Reykjanes - 05.02.2015, Blaðsíða 12

Reykjanes - 05.02.2015, Blaðsíða 12
Það er alltaf gaman í Gaaraleikhúsinu Miðapantanir í síma 565 5900 og midi.is Frumsýning 21. febrúar mmtudagur 5, febrúar Uppselt föstudagur 13. febrúar örfáir miðar Fjölskyldufarsi ársins Guðni Gíslason FP Frosti Harmageddon 5. Febrúar 2015 Auglýsingasíminn er 578 1190 Netfang: auglysingar@fotspor.is www.fotspor.is 12 Mikil ánægja með menningar- mál og leikskóla Á fundi Bæjarráðs Grinda-víkur 20. janúar s.l. kynnti bæjarstjóri niðurstöður þjónustukönnunar Capacent meðal 19 sveitarfélaga á árinu 2014. Í úrtakinu voru 300 íbúar í Grindavík og var svarhlutfall 52%. Svarendur eru jafnaði frekar ánægðir með þjónustu Grindavíkur- bæjar og Grindavík sem stað til að búa á, en hvorutveggja er í meðal- tali sveitarfélaganna. Ánægja með menningarmál og þjónustu leikskóla er mjög mikil. Bæjarráð vísar könnuninni til umfjöllunar í bæjarstjórn og nefndum bæjarins og til birtingar á vef Grindavíkurbæjar. Sjólyst í Garði Þann 15. desember sl. var aðal-fundur Hollvina Unu í Sjólyst haldinn í Útskálakirkju og að fundinum loknum voru styrktartón- leikar þar sem hópur tónlistarmanna kom fram auk upplestrar. Þetta var magnað kvöld og rann aðgangseyrir óskiptur til Hollvina Unu Guðmunds- dóttur í Sjólyst. Listamenn og aðrir sem að þessum viðburði stóðu eiga miklar þakkir skyldar. Félagið Hollvinir Unu í Sjólyst var stofnað 18. nóvember 2011 að frum- kvæði hugsjónamannsins Guðmundar Magnússonar og eru félagsmenn um níutíu talsins. Markmið félagsins er að halda nafni þessarar merku konu á lofti með ýmsum hætti, m.a. koma húsinu Sjólyst sem hún bjó í lengst af ævinnar í sem upprunalegast horf og að hafa þar starfsemi sem sómi er að til að heiðra minningu hennar. Í bók Gunnars M. Magnúss um Unu, Völva Suðurnesja, kemur fram að Una var ekki framagjörn kona og hafði ekki löngun eða þörf til að láta á sér bera en orðrómur um hæfileika hennar barst víða. Fjölmörgum sem þekktu hana bar saman um að til hennar sóttu þeir styrk og hjálp í orði og verki. Þar sannast hið fornkveðna er segir í Háva- málum: Deyr fé deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. Verkin hennar mega ekki gleym- ast, hún lagði með þeim svo gott til samfélagsins. Verkefnin eru mörg sem bíða stjórnar Hollvina Unu. Búið er að teikna glugga eins og þeir voru upp- runalega og leitað hefur verið tilboða í smíði þeirra. Ákveðið hefur verið að klæða húsið og ganga frá lóð áður en farið verður í framkvæmdir innan húss. Öll fer þessi framkvæmd þó eftir fjár- hag Hollvina sem aðeins hefur veitta styrki og frjáls framlög til umráða auk árgjalda félagsmanna. Starfsemi hússins er í undirbúningi en það var opið um helgar tvö sl. sumur og fram á haust kl. 13: 00-17: 00 eða eins og hentaði og var gestum boðið kaffi og fræðsla. Um 3-400 manns heimsækja Sjólyst árlega nú þegar og vonast er til að gestir verði mun fleiri þegar starf- semin er hafin eins og hún er hugsuð. Þeir sem vilja á einhvern hátt leggja þessu verkefni lið eða langar að heim- sækja Sjólyst og eiga þar næðisstund er velkomið að hafa samband við stjórn- armenn. Erna M. Sveinbjarnardóttir, formaður stjórnar Hollvina Unu í Garði Bingó Á morgun föstudaginn 6. febrúar kl. 13: 30 verður Bingó á Nesvöllum. Margir góðir vinningar. Grindavík: Vill kaupa vatnstank Á fundi bæjarráðs Grindavíkur nýlega var eftirfarandi er-indi tekið til umfjöllkunar: Vatnstankur í Þórkötlustaðarhverfi: fyrirspurn um sölu. Arnar Freyr Jónsson óskar eftir viðræðum við Grindavíkurbæ um möguleg kaup á gömlum vatnstanki við Austurveg. Markmið Arnars er að breyta vatnstanknum í Micro-hús, sem yrði hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Bæjarráð vísar erindinu til um- sagnar í skipulagsnefnd.

x

Reykjanes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.