Frjáls verslun - 01.08.2007, Page 38
D A G B Ó K I N
38 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
Óskar Magnússon.
9. október
Óskar hættir hjá
Tryggingamiðstöðinni
Það kom fáum á óvart að Óskar
Magnússon hætti sem forstjóri
TM eftir að FL Group eignaðist
félagið – og áhrifa feðganna
Jóhannesar Jónssonar og Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar gætti
þar með í félaginu. Litlir kær-
leikar hafa verið á milli þeirra
feðga og Óskars eftir að hann
lét af störfum fyrir Baug á sínum
tíma. Þannig hætti Óskar hjá
Íslandssíma – Og Vodafone eftir
að Baugur kom að því félagi.
Sigurður Viðarsson hefur verið
ráðinn forstjóri TM. Óskar mun
láta formlega af störfum þann
15. nóvember nk.
10. október
Hvergi dýrara að
fylla á tankinn
Dagblaðið 24 stundir, áður
Blaðið, sagði frá því á forsíðu
að hvergi væri dýrara að fylla á
tankinn en á Íslandi. Var vísað
til nýrrar skýrslu alþjóðasam-
takanna GZT þar sem borið var
saman verð á eldsneyti í 171
landi.
Sagði í fréttinni að Ísland
nyti þess vafasama heiðurs að
tróna á toppnum hvað varðar
verð á dísilolíu, en þegar kæmi
að bensínverðinu væri það hið
þriðja hæsta í heimi.
Hæsta verð í heimi á dísilolíu er
á Íslandi.
10. október
Semjið við Þórólf
Icelandic
Group er skylt
að gera kaup-
réttarsamning
við Þórólf
Árnason, fyrr-
verandi for-
stjóra félags-
ins, um hluta-
bréf í félaginu.
Héraðsdómur Reykjavíkur komst
að þeirri niðurstöðu. Skal samn-
ingurinn endurspegla sambæri-
lega samninga hjá forstjórum
stærri fyrirtækja á Íslandi.
Þórólfur var ráðinn til starfa sem
forstjóri hjá Icelandic Group í
maí 2005 en sagt upp í október
síðar það sama ár.
10. október
Frosti kaupir
Opin kerfi
Opin kerfi eru komin heim. Sagt
var frá því að Frosti Bergsson
hefði gert tilboð um kaup á öllu
hlutafé í Opnum kerfum ehf.,
dótturfélagi Opinna kerfa Group,
og hefði tilboði hans verið tekið.
Frosti stofnaði Opin kerfi og var
forstjóri félagsins um árabil. Það
var síðla árs 2004 sem Kögun
keypti félagið af honum og tók
það af hlutabréfamarkaði.
11. október
Nýherji kaupir
77% hlutafjár
í TM Software
Nýherji heldur áfram að
auka umsvif sín. Tilkynnt
var að félagið hefði samið
um kaup á 77% af hlutafé
í upplýsingatæknifyrir-
tækinu TM Software, af
Straumi, FL Group og
Tryggingamiðstöðinni.
Straumur annaðist milli-
göngu um kaupin og eru þau
háð niðurstöðu áreiðanleika-
könnunar sem og samþykki
samkeppnisyfirvalda.
TM Software er móðurfélag
fimm félaga: Skyggnis, Origo,
Vigor, eMR og ITP. Tekjur TM
Software eru áætlaðar um 2,5
milljarðar á árinu og er fjöldi
starfsmanna um 280.
Velta Nýherja-samstæð-
unnar eftir kaupin á TM
Software verður um 13 mill-
jarðar króna og starfsmanna-
fjöldi um 750.
Þórólfur
Árnason.
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja.