Skessuhorn


Skessuhorn - 06.08.2008, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 06.08.2008, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS - www.skessuhorn.is 32. tbl. 11. árg. 6. ágúst 2008 - kr. 400 í lausasölu Sparisjóðurinn býður nú viðskiptavinum sínum upp á SP12, hávaxta sparnaðarleið í Heimabankanum, sem felur í sér mánaðarlega útgreiðslu vaxta. Reikningurinn er óverðtryggður og óbundinn og fara vextir eftir innstæðu hans. Fjárhæðin er ávallt laus til útborgunar og millifærsla í Heimabankanum er gjaldfrjáls. SP12 er frábær kostur fyrir þá sem vilja sjálfir halda utan um sinn sparnað.Fí t o n / S Í A Hæsta einkunn í ánægjuvog fjármálafyrirtækja DÚX Nú greiðum við vexti mánaðarlega SPARISJÓÐURINN Mýrasýsla | Akranes SPM_SPA_skessuhorn_255x70.ai 1/15/08 11:29:51 AM C M Y CM MY CY CMY K Lög regl an í Borg ar firði og Döl­ um seg ir að telja megi víst að ekki hafi ver ið mik ið færri ferða menn í um dæm inu öllu en á stærstu úti­ há tíð um lands ins, þótt dreif ing in á mann skapn um hafi ver ið meiri. Talið er að um 3­4 þús und manns hafi ver ið í Húsa felli, um þús und manns voru á Þór is stöð um, í Fossa­ túni og að Hlöð um þar sem SÁÁ stóð fyr ir fjöl skyldu há tíð. Auk þess var marg menni í Vatna skógi og á ferða manna stöð um í Döl um og á Snæ fells nesi. Yfir 33 þús und bíl­ ar fóru í gegn um Hval fjarð ar göng. Þrátt fyr ir fjöl menn ið og mikla um­ ferð fór allt vel fram og lít ið var um um ferð ar ó höpp. sók Sjá nán ar á bls. 6 Ó laf ur Jök ull Her berts son býr á Hell issandi á samt sænskri kær ustu. Þar hef ur hann kennt fim leika og aðr ar í þrótt ir auk þess sem hann hef ur haft at vinnu af því að mynd­ skreyta allt frá mót or hjóla hjálm um og vélsleð um til raf magns gít ara. Hann seg ist vera „alt múlig mað ur“ og að indíáni frá Banda ríkj un um og munk ur frá Tí bet hafi kom ið hon­ um á beinu braut ina í líf inu. Sjá nán ar á bls. 11. Jó hanna H. Sig urð ar dótt ir í Dala byggð, greið ir hæstu op­ in beru gjöld in á Vest ur landi þetta árið. Sam kvæmt á lagn­ ing ar skrá skatt stjór ans í Vest­ ur lands um dæmi greið ir Jó­ hanna rúmlega 213 milljónir krón a í op in ber gjöld. List inn yfir 10 gjalda hæstu ein stak ling ana á Vest ur landi lítur svona út: 1. Jó hanna H. Sig urð ar­ dótt ir, Dala byggð, 213.369.939 kr. 2. Ó laf ur Ó lafs son, Eyja­ og Mikla holts hreppi, 145.375.301 kr. 3. Jör und ur Svav ars son, Helga fells sveit, 37.116.915 kr. 4. Þor grím ur Benja míns­ son, Snæ fells bæ, 34.132.444 kr. 5. Örn Gunn ars son, Akra­ nesi, 28.590.226 kr. 6. Rakel Ol sen, Stykk is­ hólmi, 25.889.087 kr. 7. Jón Þór Halls son, Akra­ nesi, 21.344.361 kr. 8. Krist ján G. Ragn ars son, Helga fells sveit, 19.698.482 9. Sig mund ur G. Sig urðs­ son, Akra nesi, 18.239.248 kr. 10. Guð ný R. Þor finns­ dótt ir, Akra nesi, 16.006.944 kr. hb Vest ur land vin sælt um helg ina Munk ur og indíáni Síð ast lið inn mið viku dag ur var einn heit asti dag ur í manna minn um á Ís landi. Langisand ur á Akra nesi var þétt set inn þann dag líkt og flesta daga í lið inni viku. Sum ir gengu svo langt að segja að lík lega hefðu aldrei sést fleiri sam an komn ir á sand in­ um held ur en einmitt þenn an mið viku dag. Ljós mynd ari Skessu horns hitti þar fyr ir þessa ungu menn sem voru önn um kafn ir við að reisa hin ýmsu mann virki og grafa skurði á milli þess sem þeir busl uðu í sjón um. Ljósm. hög. Gjalda hæstu eins tak ling arn ir á Vest ur landi Tíðindi liðins föstudags um afar slæma afkomu Sparisjóðs Mýrasýslu á fyrri hluta þessa árs komu eins og reiðarslag yfir íbúa Borgarbyggðar og þar með eigendur alls stofnfjár í sparisjóðnum. Viðsnúningur í rekstri sjóðsins hefur verið með þeim hætti að líkja má því við hrun. Samanlagt skilaði sjóðurinn yfir tveimur milljörðum króna í nettóhagnað árin 2006 og 2007 en nú virðist sem tap á rekstri fyrstu sex mánuði þessa árs nemi milljörðum króna. Skessuhorn fjallar ítarlega um málið á opnu blaðsins í dag þar sem skýringa er meðal annars leitað hjá stjórnendum sparisjóðsins á því hverjar ástæður fallsins eru. Þar kemur fram að einsleitt hlutabréfasafn SPM og hrun á gengi hlutabréfa auk erfiðleika við endurfjármögnun séu helstu skýringar bágrar stöðu sparisjóðsins. Þá er rætt við forseta sveitarstjórnar Borgarbyggðar um næstu viðbrögð eigenda enda er boltinn hjá sveitarstjórn í málefnum sjóðsins eftir að stjórn SPM lagði fram tillögu um viðræður við Kaupþing. Boðað verður til borgarafundar í Borgarbyggð í næstu viku um málið. Samkvæmt tillögum stjórnar SPM verður Kaupþingi banka og tengdum aðila boðið að auka stofnfé í Sparisjóðnum um tvo milljarða króna. Ef það verður samþykkt á fundi fulltrúa stofnfjáreigenda mun eignarhlutur Borgarbyggðar á eftir verða 20%, metinn á 500 milljónir króna. Eigið fé Sparisjóðs Mýrasýslu var hins vegar 6,3 milljarðar króna um síðustu áramót. Þó að milliuppgjör liggi ekki fyrir, og því fáist ekki upplýsingar um raunverulega niðurstöðu rekstrar SPM fyrstu 6 mánuði ársins, má gera ráð fyrir að tap SPM nemi að minnsta kosti 3,5­5 milljörðum króna það sem af er ári. Sjá ítarlega umfjöllun og viðtöl á bls. 8 og 9. mm Lífróður til bjargar SPM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.