Akureyri - 27.02.2014, Blaðsíða 6
6 8. tölublað 4. árgangur 27. febrúar 2014
Foreldrar svindl-
uðu á eigin prófi
Alvarlega er tekið á prófsvindli barna
en sjaldgæfara er að upp komist um
foreldra skólabarna sem svindla á
prófi og ætti ábyrgð þeirra þó að vera
meiri. Á fréttvaefnum 641 segir frá
máli þar sem Stjórnir foreldrafélaga
Litlulaugaskóla í Reykjadal, Hafra-
lækjarskóla og Barnaborgar í Aðal-
dal sendu tölvupóst á alla foreldra
barna í þessum skólum þar sem þeir
voru beðnir um að svara rafrænni
könnun um skólamál í Þingeyjar-
skóla þann 12. febrúar sl. Í þessari
könnun var aðeins ein spurning en
gefnir voru fimm svarmöguleikar við
henni. Var þess óskað að foreldrar
væru búnir að svara könnuninni fyr-
ir 15. febrúar svo tími gæfist til að
vinna úr niðurstöðunum.
Í fréttinni segir að til hafi staðið
að birta niðurstöðurnar á 641.is eins
fljótt og mögulegt væri og biðla til
þeirra sem hygðust bjóða sig fram í
sveitarstjórnarkosningunum í vor, að
hafa niðurstöðurnar í huga þegar þeir
settu saman stefnuskrár sínar.
„Samkvæmt heimildum 641.is
verða niðurstöðurnar ekki birtar þar
sem einhverjir foreldrar svindluðu í
könnuninni og því ekkert að marka
niðurstöðurnar. Fleiri atkvæði bárust
heldur en foreldrafjöldinn segir til um
á skólasvæði Þingeyjarskóla og þegar
forsvarsfólk könnunarinnar athugaði
það nánar kom í ljós að nokkuð var
um það að mörg atkvæði bærust frá
sömu ip-tölunni. Dæmi voru um allt
að 10 atkvæði frá sömu ip-tölunni.
Ljóst var því að einhverjir foreldrar
höfðu svindlað í könnuninni. Það skal
tekið fram að könnunin var einungis
send á þá foreldra sem eru með skráð
netföng í mentor og á netfangalista
leikskólanna,“ segir á fréttavef 641. a
Varhugaverð þróun
Landeigendur Reykjahlíðar ætla að
rukka ferðamenn um gjald fyrir að
skoða þrjá staði í þeirra landi. All-
ir þessir staðir eru vinsælir ferða-
mannastaðir og fjölsóttir af innlend-
um sem erlendum gestum ár hvert.
Um er að ræða hverasvæðið
austan Námaskarðs, Leirhnjúks-
svæðið og svæði við Dettifoss að
Selfossi. Gjaldtakan hefst 1. júní nk
og áætlað er að gjaldið verði um 5
evrur. Ólafur H. Jónsson formaður
Landeigendafélags Reykjahlíðar,
hefur látið hafa eftir sér að um 15
manns geti fengið vinnu í Mývatns-
sveit þetta sumarið við bæði gjald-
töku og eftirlitshlutverk á stöðunum.
Mikil umræða hefur skapast í
þjóðfélaginu eftir að landeigendur
við Geysi í Haukadal ákváðu að hefja
gjaldtöku á ferðamönnum þann 10.
mars nk. Ferðaþjónustan er ekki
einhuga um hvernig þessum málum
verði háttað í framtíðinni.
Edward H. Huijbens, forstöðu-
maður ransóknamiðstöðvar ferðamála,
segist hugsi yfir þróun mála:„Þetta
er kannski það ástand sem er hvað
varhugaverðast fyrir ferðaþjónustuna.
Það versta sem gæti gerst er að hver
og einn landeigandi myndi fara af
stað, setja upp hlið og rukka ferða-
menn, hver með sínu nefi. Yfirsýn og
heildræna stefnu vantar í þessum
málum. Heillavænlegast fyrir ís-
lenska ferðaþjónustu er að tekjurnar
af ferðamönnum komi í gegnum skatt-
kerfið og ríkið stæði að uppbyggingu
á ferðamannastöðum þannig.“
Aðalfundur Landssamtaka land-
eigenda á Íslandi var haldinn 20.
febrúar sl. Þar kom fram mikill og
eindreginn stuðningur við gjaldtöku
á vinsælum ferðamannastöðum. Örn
Bergsson, formaður LLÍ segir í skýr-
slu stjórnar á aðalfundi að „hags-
munir ferðaþjónustu eigi að fara
saman við vernd ákveðinna svæða
og skynsamlega útfærða gjaldtöku.
