Fréttir - Eyjafréttir - 12.11.1981, Side 1
Stærsta
fréttablað
Eyjanna
Eina óháða
blaðið í
Eyjum
Fréttir
koma út í
2300 ein-
tökum
vikulega
8. árgangur Vestmannaeyjum 12. nóvember 1981 45. tölublað
Sigurður Jónsson bæjarfulltrúi:
PRÓFKJÖR ER NAUÐSYN
Á fundi fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna s.l. sunnudag
var saþykkt einróma tillaga
um að óska eftir því við hina
stjórnmálaflokkana að viðhaft
verði sameiginlegt prófkjör
allra flokka. Gert er ráð fyrir
því að prófkjörið verði með
svipuðu sniði og flokkarnir á
Akranesi náðu samkomulagi
um.
Gert er ráð fyrir að svör
hafi borist fyrir 30. nóv-
ember.
Einnig er reiknað með að
sameiginlegt prófkjör færi
fram í byrjun næsta árs.
Hvers vegna sam-
eiginlegt prófkjör?
Allmiklar umræður hafa
verið um kosti og galla próf-
kjöra. margir eru þeirrar
skoðunar að þau eigi ekki rétt
á sér. Það er að mínu viti
eðlilegra að viðhafa prófkjör,
þegar velja á menn í framboð
til bæjarstjórnar og til Al-
þingis. Með því gefst kjós-
endum tækifæri til að ráða því
hverjir veljast í efstu sætin.
Það sem helst hefur verið
fundið að prófkjörum er að
menn úr öðrum flokkum geti
haft áhrif á valið. Einnig að
fólk geti flakkað á milli flokka
í prófkjöri.
Með sameiginlegu próf-
kjöri er girt fyrir þennan
ókost.
Hvemig er fram-
kvæmdin?
Öllum Vestmanneyingum,
18 ára og eldri, yrði heimil
þáttaka. hver kjósandi fengi
seðil í hendurnar með fulltrú-
um allra flokka. Einungis
mætti krossa við eða númera
(eftir því hvor leiðin yrði
valin) hjá einum flokki.
Með þessu fyrirkomulagi
væri stigið sórt skref í þá átt
að allir kjósendur ættu þess
kost að velja þá aðila, sem þeir
treysta best til að sitja í bæjar-
stjórn. Vonandi taka allir
stjórnmálaflokkarnir vel í
hugmyndina um sameigin-
legt prófkjör.
Það á að vera liðin tíð, að
fámennar klíkur geti ráðið því
hverjir veljist til framboðs
fyrir flokkana.
Nýjar og
glæsi-
legar
íbúðir
aldraðra
Sunnudaginn 8. nóv.
s.l. voru íbúðir aldraðra
afhentar leigjendum. í-
búðirnar eru fjórar ein-
staklingsíbúðir auk tveggja
stærri íbúða.
Frágangur er allur hinn
vandaðasti. íbúðirnar
verða Eyjabúum til sýnis
eftir hádegi á laugardag.
Byggingarverktaki var
Áshamar h.f.
Skrefagjald Pósts og Síma
Lítil eða engin hækkun á síma?
Fréttir höfðu samband við
stöðvarstjóra Pósts og Síma í
Eyjum, Baldur Böðvarsson,
og inntu hann eftir áhrifum
skrefagjaldsins svokallaða á
símareikninga Eyjabúa.
Baldur sagði að skrefagjald
væri nú mælt frá kl. 8 á
morgni til kl. 7 á kvöldin, er
skrefið mælt á 6 mínútna
fresti. Eftir kl. 7 á kvöldin til 8
að morgni reiknast ekki skref
(eins og fyrirkomulagið var
áður allan sólarhringinn á
innanbæjarsamtölum). Áður
var hægt að tala ótakmarkað
innanbæjar, án þess að skref
væru mæld. Við skrefataln-
ingu lengjast samtöl t.d. til
Reykjavíkur um 20%, en á
móti hækkar skrefagjaldið um
9%. Baldur sagði að með
þessu myndu símareikningar
Vestmanneyinga sjálfsagt eigi
hækka í heild. Vestmann-
eyingar myndu hvorki tapa
né græða á þessari breytingu.
Hinsvegar þar sem fjarlægð
er meiri, t.d. Austfirðir og
Norðurland færu betur út úr
þessar breytingu, þar sem
skrefin lengdust um ca. 50% á
utanbæjarsamtölum þar.
Baldur benti á, að um
helgar, laugardaga og sunnu-
daga væri ekki reiknað nýja
skrefagjaldið, en alla hátíðis-
daga, svo sem jól, páska
o.s.frv., væri reiknað skrefa-
gjald ef þessir hátíðisdag-
ar bera upp á aðra daga en
laugardaga og sunnu-
daga.
Á næstunni mun Póstur og
Sími í Vestmannaeyjum
senda frá sér fréttatilkynn-
ingu, þar sem nánar er fjallað
um þessi mál.
Aukafundur í bæjarráði í dag:
Atvinnumál bílstjóra BSV
meðal þess sem tekið er fyrir
í dag kl. 17.00 verður
aukafundur í bæjarráði
vegna bréfs frá vörubif-
reiðastjórum á B.S.V. og
slæmrar fjárhagsstöðu
bæjarsjóðs.
Bílstjórarnir vekja at-
hygli bæjarráðs á alvar-
legu atvinnuástandi og
brota Bæjarsjóðs á samn-
ingi við vörubílstjórafél-
agið Ekil.
Þá munu fjárhagserfið-
leikar bæjarins verða teknir
til umræðu að sögn Amars
Sigurmundssonar, bæjar-
ráðsmanns minnihlutans.
En útgjöld bæjarins hafa
farið mjög úr böndum á
nokkrum rekstrarliðum svo
sem félagsmálum, æskulýðs-
málum og viðhaldi fast-
eigna bæjarins. Ef ekkert
verður aðgert stefna útgjöld
bæjarins rúmlega 3 milljón
kr. fram úr áætlun á árinu.
Á sama tíma virðast tekjur
bæjarsjóðs verða mjög ná-
lægt áætlun 1981.
Innheimta bæjargjalda
var 58.3% um síðustu mán-
aðarmót sem er svipuð út-
koma og sl. tvö ár, en
heldur betri en á sama tíma
1978.
Að sögn Amars hefur
meirihlutinn í bæjarráði
ekki lagt fram neinar til-
lögur til lausnar vandanum
og er útlitið í fjármálum
bæjarins ekki glæsilegt um
þessar mundir.
Á sama tíma sl. ár barst
mikið af síld til Eyja, en
greinilegt er að síldarver-
tíðin í ár verður mun lakari.
Hefur þetta mikil áhrif á
innheimtu bæjargjalda og
verður án efa erfitt að ná
sömu innheimtuprósentu og
í fyrra, nema eitthvað ó-
vænt muni ske, en inn-
heimta 1980 varð 78.2% af
gjöldum sem voru til inn-
heimtu.
★ ÖRBYLGJUOFNAR
★ SAUMAVÉLAR
★ FRYSTIKISTUR
★ ÍSSKÁPAR
....OG SVO ALLT HITT
SEM VIÐ EIGUM..ALLT
Á GAMLA VERÐINU!
Kjami
s/f Skólavegi 1 - Sími 1300