Frjáls verslun - 01.08.2007, Page 213
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7 213
SETIÐ FYRIR SVÖRUM
HVERNIG VERÐUR
ÁRIÐ 2008?
Hvað hefur komið þér mest á óvart í við-
skiptalífinu á árinu?
„Í viðskiptalífinu á Íslandi kemur ekkert
lengur á óvart, það er jafnlíklegt að ótrú-
legustu hlutir gerist, eins og mörg dæmi
sanna, og að líklegir hlutir sem lengi hefur
verið von á gerist ekki. Heitasta málið á
árinu er þó líklega sprengikrafturinn í orkuút-
rásinni.“
Hvað hefur staðið upp úr hjá þínu fyrirtæki
á árinu og mun það ná settum markmiðum
um afkomu?
„Hjá Nýherja stendur upp úr áframhaldandi
mikill vöxtur og ágæt afkoma hjá fyrir-
tækinu. Einnig sókn á erlenda markaði
með kaupum og stofnun nýrra fyrirtækja
í Danmörku, Svíþjóð og Bretlandi undir
merkjum AppliCon og DanSupport. Opnun
á versluninni Sense með hátæknivörur fyrir
einstaklingsmarkað voru einnig ákveðin tíma-
mót fyrir okkur. Allt stefnir í að við náum
okkar markmiðum um mikinn innri vöxt og
ágæta afkomu á árinu.“
Hvaða blikur sérð þú helst á lofti í atvinnu-
lífinu?
„Íslenskt viðskiptalíf er nú mun meira tengt
atvinnulífi í Evrópu og Ameríku en nokkru
sinni áður. Helstu blikur tel ég vera í áfram-
haldandi óróa á erlendum fjármála- og
fasteignamörkuðum, því áframhaldandi
sviptingar á erlendum mörkuðum gætu haft
veruleg áhrif á íslenskt efnahags- og atvinnu-
líf.“
Telur þú að hægja muni á útrás íslenskra
fyrirtækja á næstunni?
„Ég tel að áfram verði mikill kraftur í rekstri
íslenskra fyrirtækja á mörkuðum í nágranna-
löndunum. Hætt verður að líta á það sem
sérstaka ,,útrás“ að Íslendingar eigi fyrir-
tæki víða um Evrópu. Það er orðinn eðlilegur
hlutur, með sama hætti og hjá fyrirtækjum í
Bretlandi, Norðurlöndum og víðar sem tala
ekki um „útrás“ heldur nýja heimamarkaði.“
Ert þú hlynntur inngöngu Íslendinga í
Evrópusambandið?
,,Tel að mun dýpri og víðtækari umræða
þurfi að fara fram um kosti og galla
Evrópusambandsaðildar áður en Íslendingar
verða reiðubúnir að taka rökstudda og
skynsamlega ákvörðun um aðild að
Evrópusambandinu. Mjög mikilvægt er
að skrið fari að komast á þá umræðu
þannig að sem flestir fari að skilja hvaða
kostir eru í stöðunni fyrir smáþjóð í Norður-
Atlantshafinu og móta megi áfram stefnu
sem getur staðið til lengri tíma.“
Telur þú að gengi krónunnar eigi eftir að
síga verulega á næstu 10 mánuðum vegna
viðvarandi viðskiptahalla?
,,Ég tel að íslenska krónan sé óeðlilega
sterk miðað við starfsemi efnahagslífsins á
Íslandi og styrk hennar megi einkum rekja
til spákaupmennsku, sem tengist þenslu
og háum vöxtum á Íslandi. Menn geta því
vel átt von á hröðu og verulegu gengissigi á
næstu 10-20 mánuðum.“
ÞÓRÐUR SVERRISSON
forstjóri Nýherja
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja.