Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.1981, Page 4
Bæjarsjóður:
Útgjöld framúr áætlun
Bæjarráð...
mánudaginn 12 okt.
....Fy .ir lágu bréf frá Verka-
lýðsfélagi Vestmannaeyja,
dags 29. 09. sl. og starfs-
mannafélagi Vestmanna-
eyjabæjar dags. 29. 09. sl.
Félögin segja upp gildandi
kjarasamningum, miðað við
að þeir verði lausir í lok
samningatíma. Ennfremur
setur starfsmannafélagið
fram kröfugerð í samræmi
við formannaráðstefnu
B.S.R.B. sem haldin var í
síðasta mánuði.
■
....Bréf frá Samkomuhúsi
Vestmannaeyja hf. dags 3.
okt. sl. Þar er farið fram á
við bæjarstjóra að breyt-
ingar verði gerðar á 47. gr.
lögreglusamþykktar fyrir
Vestmannaeyjar, til sam-
ræmis við breytingar sem
gerðar hafa verið á lög-
reglusamþykkt fyrir Reykja-
vík, Akureyri og Hafnar-
fjörð.
Bæjarráð samþykkir að
fela bæjarstjóra að leita um-
sagnar bæjarfógeta á tillögu
á breytingu á 47. gr. lög-
reglusamþykktar fyrir Vest-
mannaeyjar.
■
....Bréf frá ALFA nefnd ’81 á
vegum Félagsmálaráðuneyt-
isins, dags. 20. 09. sl. í bréf-
inu kemur fram að áformað
er að halda sérstaka ráð-
stefnu um aðgengismál fatl-
aðra 11.-12. nóvember nk. í
Reykjavík.
Handbolti
Á laugardag kl. 13.30 leika
Týr og Stjarnan úr Garðabæ.
Stjarnan er mjög sterkt lið,
vann m.a. Þór hér fyrir hálf-
um mánuði.
Lið Týs hefur nú breyst,
þar sem þjálfarinn, Stefán
Halldórrsson úr Val, leikur
nú með liðinu sem löglegur
leikmaður. Sú nýbreytni verður
tekin upp nú, að ílaggað
verður við Iþróttahúsið þegar
Týr keppir í handboltanum í
vetur.
Fréttatilkynning.
Álagningu bæjargjalda er
nú lokið. Virðist sem álagn-
ingu fasteignagjalda, útsvara
og aðstöðugjalda gefí bæjar-
sjóði um 27 millj. nkróna,
sem er nær sama og Fjárhags-
áætlun Bæjarsjóðs 1981 gerði
ráð fyrir.
Aftur á móti munu ýmsir
rekstrarliðir og og nokkrar
framkvæmdir ávegumbæjar-
ins hafa farið töluvert fram úr
áætlun.
Er greinilegt að þetta er
farið að valda bæjarráði nokkr-
um áhyggjum. Er áberandi að
farið er að vísa ýmsum fjár-
beiðnum frá bæjarstofnunum
yfir á næsta ár.
Ekki liggur fyrir hve há
upphæð er þarna á ferðinni,
en fulltrúi minnihlutans í
bæjarráði, Amar Sigurmunds-
son tjáði blaðinu að ef ekkert
yrði að gert stefni í að rekstur
og framkvæmdir fari allt að
5 millj. nýkr. fram úr áætlun.
Ekki væru til fjármunir í
bæjarsjóði að mæta slíku, og
yrðu menn að gera sig klára í
að draga úr framkvæmdum
sem eftir er að árinu, og halda
rekstrarkostnaði bæjarins í
algjöru lágmarki.
Mun mál þetta koma upp á
borð bæjarráðs á næsta fundi,
en á síðasta fundi voru niður-
stöður bókhalds fyrstu 9
mánuði ársins kynntar bæjar-
ráði.
Á þessum sama fundi kom
fram að innheimta bæjargjalda
hefur gengið heldur betur en í
fyrra og var búið að inn-
heimta 56.8% af álögðum
gjöldum með eftirstöðvum og
dráttarvöxtum á móti 52.7% á
sama tíma 1980.
