Heima og erlendis - 01.10.1952, Blaðsíða 8
HAFNAR-ANNÁLL
J>aÖ kemur ekki ósjaldan fyrir, að eg rugl.
ist á nöfnum, einkum kvennanöfnum, veröa
þá oftast fyrst fyrir mér nöfnin Anna og
SigríÖur, er eg þarf aÖ skrifa nafn, sem eg
hefi ekki fyrir mér á pappxrnum. Eg kenni
þetta því, aÖ móÖir mín hét báÖum þessurn
nöfnum, en þau gleymast mér aldrei, og því
fyi’st fyrir mér, er eg ætla aÖ nota minniÖ.
Nú hefir mér oröiö sú skyssa á í 3. tölubl.
hlaÖs þessa, aÖ nefna móÖur Hauks heitins
Gíslasonar SigríÖi en hún hét þorbjörg. Og
þetta þurfti eg aÖ fá bendingu um, frá vin-
konu minni á Islandi, en hefði getað séð
nafnið í 3. tbl. 1. árg. blaðs þessa, því jiar
er þaÖ rétt. En eg þakka frú Láru hugul-
semina, og skal muna henni það. —
f>að hefir lítið horiÖ til tíðinda meÖal Is-
lendinga hér, síðan blaÓið kom seinast, svo
mér sé kunnugt. 17. júní höföu sendiherra-
hjónin hoðiÖ nokkrum Islendingum heim
til sín — um 80 manns — og sátu menn þar
um tveggja stunda hil í góðu yfirlæti. —
þess kvaö hafa verið getið í íslensku blaöi
lieima, að Islendingar hér hafi fagnaÖ kosn-
ingu forseta Islands, herrra Asgeirs Asgeirs-
sonar. það má vel vera aó einhverjir hér
staddir landar hafi fagnaö kjöri hans, en ís-
lendingafélag liefir ekki gengist fyrir nein-
um fagnaöi í tilefni þess. Oöru máli væri
aÓ gegna, kæmi forseti íslands hingaÖ í
kynnisför. Myndu Islendingar hér þá fagna
komu hans, sem vera her. —
þaÓ eru ávallt margir íslendingar á ferð
liér á sumrin, og svo hefir verið í þetta sinn
þótt sumarió hér liafi veriö fremur leiðin-
legt, kalt og rigningasamt. Eg var í surnar-
leyfi seinast í júnímánuði, og var þá enn
lagt í ofna, þar sem eg dvaldi. þaÖ er
engin leið til þess, aÖ þylja nöfn allra þeirra
er hér liafa komiÖ, enda fæstir orðið á vegi
mínum, eg liefi séÖ þess getið, aö Hallgrím-
ur Benediktsson, stórkaupm., forseti bæjar-
stjórnar Reykjavíkur, liafi veriö hér. þá voru
hér frú Halldóra Bjarnadóttir, ritstjóri og
frú Hulda Stefánsdóllir, forstööukona. þær
ælluðu aÖ ná tali af mér í prentsmiðjunni,
en eg var þá fjarverandi. þaÖ eru engar
ýkjur, að þær vöktu sérstaka eftirtekt í prent-
smiöjunni fyrir íslenska húninginn og mynd-
arleik. þá liafa líka Ingimar Brvnjólfsson
stórkaupm. og kona hans orÖið á vegi mín-
um liér, en allt er þetta fólk nú horfið heim
aftur. —
Félagslíf Islendinga hér er enn ekki risiö
úr rekkju eftir sumarhýið. Nú fer þaÖ þó
aÖ rumska við aftur, þaÖ sem lífvænt er. Is-
lendingafélag byrjar starfsemi sína meÖ aðal-
fundi laugardaginn 27, septemher. það væri
nýjung, ef sá fundur yrði svo vei sóttur, að
hægt væri aÖ ljúka aðalfundar-störfum í það
sinn. StúdentafélagiÖ liefir ekki látið lieyra
frá sér ennþá, er blaÖiÖ fer til prentunar. Um
annan félagsskap, en hér hefir veriÖ nefnd-
ur, er naumast að tala. Bókasafniö er grein
af Islendingafélagi og starfar áfram undir
stjórn þess. —
A vegum heimsóknar-starfseminnar hér og
heima fór aðeins einn Islendingur í kynnis-
för til íslands þetta sinn. þaÖ var frú Jenny
Kiel frá Seggelund við Christiansfeld á SuÖ-
ur-Jótlandi. Fekk liún liinar bestu viðtökur
er glöddu hana innilega. þökk sé öllurn,
er á einhvern hátt greiddu götu hennar á
íslandi. Næsta ár er ætlunin aÖ tvennt fari
heim á vegum samskotanna. Hefir annar
hinna væntanlegu gesta ekki séð Island i
56 ár, hinn hefir verið hér í 30 ár samfleytt.
Eins og þessari starfsemi hefir veriÖ tekið
hér og á Islandi, er engin ástæða til aÖ ætla,
aÖ vonir bregðist um það. —
Nokkrir vinir mínir hér hafa fundið aÖ
því viÖ mig, aÖ eg skrifa nafn mitt undir
stöku greinar í lilaðinu, jieim finnst ekki
þörf á því, þar sem mín sé getiö í blaöinu
sem ritstjóra þess, og þykir þetta því tildur
og spjátrungsháttur af mér. þessum vinum
mínum segi eg: þaö eru vissar greinar, sem
eg vil aÖ enginn vafi sé um, aÓ eg hafi
skrifað, einkum fyrir seinnitíma menn. Og
því held eg uppteknum hætti!
IIEOIA OG l ltl.i:\ms
ÚTGEFANDI OG RITSTJÓRI:
þOllFINNUR KRISTJÁNSSON
ENGTOFTEVEJ 7, K0BENHAVN V.
★
Blaöið keraur út þriðja hvern mánuð.
Verð árgangsins í Daum. kr. 4.50.
A íslandi einstök blöö kr. 2.25, árg- kr. 10.00.
Aöalumboð á lslandi: Bókaverzlun ísafoldar.
í Kaupmannahöfn: Ejnar Munksgaard, Norregade 6.
PrentaÖ hjá S. L. Moller, Kaupmannahöfn.
33