Fagnaðarboði - 01.02.1962, Blaðsíða 3

Fagnaðarboði - 01.02.1962, Blaðsíða 3
FAGNAÐARBOÐI 3 Zilgangur Ufsins (Fréttaviðtál við Oral Roberts.) (Framhald úr síðasta blaði). BLAÐAMAÐUR: Til hvers lifum við? ORAL ROBERTS: Við lifum til þess að þjóna. Jesús sagði: ... Manns-Sonarinn er ekki kominn, til þess að láta þjóna sér, heldur til þess að þjóna. Sá maður, sem lifir lífinu samkvæmt tilgangi þess, leggur þjóðfélaginu til ákveðið, varanlegt framlag og berst fyrir því, að öðrum lærist, hvernig lifað skuli. Hann getur ekki setið hjá afskipta- og aðgerðalaus. Kristur var ávallt sem þátttakandi, aldrei sem hlut- laus áhorfandi. Eftir skírnina og þá er Hans hafði verið freistað af djöflinum, hraðaði Hann för sinni, til fólks- ins, til þess að leysa frá synd og sjúkdómum, undan valdi óttans og illra anda. Kristur gerði meira en leggja líf sitt í sölurnar á krossinum, svo við mennirnir mætt- um öðlast eilíft lif. Hann gaf hvem dag, hverja stund, já, hverja minútu lífs síns, til þess að sýna mönnunum hvernig lifa ætti lífinu og kenna þeim að þekkja það, sem gefur lífinu gildi. BLAÐAMAÐUR: Hvernig getur líf okkar náð til- gangi sínum, þegai- sjúkdómar, ástvinamissir, tjón og tap verður hlutskipti okkar? ORAL ROBER TS: Oft og tíðuin, þá er okkur mætir sorg, sjúkdómar, þjáningar eða vonbrigði, getur okkur fundizt lífið tilgangslaust og einskis vert. Ef til vill hefur þú orðið fyrir þeirri þungu sorg að missa barn þitt eða annan ástvin. Einhver þér nátengd- ur kann að hafa veikst hættulega, þú misst atvinnu þína, kaupsýsla þín eða önnur starfsemi mistekizt. Þá getur á slíkum reynslutímum farið svo, að trú þín veik- ist, þú vitir ekki, hvert þú eigir að leita né hvað gera skuli. Og þú spyrð: Hvers vegna hef ég orðið fyrir þessu? Hvað hef ég gert, svo allt þetta skuli k.oma fram við mig? Hef ég til þess unnið? — Eða þéi finnst lifið orðið tilgangslaust og helzt af öllu kysir þú að fá að deyja. En þetta er engin ný saga. Slíkar raunatölur hafa bergmálað allt frá fyrstu tíð, þá er meim hafa orðið fyrir þungri lífsreynslu og á það jafnt við unga sem gamla. Stundum getur reynsla þín leitt til þess, að þú dregst nær Guðsríkinu og þrá þín eftir eilífa lífinu orðið sterkari. Ef þú verður fyrir mLssi og bindur huga þinn þráfallt við hann, — elur með þér harm þinn og sérð ekkert nema sjálfan þig og eigið andstreymi, þá munt þú líða skipbrot á trú þinni á Krist Jesúm. HIÐ EINA, sem er nokkurs virði. I stað þess, verður þú að komast að raun um, að Jesús Kristur er sjálft lífið. Kom fram fyrir Hann með sorg þína og missi. Vita skaltu, að ekkert er glatað, sem falið hefur verið vernd Hans. Hann endurbyggir allt, sem gefur lífinu gildi. Ef þér finnst lífsvon þín hrörna, þá minnstu þess að Kristur endurnýjar. Hann sagði: Ég er upprisan og lifið — Ég er vegurinn. Með þessum orðum segir Kristur, að lausn allra þinna vandamála sé að þekkja Hann. Viljir þú, að þér veitist allt það, er þú þarfnast, þá er svarið hið sama, það — að þekkja Jesúm Krist. Ekkert fær hindrað Krist, engin sú hindrun, að Hann fái hana ekki yfirstigið. Hann er vegurinn yfir gröf og dauða, vegurinn út yfir allan missi. Svarið við öllum þínum vandamálum er KRISTUR. BLAÐAMAÐUR: Hvernig má slík umbreyting verða í lífi mínu? ORAL ROBERTS: Margir komast aldrei yfir missi sinn, af því þeir halda það Guðs ráðstöfun, að þeir eru syrgjendur, lifa við skort og sjúkdóma og brostnar framtíðarvonir o. s. frv. En þetta er með öllu rangt. Fyrst af öllu ber þér að muna, að Guð er g ó ð u r. Frá Honum kemur mönnunum ekkert illt. Hann er mönnunum ávallt nálægur til hjálpar í hvaða vanda sem er. Þú kemst yfir missi þinn ef þér tekst að láta af þ í n u . Það er þetta stóra — ég —, sem verður að hverfa. Umbreytingin á sér stað í lífi þínu, þegar þér lærist að lifa tii þess að gefa í stað þess að lifa, til þess að f á. Ef þú auðsýnir þurfandi meðbræðrum kærleika, miskunnsemi, greiðvikni og skilning, munt þú að f u 11 u komast yfir missi þinn. Minnstu þess, að Guð er jafn nálægur þér og andardráttur þinn. Hafðu Bibliuna ávallt nærtæka. I Guðs Orðinu öðlast þú kraft í hverri raun, nýjan styrk og hughreysting. Já, sannarlega er Jesús Kristur tilgangur lífsins. Framhald á bls. 7.

x

Fagnaðarboði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.