Fréttablaðið - 18.07.2014, Side 6
18. júlí 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hvað bjuggu margir Íslendinga við
skort á efnislegum lífsgæðum í fyrra?
2. Hvaðan er dúettinn I am Dive sem
nennti ekki ofan í Bláa lónið?
3. Hvaða tónlistarmaður skartar
blómaskeggi á plötu sinni?
SVÖR:
1. 6,7 prósent 2. Frá Spáni 3. Sindri Már
Sigfússon
HÚSNÆÐISMÁL Mikill fjöldi íbúða
í eigu Íbúðalánasjóðs er ónýttur
á meðan mikill skortur er á leigu-
íbúðum. Magnús Stefánsson, bæj-
arstjóri í Garði, hefur óskað eftir
fundi með stjórn Íbúðalánasjóðs
en þar í bæ er á fimmta tug tómra
leiguíbúða í bænum þótt eftir-
spurnin sé mikil.
„Þessar íbúðir væru allar í nýt-
ingu stæði það til boða,“ segir
hann. Ef við gefum okkur að
þrír leigðu í hverri íbúð væri að
minnsta kosti 120 íbúum fleira í
Garði ef íbúðirnar stæðu til boða.
Magnús segist búast við því
að nágrannasveitarfélögin muni
sameinast um að leysa málið með
Íbúðalánasjóði en svipaður vandi
finnst þar, til dæmis í Vogum og
Sandgerði. Segir hann að það geti
ekki verið nokkurs hagur að íbúð-
irnar standi auðar því enginn haldi
þeim við né görðunum í kring sem
séu ekki bæjarprýði eins og sakir
standa.
Ekki bætir það stemninguna
að sjá síðan byggingu Garðvangs
standa auða en hjúkrunarheim-
ilinu var lokað og vistfólk þess
sent til Nesvalla sem teknir voru
í notkun í Reykjanesbæ í mars
síðastliðnum. Góðu fréttirnar eru
hins vegar þær, segir bæjarstjór-
inn, að eftirspurnin eftir húsnæði
beri það með sér að gott sé að búa
í Garði.
- jse
Þrátt fyrir eftirspurn eftir leiguhúsnæði í Garði stendur fjöldi íbúða tómur:
Yfir fjörutíu íbúðir standa tómar
MAGNÚS STEFÁNSSON Bæjarstjór-
inn segir það gríðarlega erfitt að fá
leiguhúsnæði í Garði en þó vantar ekki
íbúðirnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FERÐAÞJÓNUSTA Sýslumaðurinn
á Húsavík samþykkti í gær lög-
bannsbeiðni á gjaldtöku við Kröflu
og við hverina austan Námaskarðs.
Gjaldtaka hófst þann 18. júní síð-
astliðinn og var starfrækt af Land-
eigendum Reykjahlíðar ehf.
Gerðarbeiðendur eru alls sjö og
eru allir landeigendur í Reykjahlíð.
Lögbannið tekur gildi þegar
gerðarbeiðendur hafa lagt fram 40
milljónir króna í tryggingu. Frest-
ur er veittur til hádegis, miðviku-
daginn 23. júlí
Ólafur H. Jónsson, forsvarsmað-
ur gjaldtöku Landeigenda Reykja-
hlíðar, telur gerðarbeiðendur
aðeins hugsa um eigin hag í stað
þess að hugsa um hag náttúrunnar
í eigin landi.
„Við búum í svolítið sérkennilegu
þjóðfélagi, þar sem landeigendur
setja lögbann á sjálfa sig. Það segir
manni svolítið um það á hvaða for-
sendum þeir gera það. Þeir eru
ekki að hugsa um verndun náttúr-
unnar og lands síns, heldur aðeins
um eigin hag og að missa ekki spón
úr aski sínum við að selja gistingu
og annað slíkt,“ segir Ólafur.
Ólafur segir að nú þurfi meiri-
hluti landeigenda að grípa til ann-
arra aðferða til að vernda nátt-
úruna í landi sínu. „Það er alveg
ljóst að við munum halda gjaldtöku
áfram þangað til lögbannið verð-
ur staðfest, nú ef það verður svo
staðfest þá grípum við til þeirra
aðgerða að loka landinu fyrir
ferðafólki til að tryggja vernd nátt-
úrunnar á svæðinu.“
Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráð-
herra ferðamála, telur þurfa breiða
sátt um niðurstöðu í uppbyggingu
ferðamannastaða.
