Reykjavík - 30.05.2015, Blaðsíða 8

Reykjavík - 30.05.2015, Blaðsíða 8
8 30. Maí 2015REYKJAVÍK VIKUBLA Ð VIÐTAL Leikstjórinn Grímur Hákonarson kom sá og sigraði í Cannes og verður á faraldsfæti næstu misserin: Einföld sveitamynd fyrir Íslendinga hitti í mark „Þetta er í rauninni ótrúlegt. Við gerðum þessa mynd bara algjörlega á okkar eigin forsendum. Vorum bara að hugsa um að gera sveitamynd fyrir Íslendinga, lítil og einföld mynd um einhverja tvo bræður. En einhvern veginn virðist hún hitta í mark,“ segir Grímur Hákonarson, leikstjóri, sem fagnaði sigri á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi á dögunum. Þá hlaut mynd hans Hrútar fyrstu verðlaun í flokki nýliða, frumlegra og djarfra mynda. Hrútar varð hlutskörpust nítján mynda sem tilnefndar voru í flokknum, en alls var sótt um fyrir fjögur þúsund kvik- myndir. Þetta er í fyrsta sinn í tæplega 70 ára sögu þessarar víðfrægu frönsku kvik- myndahátíðar sem íslensk kvikmynd í fullri lengd vinnur til verðlauna. Blaðið náði tali af Grími skömmu eftir Íslandsfrumsýningu á myndinni, en sú fór fram í bíósalnum að Laugum, skammt frá Bárðardal þar sem myndin var tekin upp. Trúverðugur sveitaheimur „Viðtökurnar voru mjög góðar,“ segir Grímur spurður um viðtökurnar en um 150 heimamenn, bændur, sveitar- stjórn, aðrir íbúar sem studdu framtakið og ekki síst krakkar úr sveitinni, allt niður í sex ára. „Það var mikið hlegið og klappað, og standandi lófaklapp á eftir,“ segir Grímur sem var að vonum ánægður með viðtökurnar. Hann nefnir sérstaklega að bændum hafi fundist lýs- ingin á sveitinni trúverðug, og að það hafi gengið fullkomlega upp að Siggi Sigurjóns væri bóndi. „Við lögðum upp með að skapa trú- verðugan sveitaheim,“ segir Grímur. Hann bætir því við að nokkur rann- sóknarvinna hafi legið að baki. Bæði almennt um sveit og bændastörf, en ekki síður um viðbröð við riðuveiki. „Myndin fjallar að hluta til um hvað gerist þegar skera þarf niður fé vegna riðu,“ segir Grímur. „Ég kannski bjóst við að menn gætu eitthvað haft út á þetta að setja, en samt sem áður byggir myndin að miklu leyti á sönnum viðburðum. Allt sem gerist í myndinni hefur í raun og veru gerst. Þannig að þó svo að margt virðist ótrúlegt, þá hefur svona í rauninni gerst.“ „Breytir lífi okkar allra“ - Þetta var mikil sigurför hjá þér og ykkur til Frakklands. Hvernig líður þér að hafa fengið þessa viðurkenningu? „Þetta var auðvitað alveg ofboðslega góð tilfinning, þegar Isabella Rossel- ini tilkynnti um sigurvegarann,“ segir Grímur. „Þetta á svo eftir að hafa áhrif á framtíð manns. Bæði er þetta frábært fyrir myndina, en verðlaunin munu líka hafa mikil áhrif á alla sem koma að henni, og breytir í rauninni lífi okkar allra,“ segir Grímur. Þegar leikstjórinn er spurður nánar út í það nefnir hann að myndin sé tví- mælalaust komin á kortið. Fjallað hafi verið um hana í fjölmiðlum um allan heim. „Þetta gerir það að verkum að það verður auðveldara að fá fjármagn í næstu verkefni og býður upp á mikla möguleika fyrir í framhaldinu,“ segir leikstjórinn. Miklir möguleikar séu nú fyrir hendi erlendis, „þótt ég vilji helst vera á Íslandi að gera mína eigin myndir“. Endurgerð í vændum? „Það er strax farið að tala um að endurgera Hrúta, þótt ég sé ekki viss um að það sé sniðugt,“ segir Grímur og nefnir að áhugi sé á því í Sviss og jafnvel víðar. „En mér finnst Hrútar vera íslensk saga. Þessi sterka tenging við sauðkindina sem myndin fjallar um finnst mér vera séríslensk, og líka þessi brjálæðislega þrjóska, að talast ekki við í 40 ár, þrátt fyrir að búa hlið við hlið,“ bætir hann við. Margir útlendingar hafi spurt sig hvernig svona gæti gerist. „Eins skýringin sem ég hef, er eitthvert séríslenskt hugarfar. Það er einhver Bjartur í Sumarhúsum hér á ferðinni.