Fréttablaðið - 18.07.2014, Page 28
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Samfélagsmiðlar og bloggið.
The Vanilla Bean Blog
http://thevanillabeanblog.com/
Sarah Kieffer stofnaði bloggið The
Vanilla Bean Blog einfaldlega vegna
þess að hún elskar að baka. Hún er
sjálflærður bakari en hefur viðað að
sér reynslu og þekkingu með því að
vinna í ýmsum bakaríum í Minneapolis
í Bandaríkjunum.
The Vanilla Bean Blog var valið besta
bökunar- og eftirréttablogg ársins 2014
af lesendum vefsíðunnar Saveur en
Sarah sjálf segir að hún hafi ekki viljað
að bloggið innihéldi aðeins fullt af upp-
skriftum. Hún vildi búa til arfleifð fyrir
fjölskyldu sína því þegar hún gekk með
blogghugmyndina í maganum gerði
hún sér grein fyrir því að fjölskylda
hennar ætti engar matarminningar.
Sarah á tvö börn og þau eru drifkraftur
hennar. Hún vill skilja eitthvað eftir fyrir
þau og einnig skapa minningar tengd-
ar mat fyrir fjölskyldu sína.
Það er því skemmtilegt að gramsa í
blogginu hennar því oftar en ekki flétt-
ast skemmtilegar fjölskyldusögur inn í
matarfróðleik og uppskriftir.
BLOGGARINN BESTA BÖKUNARBLOGG ÁRSINS 2014
Joanne Manaster
@sciencegoddess
Twitter-síða líffræðingsins Joanne
Manaster hefur náð á ýmsa lista
yfir Twitter-síður sem geta gert
þig aðeins klárari. Hún tístir um
alls kyns fróðleik og gerir hann
skemmtilegan og afar aðgengileg-
an fyrir þá sem vita ekki mikið um
líffræði. Stundum birtir hún líka
myndbönd sem eru ekki síður fræð-
andi og fyndin.
Who What Wear
https://www.facebook.com/
WhoWhatWear/
Hér er hægt að finna allt og ekkert
um tísku. Farið er ofan í saumana
á því í hverju stjörnurnar eru, hvort
sem það er á rauða dreglinum eða
á heilsubótargöngu, og boðið upp
á ráð um hvernig megi nota hitt og
þetta sem fyrirfinnst í fataskápnum.
Ekki er einblínt á hátísku heldur
einnig tísku á viðráðanlegu verði
fyrir hinn almenna borgara.
robpruitt5000
http://instagram.com/
robpruitt5000
Post-popplistamaðurinn Rob Pruitt
er óhræddur við að setja verk inn
á Instagram sem eru ansi frábrugð-
in því sem gerist og gengur. Hann
er afar vinsæll á síðunni og fylgjast
tæplega þrjú þúsund manns með
honum. Hann býður meðal ann-
ars upp á listaverkaröð sem heit-
ir Partídýr þar sem dýrabangsar
sjást svífa um með ský í bakgrunni.
Flippað og frekar töff á skringileg-
an hátt.
DAGAR
til 2. ágúst
í Smáralind og í Keflavík
20
afsláttur
/00
Umboðs- og dreifingaraðili Ray Ban á Íslandi
www.facebook.com/OpticalStudio
Andrea
Stefánsdóttir,
Ray Ban
mod 3025