Fréttablaðið - 18.07.2014, Blaðsíða 20
FÓLK|HELGIN
ALLIR ERU
VELKOMNIR
„Mikil áhersla er lögð
á fjölskyldustemningu
á hátíðinni og bjóðum
við börn sérstaklega
velkomin,” segir Krist-
björn R. Sigurjónsson
sem sést fyrir miðri
mynd í ljósbláum bol.
Hann hefur keppt öll
árin nema árið 2012.
Árleg Hlaupahátíð verður haldin á Ísafirði og í nágrenni um helgina en þetta er sjötta árið í röð sem hún er haldin. Hlaupahátíðin hefur fest sig í
sessi sem skemmtileg fjölskylduhátíð en þar geta allir fjöl-
skyldumeðlimir fundið eitthvað við sitt hæfi. Meðal keppn-
isgreina er hálft maraþon, 10 km hlaup, nokkrar gerðir
utanvegahlaupa og sjósundsgreina, auk hjólreiðakeppni.
Kristbjörn R. Sigurjónsson tekur þátt um helgina en
hann hefur keppt öll árin nema árið 2012 þegar hann tók
þátt í Járnkarlinum í Frankfurt í Þýskalandi. Hann segir
hátíðina vera einstaka enda blandist þar saman margar
kynslóðir sem keppi í ólíkum greinum og skemmti sér vel.
„Sjálfur hef ég alltaf hlaupið hálfmaraþonið á föstudeg-
inum en þetta er 18. árið sem ég keppi í slíkum hlaupum.
Tvisvar hef ég keppt í þríþraut og Vesturgötuhlaupið, sem
er 24 km, hef ég einnig hlaupið þrisvar sinnum. Mér hefur
gengið þokkalega þess ár, stundum náð verðlaunasæti og
stundum lent aftar í röðinni.“
Sjálfur er Kristbjörn 53 ára gamall og búinn að stunda
hlaup í tæp 20 ár. „Ég byrjaði að hlaupa árið 1995, hef
stundað skíðagöngu frá árinu 1996 og þríþraut síðan
1998.“
Undanfarin ár hafa um 300 einstaklingar tekið þátt og
margir taka þátt í tveimur eða fleiri greinum. Bestu hlaup-
arar landsins mæta til leiks sem og áhugamenn um hlaup,
hjólreiðar og sund. „Mikil áhersla er lögð á fjölskyldu-
stemningu á hátíðinni og bjóðum við börn sérstaklega
velkomin. Oft hleypur t.d. annað foreldrið Óshlíðarhlaupið
á föstudegi og svo hitt Vesturgötuna á sunnudegi.“
Að sögn Kristbjörns er bæjarbragurinn alltaf skemmti-
legur á Ísafirði en hann verður mun líflegri þegar svo
margt dugmikið fólk kemur í heimsókn. „Ísafjörður er nafli
alheimsins um páska þegar tónlistarhátíðin Aldrei fór ég
suður er haldin, einnig í byrjun maí þegar Fossavatns-
gangan er haldin á gönguskíðum, um miðjan júlí í kringum
Hlaupahátíðina og svo um verslunarmannahelgina þegar
Mýrarboltinn er.“
KEPPNI Í NAFLA ALHEIMSINS
HLAUPAHÁTÍÐ Kynslóðir keppa og skemmta sér saman á árlegri Hlaupahátíð um helgina á Vestfjörðum. Hátíðin er haldin
sjötta árið í röð og keppa um 300 manns á öllum aldri. Keppt er í nokkrum hlaupagreinum, hjólreiðum og sjósundi.
HRESSAR Keppt í 10 km hlaupi í Dýrafirði.Í FJÖRUNNI Hjólað undir Skútabjörgum í Arnarfirði.
LAGT AF STAÐ Keppendur hefja 21 km Óshlíðarhlaupið í Bolungarvík. MYNDIR/GUÐMUNDUR ÁGÚSTSSONS
Sunnudaginn 20. júlí eru 45 ár frá því menn lentu í fyrsta sinn á tunglinu. Af því tilefni
stendur The Exploration Museum
á Húsavík fyrir átta daga dagskrá
sem hófst á miðvikudaginn, sama
degi og Apollo 11 lagði af stað í
hina sögufrægu ferð 1969.
Spiluð verða öll samskipti geim-
farsins við jörð í rauntíma en ferðin
tók 195 klukkustundir. Hlynur Þór
Jensson hefur tekið saman allar
hljóðupptökurnar og raðað þeim í
tímaröð miðað við íslenska klukku.
Hápunktinum er náð á sunnudag-
inn þegar spiluð verður upptaka
frá tungllendingunni og fyrstu
tunglgöngunni.
Tunglið sjálft mun skipa heiðurs-
sess á safninu á sunnudagskvöld.
Tónlistarfólk mun leika lög um
tunglið, flutt verða ljóð um tunglið
og Sævar Helgi Bragason, ritstjóri
Stjörnufræðivefsins, fjallar stuttlega
um hina sögufrægu tunglgöngu
Af þessu tilefni verður miðnæt-
uropnun í safninu á sunnudag og
aðgangur ókeypis.
Áður en Apollo-geimfararnir
héldu til tunglsins voru þeir sendir
til Íslands til æfinga og eru margir
munir og ljósmyndir frá æfingum
þeirra hér á landi til sýnis í safninu
á Húsavík.
TUNGLLENDINGU
FAGNAÐ Á HÚSAVÍK
SAFN UM LANDKÖNNUÐI The Exploration Museum á Húsavík heldur upp á að 45 ár
eru liðin frá fyrstu tungllendingunni.
GEIMBÚNINGUR Neil Armstrong kom
til Íslands að æfa fyrir tunglgönguna.