Hjálparstarf Aðventista
Sýnir kvikmyndinaMASANGA í Aðventkirkjunni við
Brekastíg, í kvöld, fimmtudagskvöld kl. 20.30
Don Lowe stofnandi holdsveikrasjúkrahússins í
Masanga og Martin Bell yfirmaður Hjálparstarfs
Aðventista í Bretlandi munu kynna starfið og svara
spurningum.
Allir velkomnir
Aðventsöfnuðurinn
BÆJARBÚAR!
Sláið tvær flugur í einu höggi, skemmtið ykkur
og dansið í blómum skreyttri Höllinni, og styrkið
Þroskahjálp Vestmannaeyjum.
Húsið opnar kl. 21.00 og þá verður gestum boðið
upp á drykk, skemmtiatriði, miðnæturverð ofl. ofl.
Hljómsveitin Radíus leikur fyrir dansi. - Allir
sem starfa og starfað hafa að dansleiknum, gefa
vinnu sína.
Miða- og borðapantanir eru í símum 1789,2528,
2163 og 2398. Miðasala einnig í Samkomuhúsinu
föstudag kl. 20-21 og laugardag kl. 14-16.
- Ykkar stuðningur er þeirra styrkur -
JC-VESTMANNAEYJAR
HELGARDAGSKRÁ SJÓNVARPSINS
FÖSTUDAGUR 23/10: LAUGARDAGUR 24/10: SUNNUDAGUR 25/10:
l II1111111 nm 111111111111111 m 111111 ■ i ■ 111111111111111 i i, i
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og Veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfínni
20.50 Allt í gamni m/Harold Loyd
21.15 Fréttaspegill
Þáttur um innlend og erlend
málefni.
21.45 Sjö dagar í maí
(Seven days in may) Bandarísk frá
1964. Aðalhlutverk: Kirk Douglas,
Burt Lancaster, Frederic March,
Ava Gardner og Martin Balsam.
Ofursti í bandaríkjaher kemst á
snoðir um samsæri háttsetts hers-
höfðingja til að steypa forsetanum af
stóli og ætlar hann sjálfur að komast
til valda.
23.40 Dagskrárlok
BÍLL TIL SÖLU
Renault 16, árg. 1977 er til
sölu. Ekinn 33 þús. km.
Upplýsingar í síma 1904.
17.00 íþróttir
18.30 Kreppuárin
(Áttundi þáttur.) Þetta er annar
þáttur af þremur frá danska sjón-
varpinu. Hann fjallar um Rikke, tíu
ára gamla stúlku sem er nýflutt til
borgarinnar.
19.00 Enska knattspyrnan
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Ættarsetrið
breskur gamanmyndaflokkur. Þriðji
þáttur.
21.05 Tónheimar
Tónlistarþáttur frá norska sjónvarp-
inu, með hljómsveitinni Dizzie Tunes
Grethe Kausland og Benny Borg.
21.35 Einn var góður, annar illur
og sá þriðji grimmur.
ítalskur vestri frá 1966. Aðalhlut-
verk: Clint Eastwood, Eli Wallach
og Lee Van Cleef.
Myndin er ekki við hæfi barna.
00.05 Dagskrárlok
18.00 Sunnudagshugvekja
18.10 Stundin okkar
Umsjón: Bryndís Schram
19.00 Karpov gegn Kortsnoj
19.20 HLÉ
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sjónvarp næstu viku
20.50 Dagur í Reykjadal
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra lét
gera þessa mynd. Hún sýnir dag í lífi
fatlaðra bama í sumarbúðum styrkt-
arfélagsins í Mosfellssveit.
21.15 Myndsjá
(Moviola, Ljóska ársins) Banda-
rískur myndaflokkur um frægar Holly-
wood-stjömur. Þessi þáttur er sá
síðasti og fjallar um upphaf ferils
Marlyn Monroe.
