Fréttir - Eyjafréttir - 14.01.1993, Blaðsíða 10
ORÐSPOK
Fimmtudaginn 14. janúar 1993 •
Aukið öryggi í heitupottunum.
Fyrir skömmu var á boröum
stjórnar Iþróttamiðstöðvar
skýrsla Vinnueftirlits ríkisins
vegna óhapps sem varð i
nuddpotti íþróttamiðstöðvar sl.
sumar en þá mátti litlu muna að
illa færi þegar stúlka festist á
hárinu í sogdælu í pottinum.
I skýrslunni er lagt til að sett
verði upp aðvörunarskilti og •>.
neyðarstopp á loft- og vatnsdæl-
ur pottanna. Forstöðumaður
upplýsti að nú væri búið að upp-
fylla óskir Vinnueftirlitsins.
Hækkar ekki að sinni. Stjórn
íþróttamiðstöðvar samþykkti á
fundi fyrir skömmu að fara ekki út
í gjaldskrárhækkun að sinni,
þrátt fyrir að sundstaðir í Beykja-
vík hafi hækkað gjaldskrá í okt-
óber sl. og íþróttamiðstöðin í
Vm. hafi ningað til látið gjaldskrá
i sund fylgja gjaldskrá sundstaða
i Reykjavík. Jafnframt var sam-
þykkt að hefja sölu á 30 miða
afsláttarkortum til einstaklinga og
fyrirtækja. Kosta þau 2700 kr.
eða 90 kr. á miða en venjulegt
giald er 120 kr.
Gísli Helga og Bylgjan minnast
20 ára gosafmælis. Bylgjan hef-
ur ákveðið að minnast 20 ára
gosafmælisins með beinum út-
sendingum frá Eyjum um aðra
helgi.
Utsendingarnar hefjast á
föstudag og standa fram á laug-
ardaginn 23. janúar, gosdaginn,
og þá verður Páll Magnússon
með þátt og ræðir við Vestmann-
aeyinga sem upplifðu örlagadag-
inn 23. janúar 1973 þegar gosið
hófst.
Gísli Helgason verður með út-
sendingar héðan á öllum út-
varpsstöðvum föstudag og laug-
ardag.
Golfklúbburinn sendi bæjarráði
erindi þar sem fram kemur að
golfarar eru tilbúnir til að bera
allan kostnað við uppgröft, og
undirbyggingu með bögglabergi
ef breytinqar verði á vegi frá
Fjósakletti að Kaplagjótu.
Kostnaður bæjarsjóðs yrði efsta
burðarlag úr sandi, grassteinar
og niðurlagning þeirra. Bæjar-
ráð vísaði erindinu til tæknideild-
ar, HUN-nefndar, byggingar-
nefndar og umferðarnefndar til
umsagnar.
Hiigmynd Golfklúbbsins er að
taka Torfmýrarveg undir völlinn
og vegur frá Fjósakletti komi í
staðinn.
Unaöslegir morgnar. Starfs-
menn bæjarins hafa síðustu
daga rifið sig upp eldsnemma á
morgnana til að ryðja götur
bæjarins. Eru þeir búnir að ryðja
allar götur áður en bjarbúar fara
á fætur. Þessu fylgir þó að menn
eru að vakna fyrir allar aldir við
hávaðann í ruðningstækjunum.
Þá er oftast of snemmt að fara í
vinnu en ekki tekur því að fara að
sofa og er því þrautalendingin
hjá mörgum að nýta tímann til að
blóta Ástarguðinn og segja þeir
sem best fylgjast með að þess
muni sjá merki á fæðingardeild
Sjúkrahússins í byrjun október í
haust.
A-A FUNDIR
A-A fundir eru haldnir sem hér segir í
húsi félagsins að Heimagötu 24: Sunn-
udaga kl. 11:00, mánudaga kl. 20:30,
fimmtudaga kl. 20:30, föstudaga kl.
23:30 og laugardaga, fjölskyldufundir
kl. 20:30. Athugið símatíma okkar
sem eru hvern fundardag og hefjast 30
mín. fyrir ákveðinn fundartíma er \ 2
klst. í senn.
KIRKJUR
Aheit og gjafir til Landakirkju
Frá 1. janúar til 31. desember
1992 bárust eftirfarandi gjafir og
áheit til Landakirkju:
SJ kr. 5000, Kjartan Fr. Adólfs-
son kr. 1.000, GS kr. 1.500, MS kr.
500, Björg kr. 1.000, NN kr. 5.000,
GK kr. 2.000, VEL kr. 5.000, Sísi
Guðmundsdóttir kr. 300, MJ kr.
5.000, Björney Björnsdóttir, Hlíf 2,
ísafirði kr. 8.000, GS kr. 1.000, MJ
kr. 3.000, NN kr. 1.000, JG kr.
5.000, Margrét kr. 1.000, Aueun.
hf. kr. 15.000, Sigríður Ólafsdóttir,
Hringbraut 61, Reykjavík kr. 1.000,
KE kr. 1.000, Magnús Jónasson kr.
