Fréttir - Eyjafréttir - 08.04.2010, Síða 16
(FRÉTTIRjl piús !M ™ Mi yMBOÐlSYJUM
Frétta- og auglýsingasími: 481-1300 / Fax 481-1293 i3j‘]i)jlfJLfJJlr' iíLrJJJÍiDxjJElDJJ
Við bjóðum upp á alls kyns góðgæti, segir Aldís sem hér er með starfsstúlkunum, dætrum sínum, Sigurdísi
Ösp og Elínu Björk.
Alveg frábærar viðtökur
-segir Aldís Atladóttir á Café Varmó, sem opnaði 1. apríl
Um páskahelgina, nánar tiltekið
þann 1. apríl, opnuðu þau Aldís
Atladóttir og Kristinn Andersen
nýtt kaffihús, Café Varmó, að
Kirkjuvegi 10.
„Já, við ákváðum að opna 1. aprfl
og það var sko ekkert aprílgabb,"
segir Aldís sem lengi er búin að
eiga sér þann draum að opna kaffi-
hús í Eyjum. Hefur raunar komið
að slíkum rekstri áður, fyrst í veit-
ingatjaldi á Skansinum og síðar í
Vatnsveituhúsinu á sama stað.
„Helgin var alveg frábær, viðtök-
urnar framar björtustu vonum þar
sem ég var lítið búin að auglýsa
þetta. Ég vona bara að fólk láti sjá
sig í miðri viku líka, læri á kaffi-
húsamenninguna."
I Café Varmó verður opið daglega
frá kl. 13 til 18 og svo frá 20 til 22
fram til 1. júní en eftir það á Aldís
von á að opið verði lengur á hverj-
um degi.
„Við bjóðum upp á alls kyns góð-
gæti. Virka daga eru m.a. flat-
kökur, beyglur og bakkelsi af ýmsu
tagi. Um helgar eru svo rjóma-
tertur, brauðtertur og pönnukökur
og rétt að taka fram að hinar marg-
rómuðu vöfflur eru á matseðlinum
alla daga. Um næstu helgi ætla ég
svo að prófa að bjóða upp á tarta-
lettur sem ég held að sé nýmæli á
kaffihúsi.“
Þá segir Aldís að drykkjavalið sé
eins og gerist á kaffihúsum al-
mennt. „Auðvitað kaffi af öllum
gerðum, venjulegt kaffi, expressó,
cappuchino og latte og auk þess te
og súkkulaði og gosdrykkir. Svo er
ég með léttvínsleyfi sem þýðir að
hægt er að fá létt vín og bjór fyrir
þá sem það vilja. Auk þess er hægt
að bragðbæta kaffið enn frekar fyrir
þá sem þess óska.“
Aldís segist ákaflega sátt við byrj-
unina sem lofi góðu um fram-
haldið. Það voru nær eingöngu
Vestmannaeyingar sem litu við hjá
okkur þessa fyrstu helgi, ég held að
ég hafi þekkt hvert einasta andlit.
Og ég hlakka til að fá fleiri, bæði
þá sem ég þekki og þekki ekki.
Hér eru allir velkomnir og ég hvet
fó'lk til að kíkja til okkar og njóta
góðra veitinga við rólega tónlist og
kertaljós,“ sagði Aldís Atladóttir að
lokum.
Silja Elsabet tekur þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna:
Var með lagið í rassvasanum
SÖNGKONAN unga hefur ekki haft mikinn tíma til að undirbúa sig
því hún hafði ekki ráðgert að taka þátt í keppninni í ár.
Söngkeppni framhaldsskólanna fer
fram á laugardaginn og verður í
íþróttahöllinni á Akureyri eins og
undanfarin ár. Landsmenn þurfa
ekki að örvænta því keppnin verður
í beinni útsendingu Stöðvar 2 og
það sem meira er, útsendingin er í
opinni dagskrá. Fulltrúi Fram-
haldsskólans í Vestmannaeyjum er
söngkonan Silja Elsabet Brynjars-
dóttir en þetta er í annað sinn sem
hún tekur þátt í keppninni.
Silja tók síðast þátt í keppninni
2007 og söng þá lagið Dear Mr.
President sem söngkonan Pink
gerði frægt en lagið var með ís-
lenskum texta. Silja tekur allt
annan pól í hæðina í ár. „Já það er
óhætt að segja það þvf ég ætla að
syngja lagið Valur og jarðarberja-
maukið sem Grýlurnar gerðu frægt
á sínum tíma. Hvað er að ske-
lagið,“ útskýrir Silja en hún hefur
hingað til meira verið í rólegum og
fallegum ballöðum. „Þetta lag
gefur mér tækifæri á að sýna aðeins
aðra hlið á mér sem söngkonu en
samt sem áður ætla ég að syngja
lagið en ekki öskra það, eins og
Grýlurnar gerðu meira á sínum
tíma.“
Lagið þekkir Silja vel því hún
hefur nokkrum sinnum flutt það
opinberlega. „Ég fékk frábært
tækifæri á Húkkaraballinu 2007
þegar mér bauðst að hita upp fyrir
A móti Sól. Vinir mínir í hljóm-
sveitinni Hugarástandi voru með
mér og leyfðu mér að heyra lagið.
Mér leist ekkert allt of vel á það í
fyrstu en núna fmnst mér lagið
smellpassa við mig og minn söng.
Það kom þess vegna ekkert annáð
lag til greina. Svo er þetta íslenskt
lag en í keppninni þarf að syngja á
íslensku þannig að það þarf ekkert
að snara textanum frá ensku yfir í
íslensku," sagði Silja.
Söngkonan unga hefur ekki haft
mikinn tíma til að undirbúa sig því
hún hafði ekki ráðgert að taka þátt í
ár. „Mér fannst asnalegt að fara
aftur í keppnina, vildi ekki vera sú
sem væri alltaf þama en svo.þegar
upp var staðið þá vildi enginn taka
þátt í keppninni fyrir Framhalds-
skólann sem var auðvitað ekki
nógu gott. Aðstandendur keppn-
innar hringdu í Kristínu Jóhanns-
dóttur og spurðu hvort það væri
virkilega enginn sem gæti tekið þátt
fyrir hönd skólans. Hún hugsaði til
mín og stuttu síðar var ég komin á
æfingu í Reykjavík fyrir keppnina.
Undirbúningurinn er kannski ekkert
rosalega góður en þetta lag hefur
alltaf verið í hægri rassvasanum hjá
mér og því auðvelt að rifja það
upp. Ég tek þetta í upprunalegri
útgáfu, undirspilið er reyndar
aðeins öðmvísi og eins og ég sagði
áðan, þá ætla ég að syngja lagið,"
sagði Silja, eiturhress að lokum.
VIKUTILBOÐ
6. -14. apríl
Neutral þvottaefni i,86 k9
verð nú kr 798,-
verð óður kr 998,-
Bugles snnkk
verð nú kr 498,-
verð áður kr 598,-
SS súpukjöt
verð nú kr/kg 698,-
verð áður kr/kg 828,-
SS reykt folaldakjöt
verð nú kr/kg 688,-
verð áður kr/kg 808,-
0PNUNARTIMI:
Mán. - Föst.
kl. 7.30 - 19.00
Laugardaga
kl.10.00 -19.00
Sunnudaga
kl.11.00-19.00