Gaflari - 13.11.2014, Page 2
2 - gafl ari.is
Enn barist í
skotgröfum í
bæjarpólitík-
inni?
FRÉTTIR Í aðdraganda bæjar-
stjórnarkosninganna var mikið
rætt um samvinnupólitík, að
flokkar ættu að vinna meira
saman en tíðkaðist og var Björt
framtíð þar fremst í flokki.
Forsenda fyrir samvinnu hlýt-
ur að vera sú að allir séu með í
öllu ef svo má að orði komast.
Í nefndum og ráðum bæjarins
sitja þrír fulltrúar sem bæjar-
stjórn kýs. Á síðasta kjörtímabili
voru þrír flokkar í bæjarstjórn-
inni en eru nú fjórir og þar með
er einn flokkur útilokaður frá
borðinu. VG óskaði því eftir að
fá áheyrnafulltrúa m.a. í menn-
ingar- og ferðamálanefnd og
íþrótta- og tómstundanefnd.
Þessari beiðni hafnaði meirihlut-
inn á fundi forsetanefndar. Guð-
rún Ágústa Guðmundsdóttir,
formaður VG í Hafnarfirði segir
eðlilegt að allir flokkar eigi full-
trúa í nefndum og ráðum bæj-
arins. „Þannig er öllum tryggður
aðgangur að ákvarðanaferli
mála sem tekin eru til umfjöllun-
ar í viðkomandi nefndum.“
Guðlaug Kristjánsdóttir, odd-
viti Bjartrar framtíðar, bendir á
að tveir flokkar séu í meirihluta
bæjarstjórnar og Björt framtíð
eðli máls samkvæmt ekki ein-
ráð. „Fyrir forsetanefnd lágu alls
þrjár beiðnir um áheyrnarfull-
trúa og um tvær þeirra náðist
samstaða en því miður ekki þá
þriðju.“
Guðlaug segir að Björt framtíð
beiti sér fyrir víðtæku samstarfi
og málefnalegu samtali innan
bæjarstjórnar. „Það er trú okkar
að betra sé að ræða saman en
togast á. Samvinnupólitík verður
ekki unnin nema allir taki þátt,
svo mikið er víst. Enginn einn get-
ur haldið henni gangandi, en það
þarf bara einn til að hindra að hún
takist. Okkur er vel ljóst að innan
hafnfirskrar pólitíkur er víða að
finna skotgrafir en við forðumst
þær af fremsta megni héðan eft-
ir sem hingað til. Það dugar ekki
annað en vera bjartsýnn.“
Sjá nánari umfjöllun á gaflari.is
Sá ekki fyrir að kostnaður
yrði 116 milljónir
Frambjóðandi Bjartrar fram-
tíðar ráðinn verkefnastjóri
FRÉTTIR Guðrún Ágústa Guðmunds-
dóttir, fyrrverandi bæjarstjóri, segir
að ástandið í umræðunni um fjármál
Hafnarfjarðar hafi verið með þeim
hætti á sínum tíma að ekki hafi verið
hægt að vinna að endurfjármögnun lána
bæjarins fyrir opnum tjöldum. 116 millj-
óna króna reikningur frá HF verðbréfum
sem vann að endurfjármögnuninni með
bæjarstjóra og fjármálastjóra bæjarins
kom Rósu Guðbjartsdóttur, núverandi
formanni bæjarráðs, mjög á óvart. Hún
segir að samningurinn hafi ekki verið
lagður fyrir fyrrverandi bæjarstjórn og
hyggst láta kanna lögmæti hans.
Guðrún Ágústa segir hins vegar að fyr-
irspurn oddvita Sjálfstæðisflokksins
hafi verið svarað í pontu í bæjarstjórn
við umræðu um fjárhagsáætlun fyrir
árið 2014.
Þegar Guðrún Ágústa er spurð hvort 116
milljónir geti talist eðlileg upphæð fyrir
þetta verkefni segir hún að HF Verð-
bréf hafi verið þeirra helstu ráðgjafar.
Fyrirtækið hafi áður unnið að sam-
skornar verkefni fyrir Kópavogsbæ og
Orkuveitu Reykjavíkur og vel hafi verið
látið af störfum þeirra. Samningurinn
við HF Verðbréf hafi verið sambæri-
legur samningum sem gerðir voru við
þessa aðila. Annars vegar hafi verið um
að ræða ráðgjafarvinnu og hins vegar
samning um þóknun sem tengist end-
anlegri útkomu vinnunnar þ.e. endurfjár-
mögnuninni sjálfri .
Rósa Guðbjartsdóttir, ásamt Haraldi L.
Haraldssyni, bæjarstjóra og Guðlaugu
Kristjánsdóttur, forseta bæjarstjórnar,
sendu frá sér yfirlýsingu þar sem fram
kemur að öll upphæðin sé greidd af
fjárlið sem kallast rekstrar- og ráðgjaf-
arþjónusta, hvergi komi fram að um
tvíþættan samning hafi verið að ræða.