22.50 Dagskrárlok
Landakirkja:
Laugardagur 24. okt.:
Kirkjuskólikl. ÍIÍKFUM
og K.
Sunnudagur 25. okt.:
Messa kl. 14.00. - Fundur
með foreldrum fermingar
barna eftir messu.
Samkoma í Landakirkju kl.
20.30, Friðrik Shcram talar.
Viðtalstími Sóknarprests:
Mánudaga til fostudaga kl. 16.00
- 17.00, og eftir samkomulagi. Sími
1607.
Sóknarprestur
BETEL:
Almenn guðþjónusta sunnudag
kl. 16.30.
Biblíulestur á fimmtudag kl.
20.30.
Allir velkomnir
Betel
Barnastúkan EYJARÓS:
Heldur fundi í Félagsheimilinu
við Heiðarveg alla laugardaga kl.
1.30 (13.30). Allir velkomnir.
Stúkan SUNNA:
Heldur fundi í Félagsheimilinu
við Heiðarveg alla flmmtudaga kl.
8.00. (20.00). Allir velkomnir.
smúmmmu
í tilefni af ári
fatlaðra
....verður myndin MOUNTAIN
TOJ’S sýnd í Aðventkirkjunni
við Brekastíg Sunnudaginn 25.
okt. kl. 17.00.
Myndin fjallar um ungan
mann í hjólastól, sem ákveður
að klífa 13.000 feta hátt fjall
þrátt fyrir það að hann er lam-
aður fyrir neðan mitti. Myndin
er 35. mín. löng.
Einnig verða sýndar litskyggnur
frá brúðkaupi aldarinnar, brúð-
kaupi Díönu og Karls. Myndir
þessar eru óvenju fallegar,
teknar af David Lawson frá
Nýja Sjálandi, og hefur Buck-
ingham höllin óskað eftir að
þær verði sýndar I konungs-
höllinni síðar á þessu ári.
Þá verður gestum boðið að
smakka ljúfenga sjávarrétti
sem framreiddir verða í hliðar-
sal. I lok sýningarinnar verða
tekin upp samskot og munu þau
renna óskipt til Sjálfsbjargar í
Vestmannaeyjum.
Allir velkomnir, meðan hús-
rúm leyfir.
Aðventsöfnuðurinn.
-VIDEO-
ALLT ORGINAL
V.H.S
Erum með nýjar
myndir.
LEIGJUM EINNIG
MYNDSEGULBÖND
VIDEOKLÚBBUR
VESTMANNAEYJA
OPIÐ:
17-21 virka daga Hólagötu 44
15-18 um helgar .. Sími 2397
BÍÓ
Fimmtudagur:
Klukkan 8:
MUNKUR Á
GLAPSTIGUM
Frábær grínmynd, með
Marty Feldman í aðalhlut-
verki.
Sýnd í allra síðasta sinn.
Klukkan 10:
Uppvakningin
IW Wim ltaUil WoPiíáwhor
OUfillOH HÖIOH. ffll AHjtílfWNd
SUUHHJWYORK K!»«)««iWtuMSMiUi:
rVi MLW SQBU ÖÍÍ88WW (IMWOM • ».«**w»w*n»suívt,»»i«
Hryllingsmynd með Charlton
Heston og Susannah York í
aðalhlutverkum.
Bönnuð innan 16 ára.
Föstudagur:
Bíósalur lokað.
Nýi salur:
Diskótekið Þorgerður mun
skemmta frá kl. 10-02.
Tískusýning. Sýningar-
fólk ‘81 sýnir nýjustu haust
og vetrartískuna frá versl-
ununum Eyjabæ og Kaup-
félagi Vm. - Svo er um að
gera að mæta snemma.
Laugardagur:
Bíósalur:
Einkasamkvæmi.
Nýi salur:
Hin geysivinsæla hljómsveit
Q-men 7 skemmtir frá kl.
10-02. Ath. aðeins rúllu-
gjald. Aldurstakmark 20 ára.
Borðapantanir fyrir föstu-
dags- og laugardagskvöld í
síma 2213 eftir kl. 8.