Frjáls verslun - 01.08.2007, Page 262
262 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 7
Lífsstíll
K
onungar þöglu gaman-
myndanna , Char l e s
Chaplin og Buster Keaton,
leikstýrðu öllum sínum
kvikmyndum. Enginn mjög
þekktur kvikmyndaleikari síðan,
ef frá er talinn franski snillingur-
inn Jaques Tati, hefur eingöngu
leikið í eigin kvikmyndum. Margir
frægir leikarar hafa leikstýrt kvik-
myndum og orðið jafnþekktir
sem leikstjórar og leikarar. Þar
er helst að nefna Orson Welles,
Clint Eastwood, Woody Allen og
Kenneth Brannagh. Freistandi er
einnig að nefna Laurence Olivier,
Mel Gibson og Robert Redford,
en leikferill þeirra skyggir á leik-
stjórnarafrek þeirra þó merkileg
séu, það er helst að Mel Gibson
gæti lyft sér með tímanum upp í
fyrrnefnda flokkinn.
Síðan er það fjöldinn allur
af frægum leikurum sem hafa
verið að breyta til og reyna fyrir
sér á leikstjórnarsviðinu og oft á
tíðum hafa komið góðar kvik-
myndir, sem vekja athygli á hæfi-
leikum þeirra. Þá eru til dæmi
um þekkta leikara sem hafa
orðið frægari sem leikstjórar. Þar
eru fremstir í flokki John Cass-
avettes og Ron Howard.
Þetta er rifjað upp hér þar sem
um þessar mundir og á næstu
tveimur mánuðum verða frum-
sýndar í Bandaríkjunum fimm
kvikmyndir þar sem frægir leik-
arar eru við stjórnvölinn. Þar af
eru tveir sem nefndir eru hér
að ofan, Kenneth Brannagh og
Robert Redford.
Gone Baby Gone Gone
Baby Gone er fyrsta kvikmyndin
sem Ben Affleck leikstýrir. Hún
hefur verið talsvert í umræðunni
að undanförnu þar sem sagan í
myndinni þykir minna óþyrmi-
lega á mál litlu bresku stúlkunnar,
Madelaine McCann, sem hvarf í
Portúgal, og hefur frumsýningu
myndarinnar verið frestað í Bret-
landi vegna málsins. Gone Baby
Gone fjallar um leit tveggja lög-
reglumanna af fjögurra ára stúlku
sem rænt er í Boston. Ben Affleck
skrifar handritið eftir skáldsögu
Leikarar í leikstjórastólinn
Sean Penn kvikmyndar Emile
Hirsch í Into The Wild.
Um þessar mundir
og á næstu vikum
verða frumsýndar
fimm kvikmyndir sem
eiga það sameigin-
legt að leikstjórarnir
eru þekktir leikarar
Mynd þessi var tekin af Kenneth Brannagh, Jude Law, Michael Caine og Harold Pinter meðan á tökum
á Sleuth stóð.
Gone Baby Gone þykir minna á hvarf Madelaine McCann og víst
er að þetta atriði úr myndinni er kunnuglegt úr atburðarásinni sem
einkennt hefur hvarf litlu stúlkunnar.
KVIKMYNDIR:
HILMAR KARLSSON