Fagnaðarboði - 01.01.1953, Blaðsíða 2
2
FAGNAÐARBOÐI
Þá mun endirinn koma.
Og þessi Fagnaðarboðskapur um ríkið mun
predikaður verða um alla heimsbyggðina, til
vitnisburðar öllum þjóðum; og þá mun endir-
inn koma. Matt. 2lj, llf.
Hvern einasta dag, eru þessi spádómsorð að
rætast. Það eitt ætti að færa oss heim sanninn
um óbrigðulleika Orða Hans, sem einskis var
virtur af samtíðarmönnum sínum og fæstum kom
í hug að væri sá Immanúel, sem spámennirnir
höfðu boðað að koma ætti. Þrátt fyrir það hafa
þjóðirnar fengið að heyra hið dýrmæta Fagn-
aðarerindi.
Frá hásæti Almáttugs Guðs, hafa oss borizt
eilífðarinnar Orð, fyrir Drottinn Jesúm Krist,
þýdd og kunngjörð þjóðunum á þeirra máli,
staðfest af Heilögum Anda, með táknum, undr-
um og margvíslegum kraftaverkum; ekki aðeins
á umliðnum tíma, er oss hefðu borizt sögusagnir
um, heldur einnig á yfirstandandi tíma. Drottinn
heldur áfram að uppfylla fyrirheit sín til allra
þjóða, með því að úthella Anda sínum yfir allt
hold.
Þegar litið er til baka af sjónarhæð tuttugustu
aldarinnar og spádómar Ritningarinnar eru born-
ir saman við atburði liðinna tíma, þá kemur
það skýrt í ljós að ekkert hefir fallið niður af
Orðum Drottins eða fyrirheitum, og þegar tekið
er eftir hvernig spádómarnir hafa rætzt, þá má
sjá á hvern hátt hinn allt sjáandi Guð lýsir því,
sem hulið var öllum heimi á þeim tíma er þeir
voru ritaðir.
Af þessu má einnig læra að líta fram í tímann,
og skilja þá 'hluti sem Drottinn hefir boðað að
koma muni.
Eftir Orðum Drottins er það því ljóst að óðum
líður að hinum miklu umskiptum. Þegar Kristur
Jesús opinberast í allri sinni dýrð, sem dómari
alls jarðríkis.
Þá munu hinir heilögu sem Orð Hans hafa
varðveitt, öðlast ríkið, sem þeim var fyrirbúið
frá grundvöllun heims og aldrei verður af þeim
tekið. Þar sem Guð býr á meðal þeirra og þeir
fá að njóta þess fagnaðar sem engum hefir í
huga komið. Les Dan. 7,18 og 27 og Matt. 25, 34.
Aftur á móti verður koma Drottins skelfileg
fyrir þá, sem náð Hans hafa hafnað og ekki
hafa gjört iðrun og meðtekið fyrirgefningu synda
sinna. Því að þá koma þeir ekki fram vélráðum
sínum og nekt þeirra verður öllum augljós, með
þeim skelfingum að þeir reyna að hylja sig í
hellum og jarðholum, sem þó kemur að engu
haldi. Les. Matt. 25, Jjl, lf6.
Hyggilegast er því að gera iðrun og trúa
Fagnaðarboðskapnum, svo að syndirnar verði
afmáðar samkvæmt fyrirheitum Guðs. Þar
sem engu ráði Drottins verður varnað fram að
ganga. Því að eins og tíminn líður þó að klukk-
an stöðvist, þá rætast Guðs Orð og stöðug
standa þó að þeim sé enginn gaumur gefin.
Sá frestur, sem yfir stendur á því að endirinn
komi, er vegna kærleika Guðs, til þess að gefa
syndugum mönnum tækifæri til iðrunar.
Aðalatriðið er ekki að vita daginn né stundina,
er Faðirinn setti af sjálfs síns valdi. Heldur að
vita að hver stundin getur verið hin síðasta,
sem hverjum og einum er gefin til þess að svara
þeirri elsku Guðs, sem opinberaðist á krossin-
um á Golgota. Þar sem Drottinn Jesús burttók
syndir vorar, með þvi að fullnægja skráðum
dómi.
Og jafnframt að gefa gaum að þeim táknum,
sem Hann hefir boðað að birtast muni áður en
endirinn kemur, en ekki að setja merki við einn
eða annan tíma.
Einar Einarsson.
Guði er ekkert ómáttugt.
Frá 15 ára aldri, hef ég þjáðzt af innvortis
bólgum og hef þar af leiðandi verið af og til
undir læknis hendi í 14 ár.
Allt var reynt, sem hægt var, t. d. ljós, stutt-
bylgjur og uppskurður, en ekkert hjálpaði. Ég
var þreytt á þessu. Árið 1950 fór ég til sérfræð-
ings, og sagði hann mér, að ég hefði bólgur og
æxli, sem þyrfti að taka og vildi að ég kæmi til
uppskurðar strax.
Ég átti heima úti á landi og heimilisástæður
leyfðu ekki að ég færi þá. Þegar ég kom heim
rannsakaði heimilislæknirinn minn mig og bar
honum alveg saman við sérfræðinginn.
Frænka min, sem þekkti Guðrúnu Jónsdóttur
og vissi hve bænheit hún er, fór til hennar og
bað hana að biðja fyrir mér og gerði Guðrún
það.
Hálfum mánuði eftir að ég kom heim, fór ég