“ „Boring“? Svona verk er ekki hrist fram úr erminni og hefur verið nokkurn tíma í vinnslu. Blaðamaður heyrði í Grími Hákonarsyni fyrir tæpum tveimur árum. Þá var verkið í vinnslu. Hand- ritið klárt, en tökur ekki hafnar. Nú hafa viðtökurnar við lokaarfurðinni verið stórkostlegar. En hvernig voru viðtökurnar við hugmyndinni á sínum tíma? „Við fengum alltaf stuðning frá Kvikmyndamiðstöð og þar á bæ var fólk hrifið af hugmyndinni. En kannski fannst mér sjálfum stundum þegar ég var að segja frá hugmyndinni, tveir bræður á sjötugsaldri í einhverjum afdal sem talast ekki við, að þetta gæti hljómað dálítið „boring“ en þó ekki. Það sem kemur okkur kannski mest á óvart er hvað mikið var hlegið. Hvað fólki finnst myndin skemmtileg og fyndin. Þetta er ekki bara eitthvert drama. Hún hefur skemmtanagildi.“ Smellhitti á línuna - Það hefur verið þannig að kvik- myndaelítan þarna úti hefur ekki hlegið á vitlausum stöðum? „Gagnrýnendur segja að styrkur myndarinnar sé að hún dansi á þessari línu að vera bæði mjög fyndin og líka dramatísk,“ segir Grímur. Hún fari einmitt hvergi yfir strikið, hvorki í gríni né drama. Fólk bæði gráti og hlægi. „Svo finnst fólki myndin spennandi,“ bætir Grímur við. Hann vill eðlilega ekki láta uppi hvað gerist, „en atburðarrásin er spennudrifin,“ segir leikstjórinn leyndardómsfullur. En það var annað sem kom á óvart. „Ég bjóst kannski ekki alveg við því en krakkar, kannski alveg frá sex ára aldri hafa líka mjög gaman af myndinni. Það var kannski ekki alveg það sem ég lagði upp með í mynd um tvo bræður á sjötugsaldri,“ segir Grímur og það heyrist í gegnum símann að stutt er í brosið. Cannes – Bárðardalur Þegar blaðamaður ræðir við Grím hefur myndin verið sýnd á tveimur stöðum. Í Cannes innan um stjörnur og kvikmyndaelítu heimsins, og svo hjá heimafólki í Bárðardal. Var mikill munur á viðtökunum? Já og nei, er svar leikstjórans. „Það er í raun og veru það alveg sama uppi á teningnum. Fólk hlær á réttum stöðum,“ segir hann og bætir við að bransafólkið ytra hafi kannski pælt svolítið í fræðilegum eða tækni- legum hlutum, en svo hafi líka bóndi úr Bárðardalnum gert athugasemd við hljóðklipp nefnir hann sem dæmi, svo kannski sé munurinn minni en ætla mætti í fyrstu. Flutt í ferðatöskuna En hvað er þá framundan hjá Grími Hákonarsyni? Hann segist eiga gott sumarfrí, en ekki er annað að heyra en að það fari í vinnu. Til stendur að hefja vinnu við nýtt handrit. En síðan eru fleiri járn í eldinum. „Svo er ég að gera mynd um sósíalista á Neskaupstað sem ég er byrjaður að taka,“ segir Grímur. Myndin um „Litlu Moskvu“ hefur verið í vinnslu hjá honum um skeið en Grímur segir mjög áhugavert að fjalla um bæinn fyrir austan sem stýrt var af sósíalistum í hálfa öld „meðal Ísland var allt helblátt,“ bætir hann við hlæjandi. Ljóst er hins vegar, að Hrútar munu eigna sér megið af tíma leikstjórans næstu mánuðina og jafnvel misserin. „Þegar líður á hausið þá fer hátíðar- rúnturinn að byrja og ég verð væntan- lega í ferðatösku tvö árin,“ segir Grímur. Hann muni fylgja myndinni eftir á há- tíðum og svo á frumsýningum vítt og breitt um heiminn á milli og eftir það. „Þannig að ég þarf kannski að venja mig á að geta bara unnið í flugvélum og svona.