„Þessi niðurstaða kom mér
ekki á óvart miðað við fordæmið
af sambærilegu mál við Geysi í
Haukadal fyrr í sumar. Þar var
ekki heldur eining meðal land-
eigenda um að hefja gjaldtöku
inn á svæðið. Niðurstaðan styrk-
ir mig í þeirri trú að það þurfi að
ná breiðri sátt um lausn í þessum
málum líkt og ég hef áður talað
fyrir. Gjaldtaka er ekki markmið
í sjálfu sér heldur það að tryggja
fjármögnun til uppbyggingar og
verndun náttúrunnar – „vörunn-
ar“ sem um 80% erlendra ferða-
manna koma hingað til upplifa“,
segir Ragnheiður Elín Árnadótt-
ir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
innt eftir viðbrögðum við lögbanni
á gjaldtöku í landi Reykjahlíðar í
Mývatnssveit.
sveinn@frettabladid.is
Landeigandi vill
loka fyrir aðgengi
Sýslumaðurinn á Húsavík lagði í gær lögbann á gjaldtöku Landeigenda Reykja-
hlíðar ehf. á tveimur stöðum í landi sínu. Gerðarbeiðendur eru einnig land-
eigendur. „Þeir eru aðeins að hugsa um eigin hag,“ segir Ólafur H. Jónssson.
LÖGBANN Sýslumaðurinn á Húsavík hefur lagt lögbann á gjaldtöku ferðamanna
landi Reykjahlíðar MYND/VÖLUNDUR
Það er
alveg ljóst að
við munum
halda gjald-
töku áfram
þangað til
lögbannið
verður staðfest.
Ólafur H. Jónsson
forsvarsmaður gjaldtöku Landeigenda.
Þessi
niðurstaða
kom mér ekki
á óvart miðað
við fordæmið
af sambæri-
legu máli við
Geysi í Haukadal
Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðarráðherra.
NOREGUR Stöðva á innflutning og
landamæraverslun með svína-
kjöt frá Danmörku þegar í stað.
Þetta er mat norsks prófessors í
lýðheilsufræði, Steinars West-
in. Hann segir áttatíu prósent
danskra svína í sláturhúsum
smituð af bakteríum sem eru
ónæmar fyrir sýklalyfjum.
Prófessorinn segir að það hefði
alvarlegar afleiðingar ef bakt-
eríurnar bærust í svínakjöti inn
á sjúkrahús. Norska fréttaveitan
NTB greindi frá. - ibs
Norskur lýðheilsuprófessor:
Viðvörun við
dönsku kjöti
VEISTU SVARIÐ?
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS
Hvað er SONOS?
Sonos er kerfi þráðlausra hátalara
og hljómtækja. Það sameinar
stafræna tónlistarsafnið þitt og
útvarpsstöðvar í einu appi sem
þú getur stjórnað frá hvaða
síma eða spjaldtölvu sem er.
Spilaðu það sem þú vilt hvar sem
er á heimilinu í gegnum Sonos
kerfið sem er mjög einfallt í
uppsetningu.
FÁÐU
ÞRÁÐLAUSAN
AÐGANG AÐ
TÓNLISTINNI
Í ÖLLUM
HERBERGJUM
HÚSNÆÐISMÁL Íbúasamtökum Rauf-
arhafnar ofbýður ástandið á einu
blokk bæjarins sem hefur staðið
auð í nokkur ár. Hafa þau því sent
bæjarráði Norðurþings og Leigubæ,
sem er eigandi hennar, erindi þar
sem þess er krafist að öllum tiltæk-
um ráðum verði beitt til að koma
blokkinni í viðunandi horf.
Í erindi til Norðurþings segir:
„Engin kynding er á hluta hússins
þar sem rafmagnsreikningar hafa
ekki verið greiddir. Ekkert viðhald
eða endurbætur hafa farið fram
á húsinu í mörg ár og eru margar
íbúðir varla hæfar til búsetu. Blokk-
in stendur á áberandi stað á Raufar-
höfn og er ásýnd hennar mikið lýti á
annars fallegu þorpi.“
Telja þau einnig að hætta sé á því
að húsið eyðileggist og að enginn
muni treysta sér til þess að koma
því í viðunandi horf ef ekki verði
tekið til hendinni sem fyrst.
Bergur Elías Ágústsson sveitar-
stjóri segir að unnið sé að lausn
málsins en ekki sé hægt að greina
frá þeim gangi frekar nú. - jse
Íbúasamtök Raufarhafnar hafa sent húseiganda og yfirvöldum erindi:
Hafa áhyggjur af auðri blokk
BLOKKIN Á RAUFARHÖFN Hún má
muna sinn fífil fegri enda orðin lýti á
ljómandi fallegu þorpi. MYND/JÓNAS FRIÐRIK