Frjáls verslun - 01.08.2007, Síða 200
200 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
300 STÆRSTU
M argrét Guðmundsdóttir, forstjóri Icepharma, segir sölu Atorku á Ice-pharma og kaup stjórnenda á því
það sem stendur upp úr á þessu ári. „Kristján
Jóhannsson lektor, sem setið hafði í stjórn Ice-
pharma, bauð í fyrirtækið sem kjölfestufjárfestir
og fékk fimm stjórnendur Icepharma til liðs við
sig. Þessi breyting hefur verið farsæl fyrir alla
aðila og munum við halda áfram á þeirri braut
sem við höfum verið að móta, enda ekki hætta
á röskun á starfseminni fyrst þetta varð niður-
staðan,“ segir hún.
Helsti styrkur Icepharma er þekking starfs-
fólks og góðir samstarfsaðilar, bæði hér heima
og erlendis, að hennar sögn. „Við sinnum sölu-
og markaðsstarfi innan heilbrigðiskerfisins og
höfum byggt upp mikla sérþekkingu á mjög
breiðu sviði, bæði hvað varðar menntun og
reynslu. Fyrirtæki eins og Icepharma er liður í
góðu heilbrigðiskerfi.“
Margrét segir aðspurð um afkomu Ice-
pharma, að hún sé háð gengi krónunnar og
styrking krónunnar sé neikvæð fyrir rekstur
fyrirtækisins, þar sem lyfjaverð á frumlyfjum er
ákvarðað af opinberum aðilum og tengist með-
alverðlagi lyfja í Skandinavíu.
„Ekki er tekið tillit til innlendra verðhækk-
ana í þessum útreikningum og með lækkandi
framlegð af frumlyfjum og innlendum kostnað-
arhækkunum er afkoman því undir væntingum.
Staða okkar er í raun svipuð og í sjávarútvegs-
fyrirtækjum, sem eru háð gengi krónunnar og
þurfa að bera allan innlendan kostnaðarauka.
Þáttur lyfja vegur þungt í okkar rekstri, en þau
eru 50% af veltu fyrirtækisins, og staðan sem
blasir við því okkur áhyggjuefni,“ segir hún.
Icepharma starfar á heilbrigðismarkaði og
sinnir öllum þáttum hans, segir Margrét enn-
fremur, og fyrirtækið ætlar sér aukinn hlut hér
innanlands og að taka þátt í þeim vexti sem fyrir-
sjáanlegur er á þessum markaði. „Við bíðum
líka eftir útspili heilbrigðisráðherra og stefnu
í heilbrigðismálum næstu fjögur ár og sjáum
okkur sem samstarfsaðila í þeim verkefnum.
Meginstefna og framtíðarsýn okkar tengist frek-
ari sérhæfingu á heilbrigðissviði og ýmis tæki-
færi geta skapast ef farið er út í meiri einkavæð-
ingu, svo framtíðin er að því leyti spennandi.
Stefna stjórnvalda í heilbrigðismálum hefur því
mikið vægi í okkar rekstri.“
Margrét er ekki þeirrar skoðunar að hægjast
muni á útrásinni á næstunni. „Nei, ég tel að
Íslendingar muni halda áfram á þeirri braut
enda hafa þeir náð góðum árangri á hinum
ýmsu sviðum,“ segir hún. Aðspurð kveðst hún
hins vegar óttast sveiflur á gengi íslensku krón-
unnar og innlendar verðhækkanir á næstu
mánuðum.
ICEPHARMA • MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR
„Kaup lykilstjórnenda á Icepharma af Atorku var farsæl breyting fyrir alla aðila.“
„Við bíðum
líka eftir útspili
heilbrigðisráðherra
og stefnu í
heilbrigðismálum
næstu fjögur ár og
sjáum okkur sem
samstarfsaðila í
þeim verkefnum.
Meginstefna og
framtíðarsýn okkar
tengist frekari
sérhæfingu á
heilbrigðissviði og
ýmis tækifæri geta
skapast ef farið er út
í meiri einkavæðingu,
svo framtíðin er að
því leyti spennandi.“
ÆTLUM OKKUR AUKINN
HLUT HÉR INNANLANDS
OG AUKINN VÖXT
TEXTI: HELGA KRISTÍN EINARSDÓTTIR • MYND: GEIR ÓLAFSSON