstum unninn leik niður í jafn-
tefli, kannski ekki síst fyrir til-
stuðlan dómaranna. Svo gáfu þær
leikinn hér heima en við vitum vel
hverjir þeirra styrkleikar eru. Við
spilum gegn Víkingum í undanúr-
slitum og þær eru, eins og FH, með
reynslumikla leikmenn. Við skít-
töpuðum fyrir þeim í Reykjavík,
sem er líklega einhver lélegasti
leikur sem lið hefur spilað undir
minni stjórn. Þá vantaði okkur
Guðbjörgu Guðmannsdóttur en við
unnum þær svo heima og þá vantaði
þær nokkra sterka leikmenn."
Hvernig meturðu möguleika IBV í
undanúrslitum gegn Víkingum?
„Ég tel að við eigum góða mögu-
leika gegn þeim svo lengi sem
vömin er í lagi. Okkar sterkasta
vopn eru hraðaupphlaup en til að fá
þau, þurfum við að spila góða vöm.
Ingibjörg tekur fram skóna
Unnur segir alla sína leikmenn heila
fyrir utan að Þórsteina Sigur-
bjömsdóttir kemur ekki til með að
spilameðlBV. „En við teflum fram
leynivopni í úrslitunum því Ingi-
björg Jónsdóttir, fyrrum fyrirliði
IBV, ætlar að taka fram skóna enn á
ný og spila með okkur. Það styrkir
liðið gríðarlega, sérstaklega varnar-
lega en hún spilaði með okkur æf-
ingaleik um síðustu helgi, skoraði
sex mörk og sýndi að hún hefur
engu gleymt. Svo erum við lfka
með Vigdfsi í markinu og Guð-
björgu og mjög gott að hafa svona
reynslumikla leikmenn. Okkur
hefur í vetur skort stöðugleika í
vamarleiknum en vonandi kemur
það þegar við stillum upp reynslu-
miklu og sterku liði.“
Þú hefur ekki œtlað að taka fram
skóna líka?
„Nei takk. Þrátt fyrir áskoranir frá
dætmnum þá ætla ég ekki að eyða
sumrinu á hækjum, takk fyrir,“
sagði Unnur.
Ekki tilbúnar í úrvalsdeild
Unnur segir að stefnan sé auðvitað
sett á að verða Islandsmeistari í 2.
deild. Hún segir þó að IBV sé, þrátt
fyrir allt, ekki tilbúið að tefla fram
liði í úrvalsdeild. „Ég met stöðuna
þannig að við þurfum í það minnsta
eitt ár í viðbót í 2. deild til að gefa
stelpunum nægilega mikla reynslu
til að fara upp í úrvalsdeild. Margar
af þessurh stelpum em að ganga upp
úr unglingaflokki og geta einbeitt
sér frekar að meistaraflokki næsta
vetur. Ég myndi vilja gefa þessu
eitt, jafnvel tvö ár í viðbót áður en
við förum upp í úrvalsdeild. Ekki
nema að við styrkjum liðið með
tveimur góðum spilurum en ég held
að það sé ekki á stefnuskránni. Ég
neita því hins vegar ekki að það er
þrýst á okkur að fara upp í úrvals-
deild enda æfum við mun betur en
flest liðin í 2. deild og tökum þessa
keppni af meiri alvöru en þau. En
mitt mat er að eitt til tvö ár í viðbót
geri stelpunum bara gott.“
|íBV og Sjóvá halda áfram samstarfi
Sjóvá styrkir barna- og unglingastarf ÍBV
ÍBV-íþróttafélag og trygginga-
félagið Sjóvá skrifuðu um helgina
undir samning þess efnis að Sjóvá
kemur myndarlega að barna- og
unglingastarfi IBV næstu þrjú
árin. IBV-íþróttafélag er mjög
ánægt með að ná samningum við
Sjóvá með áherslu á yngri flokka
félagsins. Sigurjón Andrésson,
markaðstjóri Sjóvá og Sigurður
Bragason, þjónustustjóri Sjóvá í
Vestmannaeyjum, skrifuðu undir
samninginn fyrir hönd Sjóvá og
Tryggvi Már Sæmundsson,
framkvæmdastjóri IBV-íþrótta-
félags, skrifaði undir fyrir hönd
ÍBV.
Sjóvá hefur undanfarin átta ár
stutt vel við bakið á félaginu og
með þessum samningi er sá
stuðningur framlengdur um þrjú
ár. Sjóvá er stolt af því að taka
þátt í þessu frábæra starfi sem
IBV íþróttafélag vinnur ár hvert.
Félagið sé að aðstoða ungt fólk að
þroskast og dafna á heilbrigðan
hátt, það er eitthvað sem Sjóvá
vill taka þátt í.
SAMSTARFIÐ HANDSALAÐ. Frá vinstri: Sigurður Bragason, þjónustustjóri Sjóvá í Eyjum, Sigurjón
Andrésson, markaðsstjóri Sjóvá og Tryggvi Már Sæmundsson, framkvæmdastjóri ÍBV-íþróttafélags.
íþróttir
Kári til
Þýskalands
Eyjamaðurinn öflugi, Kári Kristján
Kristjánsson, hefur ákveðið að
halda á önnur mið, en hann hefur í
vetur leikið með svissneska liðinu
Amicita Zúrich. Kári mun hins
vegar leika með þýska úrvalsdeild-
arliðinu Wetzlar næsta vetur en eins
og flestir vita er þýska deildin ein
sú sterkasta í heiminum. Wetzlar
var ekki eina félagið sem var inni í
myndinni, lleiri félög höfðu kann-
að áhuga kappans en helst var það
gamla íslendingaliðið Magdeburg
sem kom til greina.
Eyjamenn
mæta UMFA
I gærkvöldi kom í ljós að IBV
mætir Aftureldingu í undanúrslit-
um umspils um laust sæti í úrvals-
deild næsta vetur. Afturelding
tapaði fyrir Selfossi í hreinum
úrslitaleik um efsta sætið en
leikurinn fór fram á Selfossi.
Selfyssingar enduðu þar með í
efsta sæti 1. deildar og fara beint
upp. 1 hinni viðureigninni mætast
Víkingur og svo eitt af úrvals-
deildarliðunum þremur sem er í
botnbaráttunni, Stjarnan, Fram og
Grótta. Umspilið hefst 23. apríl.
Vel heppnuð
æfingaferð
Karlalið ÍBV dvaldi á Spáni í
vikutíma og æfði við bestu
hugsanlegu aðstæður. í ferðinni
voru tveir suður-afrískir leikmenn
til skoðunar en Heimir Hallgríms-
son, þjálfari ÍBV, segir ekki víst
hvort þeir verði hjá IBV í sumar.
„Þessir strákar komu algjörlega á
eigin vegum til okkar og við erum
að skoða þetta mál. Þeir heita
Thato Mokeke og Keagan
Buchanan, og eru báðir sóknar-
miðjumenn. Þeir eru báðir ungir,
annar þeirra gæti spilað með 2.
flokki.“
Eyjamenn léku einn leik í ferð-
inni, gegn spænska 3. deildar-
liðinu Ontenyente og unnu stórt,
16:0. „Við fengum ekki mikið út
úr þessum leik. Mörkin gerðu þeir
Eyþór Helgi sex, Tryggvi þrjú,
Yngvi, Eiður, Keagan, Kjartan,
Ásgeir, Anton eitt og Trausti
Hjaltason, framkvæmdastjóri,
setti eitt en hann skoraði eftir
laglegan undirbúning búninga-
stjórans, Jóhanns Sveinssonar.
Trausti fagnaði markinu með því
að fara úr búningnum og hlaupa
að stúkunni. Búningastjórinn elti
hann enda var hann smeykur um
að framkvæmdastjórinn myndi
henda búningnum upp í stúku,“
sagði Heimir.
Framundan
Fimmtudagur 8. apríl
Kl. 19.30 Víkingur-ÍBV
Úrslit kvenna, handbolti.
Laugardagur 10. aprfl
Kl. 12.00 IBV-Grótta
2. flokkur karla, handbolti.
Kl. 13.00 HK-ÍBV
FM-mót, 5. flokkur kvenna, ABC,
fótbolti.
Kl. 14.00 ÍBV-Grótta2
3. flokkur karla, handbolti.
Sunnudagur 11. aprfl
Kl. 13.00 ÍBV-FH
Úrslit 4. fl. kvenna B, handbolti.
Kl. 14.00 Afturelding-ÍBV
FM-mót, 2. flokkur karla, fótbolti.
Kl. 14.30 ÍBV-HK
Úrslit 4. flokkur kvenna A, hand-
bolti.