3.000, NN kr. 1.000, NN kr. 1.000,
ÍBV kr. 5.000, RH kr. 2.000, Klara
Friðriksdóttir kr. 5.000, Knatt-
spyrnufélagið Týr kr. 15.000, Krist-
inn Pálsson kr. 10.000, NN kr. 500,
Jóhanna Magnúsdóttir, Gerðisbraut
1, Vestmannaeyjum kr. 2.000, GS
kr. 3.000, IH kr. 3.500, NN kr.
1.000, MN kr. 500, Elín Guðjóns-
dcttir, Kópavogi kr. 5.000, Elínborg
Sigurbjörnsdóttir kr. 2.000, Guðrún
Ólafsdóttir frá Strönd, Dalbraut 27,
Reykjavík kr. 3.000, GG kr. 4.000,
GK kr. 2.000, Hulda Þorsteinsdóttir
kr. 3.000, Jóhann Ólafsson, Faxa-
stíg 49 kr. 3.000, NN kr. 1.000, ES
kr. 3.000, Leiguflug Vals Andersen
kr. 7.500, GS kr. 3.000, JS kr. 1.000,
Þórunn Gísladóttir, Höfðavegi 43c
kr. 10.000, GES kr. 5.000, GE kr.
5.000, Jón Karlsson, skipstjóri kr.
10.000 og loks var söfnunarkistill í
Landa-kirkju tæmdur og reyndust
vera í honum kr. 14.132.
Samtals eru þetta kr. 176.432 á
árinu 1992.
'Þá gaf Einara Sigurðardóttir vegg-
teppi í minningu um foreldra sfna
Margréti V. Gunnlaugsdóttur og
Sigurð Þorleifsson frá Hruna. Versl-
unin Drífandi og Kvenfélag Landa-
kirkju gáfu borðtennisborð og til-
heyrandi og Verslunin Oddurinn gaf
í minningu Karls J. Birgissonar fót-
boltaspil. Þessar síðustu gjafir hafa
verið notaðar í barna- og æskulýðs-
starfi kirkjunnar.
Argentína steikhús og Við fél-
agarnir verða með uppákomu um
aðra helgi þar sem bæjarbúum gefst
gullið tækifæri á að kitla bragðlauk-
ana.
Þeir félagarnir hafa fengið Jónas
Þór, kjötverkanda, í lið með sér og
verður hann með grillnámskeið á
fimmtudagskvöldið 21. janúar nk.
Jónas Þór kennir meðferð hráefnis
og leiðir fólk síðan f allan sannleik-
ann um hvernig á að fá það besta út
úr því eftir að það er komið á grillið.
Á föstudags- og laugardagskvöld
Sóknarnefnd Landakirkju færir
gefendum og velunnurum nær og
fjær bestu þakkir fyrir hlýhug í garð
kirkjunnar, og biður þeim Guðs
blessunar, um leið og sendar eru
bestu nýársóskir til landsmanna
allra.
Vestmannaeyjum, 4. janúar 1993.
Ágúst Karlsson, féhirðir.
mæta kokkar og þjónar af Argentínu
með alvæpni, með þeirra eigin mat-
seðil. Bjóða þeir upp á fjórréttaða
máltíð sem kostar 3200 krónur. Þeir
sem vilja fara á ball með Hálft í
hvoru þurfa að borga 4200 fyrir
bakkann.
Benni Torfa segist vonast eftir
góðum viðtökum bæjarbúa við þess-
ari nýbreytni. Verði þátttaka góð
munu þeir bjóða upp á fleiri slíkar
uppákomur í vetur. Þeir sem hafa
áhuga á grillnámskeiðinu eru hvattir
til að skrá sig sem fyrst í síma 12577.
urðu á fólki og bílar ekki mikið
skemmdir.
Síðdegis sama dag fuku fiskikör á
bíl við Fiskiðjuna.
Á föstudaginn var tilkynnt um
innbrot í hús við Vesturveg þar sem
stolið var nokkrum myndböndum.
Á föstudaginn var alvarleg á-
keyrsla á Hamarsvegi við Hástein.
Segir lögreglan mestu mildi að ekki
varð stórslys. Bíl var ekið austur
Hamarsveg og missti ökumaður
stjórn á honum í hálku við Hástein
með þeim afleiðingum að bíllinn fór
út af veginum og hafnaði á ljósa-
staur. Bíllinn er ónýtur að sögn
lögreglu og það eina sem farþegi og
ökumaður kvörtuðu yfir voru eymsli
í hálsi og hné.
Á laugardaginn var tilkynnt um
innbrot í Suðurey VE. Ekki er vitað
hvenær brotist var inn en rótað var í
lyfjakistu en ekki að sjá að nokkuð
vantaði.