Stjórn samtakanna telur að gjald-
taka á fjölmennustu ferðamanna-
stöðum sé löngu tímabær en síðan
verði komugjald eða náttúrupassi
sem fjármagni minni staði. - SA
(Edward birtir aðsenda grein um
málið. Sjá blaðsíðu 12.)
Einsöngvarar með kórnum eru Garðar Thor Cortes
og Ari Jóhann Sigurðsson
Stjórnandi Stefán R. Gíslason :: Undirleikari Thomas Higgerson
Fjölbreytt og skemmtileg efnisskrá,
óperuaríur og sígild kórverk, íslensk og erlend.
Miðasala hjá www.menningarhus.isNÝ
PR
EN
T
eh
f.
Garðar Thor Cor
tes
Ari Jóhann Sigurð
sson
www.heimir.is
Karlakórinn Heimir
& garðar thor cortes
í Menningarhúsinu HOFI
sunnudaginn 2. mars 2014, kl. 16
LEIÐRÉTTING
Í síðasta tölublaði var í leiðara ranghermt að Brynjar Karl Óttarsson kennari,
sem hefur starfað með nemendum að ritun texta og haft milligöngu um
að pistlar frá nemum hafa birst í Akureyri vikublaði, væri kennari í Síðu-
skóla. Hið rétta er að Brynjar Karl er kennari við Giljaskóla. Biðst blaðið
velvirðingar á mistökunum.
Norræn listahátíð
20. - 23. ágúst næstkomandi verður
haldin Norræn þjóðlistahátíð á Ak-
ureyri. Þar koma fram hæfileikaríkir
tónlistarmenn og dansarar frá norð-
urlöndunum öllum og sína hvaða
kraftur, fegurð og fjör býr í listformi
byggðum á rótgrónum hefðum. Allir
eru velkomnir á hátíðina, enda er
hún vissulega fyrir fólk á öllum aldri
og ekki síst ungafólkið sem eflaust
uppgötvar að nýja íslenska tónlistin
tegir rætur sínar langt aftur í aldir.
Aldrei fyrr hefur verið haldin
listahátíð með þjóðtónlist og þjóð-
dansi allra Norðurlanda, segir í
tilkynningu frá aðstandendum. Á
hátíðinni megi heyra og sjá kraft-
miklar hljómsveitir, fjörugan dans,
flottan söng og hljóðfæraleik. Tón-
leikar, danssýningar og námskeið
fari fram um allan Akureyrarbæ,
frá morgni fram á nótt, inni jafnt
sem úti, fyrir gesti og gangandi, svo
bærinn iði af fjöri.
Íslenskum tónlistarmönnum,
hljómsveitum, dönsurum og dans-
hópum er boðið að taka þátt í hátíð-
inni með því að senda inn rafræna
umsókn sem má nálgast á heimasíðu
hátíðarinnarwww.tradition.is. Um-
sóknarfrestur er til og með 1. maí 2014.
Í samstarfi við tónlistarskóla
landsins verður ungu og upp-
rennandi tónlistarfólki boðin þátt-
taka í hátíðinni með því að koma
fram á Sprotasviði. Þar gefst unga
fólkinu tækifæri til að túlka ís-
lenska þjóðlagatónlist á frumlegan
og skemmtilegan hátt og einnig sjá
og heyra færustu þjóðtónlistarmenn
norðurlanda. Á hátíðinni verða
einnig mörg námskeið í boði , s.s.
að spila á kantele og þjóðlagafiðlu,
syngja þjóðlög frá Svíþjóð, Færeyj-
um og jafnvel Grænlandi og dansa
hambo, polska og vikivaka.
Á hátíðinni verða líka fræðimenn
að fjalla um Norræna þjóðtónlist og
þjóðdansa og Norrænir ráðamenn
til að kynnast fjölbreyttri flóru
Norrænnar menningar og skiptast
á skoðunum um verndun menningar-
erfða. Öllum er velkomið að taka
þátt í ráðstefnunni og fræðast um
Norræna þjóðtónlist og þjóðdansa
en nauðsynlegt er að þátttakendur
skrái sig á heimasíðu hátíðarinnar.
Ráðstefnan fer fram í húsakynnum
Háskólans á Akureyri.
Framkvæmdastjóri hátíðarinnar
er Guðrún Ingimundardóttir, tónlist-
arfræðingur.
Norræna listahátíðin er styrkt
af Norrænu menningargáttinni. a
RÉTTUR ALMENNINGS TIL ferða um landið gæti orðið bitbein milli þeirra sem eiga
lögvarinn rétt til umferðar og þeirra sem þurfa að standa undir kostnaði við átroðning
á fjölsóttum ferðamannastöðum. Völundur