“ Hitti í mark Spurður um fjárhagslegu hliðina og hvort krónurnar fari nú ekki að streyma í kassann, þá segir Grímur að framtíðin muni skera úr um það. Myndin hafi selst vel og verði sýnd um allan heim. Aðstandendur muni njóta góðs af því. En í verðlaunum felist ekki síst virðing. „Þetta er rós í hnappagatið og vekur jú athygli á mér sem leikstjóra en hefur vitaskuld líka markaðslegt gildi. „Þetta er í rauninni ótrúlegt. Við gerðum þessa mynd bara algjörlega á okkar eigin forsendum. Vorum bara að hugsa um að gera sveitamynd fyrir Íslendinga, lítil og einföld mynd um ein- hverja tvo bræður. En einhvern veginn virðist hún hitta í mark.“ Myndin var sýnd á Laugum fyrir norðan í vikunni og voru viðtökur ekki síðri en í Cannes. Hér má sjá f.v. Jón Friðrik Benónýsson, Guðrún Sveinbjörnsdóttir, Teodór Júlíusson, Grímur Hákonarson, Sigurður Sigurjónsson og Grímar Jóns- son fyrir utan Laugabíó. Mynd: 641.is/Hermann Aðalsteinsson. Mynd Gríms Hákonarsonar, Hrútar, sló í gegn á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Hún fjallar um tvo bræður í afdal sem ekki hafa talast við áratugum saman. Svo kemur upp riðuveiki í dalnum. Hér má sjá leikstjórann við Hamraborg í Kópavogi, en hann á sínar rætur í bænum. Fjölbreyttur ferill Grímur Hákonarson kvikmynda- gerðarmaður og leikstjóri er fæddur og uppalinn í Kópavogi og steig sín fyrstu skref í kvikmyndagerð þar í bænum. Hann hefur vakið athygli fyrir heimildarmyndina Hvell, einnig Hreint hjarta, og stutt- myndina Bræðrabyltu. Þá hefur hans nýjasta verk Hrútar sem vann í Cannes hlotið mikið lof. Núna er heimildarmyndin um Litlu-Moskvu í vinnslu en leikstjórinn sér fram á að búa í ferðatösku á næstu mánuðum og misserum. Samtarfsfólkið Grímur Hákonarson leikstýrir og skrifar handritið að Hrútum. Að- alframleiðandi myndarinnar er Grímar Jónsson fyrir Netop Films og meðframleiðendur eru hin dönsku Ditte Milsted og Jacob Jarek fyrir Profile Pictures. Þórir Snær Sig- urjónsson einn af framleiðendum myndarinnar. Framleiðslustjórn er í höndum Evu Sigurðardóttur. Með aðalhlutverk fara Sigurður Sig- urjónsson og Theodór Júlíusson. Stjórn kvikmyndatöku er í höndum Norðmannsins Sturla Brandth Grøvlen og Kristján Loðmfjörð sér um klippingu. Tónlist myndar- innar er samin af Atla Örvarssyni og hljóðhönnun er í höndum Huldars Freys Arnarssonar. Sölufyrirtæki myndarinnar á alþjóðavísu er New Europe Film Sales, að því er segir á vef Kvikmyndamiðstöðvar. Þar segir einnig að myndin hafi verið seld til yfir 20 landa nú þegar og búast megi við því að hún fari víðar á næstu misserum. Hrútarnir Hrútar fjallar um tvo sauðfjár- bændur á sjötugsaldri, bræðurna Gumma og Kidda, sem búa hlið við hlið í afskekktum dal á Norð- urlandi. Fjárstofn þeirra bræðra þykir einn sá besti á landinu og eru þeir margverðlaunaðir fyrir hrútana sína. Þrátt fyrir að deila sama landi og lífsviðurværi þá hafa bræðurnir ekki talast við í fjóra ára- tugi. Þegar riðuveiki kemur upp í dalnum grípur um sig mikil ör- vænting á meðal bændanna þar. Yfirvöld ákveða að skera niður allt sauðfé til þess að sporna við út- breiðslu sjúkdómsins. Bræðurnir standa frammi fyrir því að missa það sem er þeim kærast og grípa til sinna ráða. Íslendingar í Cannes Íslenskar myndir sem hafa áður verið í Un Certain Regard eru Só- dóma Reykjavík eftir Óskar Jón- asson, 1993; Stormviðri eftir Sól- veigu Anspach árið 2003, tekin upp að miklu leyti í Vestmannaeyjum, framleidd af Baltasar Kormáki í samvinnu við Frakka; Voksne mennesker (e.Dark Horse) eftir Dag Kára árið 2005, gerð af Dönum í samvinnu við ZikZak kvikmyndir hérlendis.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.