Akureyri - 22.05.2014, Síða 24
14.500 EINTÖK FRÍTT UM ALLT NORÐURLAND Á HVERJUM FIMMTUDEGI | AUGLÝSINGAR 578 1190 & AUGLYSINGAR@FOTSPOR.IS | RITSTJÓRN 862 0856 & BJORN@AKUREYRIVIKUBLAD.IS
VI
KU
BL
AÐ
Hégómi
Ég er hégómagjarn. Þegar ég
skrifa eitthvað á Facebook þá
er ég stöðugt að athuga hversu
margir hafa merkt við að þeim
líki skrifin. Þessir pistlar sem
ég skrifa í þetta blað komast
oft á lista yfir það sem mest er
lesið. Ég á sjálfur heiðurinn af
þeirri stöðu, enginn les þetta
oftar en ég.
Mér finnst dásamlegt að láta
hæla mér, læt samt alltaf eins
og mér finnist það óþægilegt,
fer hjá mér og verð auðmjúkur.
Það er uppgerð. En þessi þörf
fyrir hól hefur oft komið mér í
vandræði.
Einu sinni var ég á keppnis-
ferð í London. Við áttum lausan
dag og nýttum hann til að rölta
í verslanir eins og flestir karl-
menn gera en viðurkenna fæst-
ir. Eins og vanalega í þessum
ferðum átti ég lítið af pening-
um. Ég fór inn í fatabúð. Er
ég kom inn mættu mér piltur
og stúlka, bæði gullfalleg. Þau
gripu mig undir sinn arminn
hvort og leiddu mig inn í búð-
ina. Og þau skjölluðu mig lát-
laust.
Eini vandinn var að þessi
verslun seldi bara jakkaföt. Ég
hef aldrei gengið í jakkafötum
á ævinni, hvorki fyrr né síðar
og það gildir enn.
En skjallið var gott og það
fylgdu með strokur og klapp.
Svo ég mátaði jakkaföt. Þegar
ég var kominn í þau höll-
uðu þau sér bæði upp að mér,
struku yfir bringuna á mér og
sögðu: “Með svona líkama fer
allt þér vel”.
Stuttu síðar stóð á gang-
stéttinni. Ég hélt á poka sem
innihélt tvenn jakkaföt.
Ég þurfti að fá lánað fyrir
mat. a
UM DAGINN OG VEGINN
JÓN ÓÐINN WAAGE
SKRIFAR