Heimilt hafi verið samkvæmt fjárhags-
áætlun að greiða 7 milljónir í ráðgjafa-
þjónustu árið 2014 og kostnaður því
farið umfram heimild um tæpar 107
milljónir vegna þessa máls.
Guðrún Ágústa segir að erfitt hafi verið
að sjá fyrir kostnaðinn. „Við vinnu fjár-
hagsáætlunar hvers árs er gert ráð fyrir
svigrúmi til að fá aðstoð vegna þessara
samskipta og vinnu þ.e. þann tíma
sem tilheyrir ráðgjafarvinnunni sjálfri.
Þóknunina vegna þess að samningar
náðust um fyrirkomulag endurfjár-
mögnunarinnar var erfitt að áætla fyrir
því að þar er um að ræða uppgjör á láni
sem fylgdi mikil gjaldeyrisáhætta.“
Guðrún Ágústa segist ekki hafa áhyggj-
ur af því að oddviti Sjálfstæðisflokksins
ætli að láta kanna lögmæti samningsins
við HF Verðbréf. „Ég velti því hins vegar
fyrir mér hvað vakir fyrir núverandi
meirihluta og bæjastjóra í þessu máli?
Ætla þau sér líka að efast um lögmæti
endurfjármögnunarinnar sjálfrar? Hver
hagnast af því sem nú er í gangi? Ekki
bæjarbúar, starfsfólk eða fyrirtæki í
Hafnarfirði.“
H
Rósa Guðbjartsdóttir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir
Skipulags- og byggingaráð Hafnar-
fjarðarbæjar samþykkti í síðustu viku
að hefja ætti vinnu við að þróa svæðið
frá Suðurbakka Hafnarfjarðarhafnar
að sjóvarnargarði norðan Slippsins, í
daglegu tali kallað Flensborgarhöfn.
Búið var að leggja fram lýsingu á verk-
inu en á fundi ráðsins nú í vikunni var
einnig gengið frá ráðningu verkefn-
isstjóra. Svo virðist sem bæjarstjórn
Hafnarfjarðar hafi ekki leitað langt yfir
skammt því verkefnastjórinn, Magnea
Guðmundsdóttir, arkitekt, kemur úr
röðum Bjartrar framtíðar. Magnea
skipaði 6. sæti lista Bjartrar framtíðar í
Reykjavík í síðastliðnum sveitarstjórn-
arkosningum og situr nú fyrir hönd
Bjartrar í Umhverfis- og skipulagsráði
Reykjavíkurborgar. Magnea situr
einnig í Innkauparáði Reykjavíkur-
borgar og í stjórn Bjartrar Framtíðar.
Það verður að teljast nokkuð sér-
kennilegt að ráðinn sé verkefnastjóri
í Hafnarfjörð sem með svo afgerandi
hætti starfar fyrir Reykjavíkurborg á
sama sviði. Því verður vart hjá því kom-
ist að spyrja hvort ráðningin sé pólitísk
þar sem staðan eða verkið var hvorki
auglýst né leitað tilboða annarstaðar
frá.
Ólafur Ingi Tómasson, formaður
skipulags- og byggingaráðs og fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn
segir að við ráðningu á verkefnastjóra
vegna þróunarverkefnis á svæðinu hafi
verið horft til reynslu og hæfi viðkom-
andi en ekki hvaða pólitísku skoðanir
viðkomandi hefur. Ólafur bendir á að
samstaða hafi verið í skipulags- og
byggingarráði um ráðninguna eins
og kemur fram í bókun ráðsins þann
14.10. sl. sem segir m.a. „Skipulags- og
byggingaráð samþykkir framlagða
verkefnalýsingu og að ráðinn verði ver-
kefnastjóri á forsendum hennar.“ Í verk-
efnalýsingu er lagt til að Magnea Guð-
mundsdóttir verði ráðin í verkefnið. „Í
fjölmörg verkefni á vegum skipulags-
og byggingarráðs á liðnum árum að
svipaðri stærðargráðu og þetta hafa
verið ráðnir sérfræðingar án auglýs-
ingar. Horft hefur verið til sérsviðs
hvers og eins hverju sinni. Benda má á
að Magnea Guðmundsdóttir var ráðin
í vinnu án umræðu eða samþykkis frá-
farandi skipulags- og byggingarráðs
við gerð nýsamþykkts aðalskipulags.“
Áætlaður kostnaður við verkið skv.
heimildum Gaflara er um fjórar milljónir
króna og í samningi sem gerður var op-
inber á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar
kemur fram að þar utan fellur kostnað-
ur við vinnslu og kynningargögn.
Pólitísk ráðning?