Frjáls verslun - 01.03.2005, Qupperneq 60
A
uðkýfingalisti Sunday Times, yfir 1.000 auðugustu Bretana
og útlendinga sem búa hér á Bretlandseyjum er árlegur
viðburður. Í fysta sinn eru fjórir Íslendingarnir á listanum,
þeir Björgólfur Thor Björgólfsson, Ágúst og Lýður Guð-
mundssynir og Jón Ásgeir Jóhannesson. Í inngangsgrein er
einmitt bent á „íslensku innrásina“ og talað um Jón Ásgeir og
Baug, sem ávallt hlýtur mesta athygli Íslendinganna í umfjöllun hér því
hann á svo þekkt vörumerki. Auk þess er sérstök umfjöllun um hann í
listanum sjálfum. Af öðru íslensku ívafi er hin hálfíslenska skódrottning
Linda Kristín Bennett á listanum og Moussaieff-fjölskyldan.
Indverskur stálkarl trónir á toppnum Sá, sem trónir langefst á aðal-
listanum, er Lakshmi Mittal, 54 ára Indverji af stálbræðsluætt, en
hefur af eigin rammleik byggt upp stálveldi, sem spannar hnöttinn.
Það eru ekki síst kaup á gömlum stálbræðslum í Austur-Evrópu og
Rússlandi undanfarinn áratug, sem hafa gert hann að ríkasta manni
Bretaveldis og þeim þriðja ríkasta í heimi. Lifnaðarhættir hans
minna á keisara fyrri alda, enda dugði honum ekki minna en sjö
dagar í París til að gifta dóttur sína og þá líka með veislu í Versölum
sólkóngsins, auk hátíðahalda á Indlandi. Vísast eru austur-evrópsku
tækifærin á þrotum þar sem Mittal er farinn að kaupa stálbræðslur
í Kína.
Rússagull er einnig undirstaða auðæfa Roman Abramovich, eiganda
Chelsea, einkum olíuvinnsla. Oleg Deripaska hefur lifað af álstríðið
í Rússlandi og hreppti Rusal, stærsta álfyrirtæki Rússlands, annað
stærsta álfyrirtæki í heimi og eitt stærsta fyrirtæki heims í einkaeign.
Indversku Reuben-bræðurnir, Simon og David, hafa auðgast á málm-
viðskiptum í Rússlandi og fasteignum. Fimmmenningarnir hafa allir
verið viðfangsefni fjölmiðla, því ýmislegt í viðskiptum þeirra hefur þótt
orka tvímælis.
Nýir peningar ýta út gömlum peningum Þegar Abramovich fór fram
úr hertoganum af Westminster í fyrra var það í fyrsta skipti, sem
A U Ð M E N N Í B R E T L A N D I
Fjórir Íslendingar eru í fyrsta sinn
á lista Sunday Times yfir 1.000
ríkustu menn Bretlands. Þetta eru
þeir Björgólfur Thor Björgólfsson,
Ágúst og Lýður Guðmundssynir
og Jón Ásgeir Jóhannesson.
LISTI SUNDAY TIMES
AUÐJÖFRAR
BRETLANDS
60 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 5
Indverjinn Lakshami Mittal
og Rússinn Roman Abramovich
eru ríkustu menn Bretlands.
TEXTI: SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o.fl.