Að öðru leyti var helgin róleg en
lögreglan situr ekki auðum höndum
og einbeitir sér að krökkum sem
leika þann stórhættulega leik að
hanga aftan í bílum. Þetta er einn af
fylgifiskum snjósins og er alltaf jafn-
vinsæll hjá krökkum. Lögreglan hef-
ur staðið krakka, allt niður í tíu ára
gamla, að því að hanga aftan í. Farið
er með þau upp á lögreglustöð þar
sem þeim er lesinn pistillinn og síðan
er hringt í foreldrana og þeir látnir
sækja krakkana eða þeim er keyrt
heim. Virðist þetta hafa borið árang-
ur því þessir krakkar sjást ekki aftur
hanga aftan í bílum. Vill lögreglan
hvetja foreldra til að brýna fyrir
börnum sínum að hætta þessu.
LANDAKIRKJA
Sunnudagur 17.1 kl. 11:00
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta.
kl. 14:00 Almenn Guðsþjónusta
- akstur frá Hraunbúðum.
kl. 20:30 KFUM & K - unglingar.
Miðvikudagur 20.1 kl. 10:00
Mömmumorgunn
kl. 12:10 Kyrrðarstund.
- Orgeltónlist í Kirkjunni kl. 12:00 -
12:10. Súpa og brauð og kaffisopi á
eftir.. og svo beint í vinnuna!
kl. 17:30 TTT - Fundur Tíu til Tólf
ára barna.
Rafmagns-
álag um
jólin
Skömmu fyrir jól velti Garri upp
þeirri spurningu í pistli sínum hversu
mikið álag væri á rafkerfi Bæjar-
veitna vegna jólaskreytinga. Sam-
kvæmt okkar útreikningum er álag
vegna jólaskreytinga ca. 300 kW.
Orkunotkun okkar Eyjamanna
vegna þessa gæti því numið allt að
120.000 kWst.
Einnig er mjög fróðlegt að skoða
álagið yfir hátíðadagana. Á rafveit-
una verður álagsaukningin mest á
aðfangadag og gamlársdag. Þarveld-
ur mestu að þá eru 1.550 jóla- og
áramótasteikur með tilheyrandi
eldamennsku í gangi milli kl. 15:00
og 18:00. Nú í ár fór álag rafveitu í
7.000 kW á þessu tímabili, það lætur
nærri að vera 30% aukning á með-
alálagi þessara daga. Til þess að elda
góðgætið notuðum við orku sem
nam 9.000 kWst.
Sama má segja hvað varðar hit-
aveituna, þar eru þessir dagar álags-
mestu dagar ársins. Mesta álag hit-
aveitu fór í tæp 16.000 kW, sem er
33% aukning á meðalálagi þessara
daga. Þar veldur mestu um að vel á
fimmta þúsund Eyjabúar fara í jóla-
og áramótabaðið á milli kl. 15.00 og
18:00. Til þess að taka þátt í jólahá-
tíðinni með hreint ytra byrði notuð-
um við þvf 24.000 kWst. af varma-
orku.
Sé þetta allt samantekið og því
bætt við „herkostnað" vegna jól-
ahaldsins kemur í ljós að við höfum
notað orku fyrir allt að 1,0 milljón
kr. vegna þessara hátíðarhalda.
Að endingu viljum við þakka
Garra fyrirspurnina og óska honum
og öðrum bæjarbúum gleðilegs árs,
með þökk fyrir ánægjulegt samstarf
á liðnu ári.
Eiríkur Bogason,
veitustjóri.
Úr dagbók lögreglunnar:
Tíðindalaust í
óveðri helgarinnar
Vestmannaeyingar sluppu tiltölu-
lega létt frá óveðrinu sem gekk yfir
landið um helgina. Hvasst var á
sunnudaginn og aðfararnótt mánu-
dagsins en ekki var lögreglu kunnugt
um skemmdir af völdum óveðursins.
Talsverð ófærð var í bænum en
starfsmenn bæjarins, undir stjórn
Ragga Bald, stóðu sig eins og hetjur
í að halda götum hreinum.
Á fimmtudaginn var lögreglu til-
kynnt um árekstur á mótum Kirkju-
vegar og Heiðarvegar. Engin slys
Argentina steikhús
Með strandhögg í
vestmannaeyjum
9 Bfllinn er gjörónýtur og mikil mildi var að fólkið slapp án mikilla
meiðsla eftir ákeyrsluna.
Bahá’f samfélagið
Opið hús að Kirkjuvegi 72B,
fyrsta fimmtudag hvers
mánaðar kl. 20:30.
Almennt umræðuefni. allir vel-
komnir. Heitt á könnunni.
Al - Anon
Byrjendafundir kl. 20:00.
Almennir fundir kl. 20:30.
Að Heimagötu 24.
Útgefandi: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson.
Blaðamaður: Þórhallur Einisson. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson og Gísli
Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjómar:
Strandvegi 47, II. hæð. Símar: 98-13310 & 11210. Faxnúmer: 98-11293.
FRÉTTIR koma út síðdegis alla fimmtudaga. Blaðinu er dreift í allar verslanir
Vestmannaeyja, auk þess fæst blaðið á afgreiðslum Flugleiða, og Islandsflugs í
Reykjavík og versluninni Svalbarða við Framnesveg í Reykjavík. FRÉTTIR er
aðili að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. FRÉ l'l lR eru prentaðar í 2200
eintökum.