Gaflari - 13.11.2014, Blaðsíða 8

Gaflari - 13.11.2014, Blaðsíða 8
8 - gafl ari.is Frá 59.900 Helluhrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími 544 5100 HÁTÍÐARVERÐ Minningarsteinar Aðeins 2ja vikna afgreiðslufrestur Fullbúinn VIÐGERÐIR FYRIR ÖLL TRYGGINGAFÉLÖG SUÐURHRAUNI 2 GARÐABÆ SÍMI 554 4060 versus@simnet.is finndu okkur á facebook Skemmtilegur tími er að ganga í garð og ég mæli með því að leyfa sköpunargáfunni að njóta sín með því að gera heimilin kósý og skemmtileg . Mjúk teppi í bæði sófann og á gólf- in og kaktusar og plöntur eru ómissandi og kertaljós á kvöldin með yndislegum ilmi. Drekka kaffið okkar eða teið úr skemmtileg- um bollum og skreyta heimilið með myndum frá vinum, og fjöl- skyldumeðlimum, það er einstakt og enginn annar á alveg eins, ætíð ljúf- fengur. SIGGA MAGGA MÆLIR MEÐ... Skemmtilegur Sólvangsdagur Sólvangsdagurinn var haldinn með pompi og prakt og þangað lögðu margir leið sína. Rannveig Þöll Þórsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, segir að dagurinn hafi heppnast í alla staði mjög vel. „Þetta var frábær dagur, mjög góð mæting eins og alltaf og allir í hátíðarskapi. Hafnfirðingar hafa í gegnum árin haldið tryggð við Sólvang og fjölmennt á þessum degi. Fengið sér vöfflur og kakó og skoðað það sem við erum að gera frá degi til dags.“ Gestum og gangandi gafst kostur á að kaupa ýmsa muni til styrktar vinnustofunni. „Munir sem heimil- isfólk og dagdvalargestir vinna eru sífellt vinsælli og við önnum ekki eftirspurn. Sú nýjung var núna að heimilismenn og gestir í dagdvöl voru með myndlistarsýningu sem mæltist vel fyrir og talsvert seld- ist af verkum. Verkin voru unnin undir leiðsögn Rósar Sveinbjörns- dóttur, myndlistarkonu, sem starfar á vinnustofu Sólvangs.“

x

Gaflari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gaflari
https://timarit.is/publication/1097

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.