Fréttablaðið - 21.09.2015, Side 46

Fréttablaðið - 21.09.2015, Side 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Aðeins 79.900 kr. Boogie 3ja sæta sófi Slitsterkt áklæði í mörgum litum. Hægri og vinstri tunga. Stærð: 186 x 77 cm, H: 85 cm. Fullt verð: 99.900 kr. Afgreiðslutími Mán. til fös. frá kl. 10–18 Laugardaga frá kl. 11–16 www.dorma.is Holtagörðum 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri 558 1100 JACKPOT tungusófi Aðeins 99.900 KR. Slitsterkt áklæði, grátt eða antrasite. Hægri og vinstri tunga. Fullt verð: 119.900 208 cm 15 0 c m Komdu og veldu þér sæti Sófi aðeins 69.900 kr. Regina 3ja sæta sófi og stóll Fallegur og vandaður sófi og stóll í klassískum stíl. Dökk- og ljósgrátt áklæði og viðarfætur. Stærð sófa: 200 x 80 H: 82 cm. Ótrúlegt Dormaverð Stóll aðeins 39.900 kr. Í dag er ár frá því að Emma Watson, velgjörðarsendiherra UN Women, kynnti átakið HeForShe fyrir heiminum. Einn af hverjum tuttugu karl- mönnum á Íslandi skráðu sig í átakið á aðeins örfáum dögum og aðeins í Bretlandi skráðu fleiri karlmenn sig sem HeForShe. Þess má geta að UN Women á Íslandi var veitt viðurkenn- ing fyrir þann árangur síðastliðið vor. Í  tilefni ársafmælis HeForShe efnir UN Women á Íslandi til átaks og hvetur alla karlmenn og stráka hér á landi til að stíga skrefið og skrá sig. Tilgangur átaksins er að fá karla og stráka til þess að taka virkan þátt í baráttunni fyrir kynja- jafnrétti. Í dag eru Svíar komnir upp í 9.000 en markmið UN Women á Íslandi er að komast upp í 10.000 á næstu tveimur vikum. „Við getum leyft Svíum að vinna Eurovision en við hér á Íslandi skulum taka HeForShe,“ segir Marta Goðadóttir, herferðarstýra UN Women á Íslandi, sem hvetur karlmenn og stráka til að gerast Heforshe á www.heforshe.is Markmið HeForShe er að stuðla að hugarfarsbreytingu. Mikilvægt er að karlmenn og strákar taki þátt í að breyta úreltum staðalímyndum um hlutverk kynjanna til dæmis innan veggja heimilisins og við upp- eldi barna sinna. Það er ekki síður mikilvægt að karlmenn séu með- vitaðir um fjarsamfélag sitt þar sem mannréttindabrot eiga sér stað á hverjum degi. Karlar þurfa að taka þátt svo að konur séu metnar til jafns  Í dag er ár síðan átakinu HeForShe á vegum UN Women var hrint af stað en íslenskir karlmenn báru af í þátttökunni. Nú er stefnt að því að fá stuðningsmenn upp í 10.000. Emma Watson kynnti þetta bráðnauðsynlega verkefni fyrir réttu ári í dag. Íslenskir karlmenn báru af í skráningu en aðeins Bretar voru með fleiri skráningar í fyrstu. „Við eigum að standa saman öll, alltaf. Einn fyrir alla og allir fyrir eina. Ég ætla rétt að vona að það náist að safna upp í 10.000 skráða meðlimi annars fer ég heim til manna. Það er orðið tímabært að ýta aftur við þessu enda á þetta átak alltaf að vera í gangi. Þetta er táknrænt og mikilvægt að ná í almenni- legan massa, þá verður þetta að einhverju. Jafnréttisbaráttan hér á landi er í góðum gangi og það er mikið af sterkum kven- röddum að stíga fram en við viljum meira.“ Bragi Valdimar Skúlason dagskrárgerðarmaður „Átakið hefur heilt yfir aðeins dottið niður þannig það er algjörlega kominn tími til að rifja þetta aðeins upp aftur og koma skráðum meðlimum upp í 10.000 manns. Það er mikilvægt að fá unga drengi með og að þetta verði orðið stimplað inn hjá þeim og í rauninni búa til ný norm. Þessi gömlu norm eru svo brengluð og skrítin en því er hægt að breyta með orðræðu og öllu sem því fylgir. Mér finnst 1.500 manns ekki hljóma eins og ósigrandi tala, sérstaklega ef þeir sem eru skráðir eru duglegir að dreifa boðskapnum.“ Friðrik Dór tónlistarmaður „Það er mikilvægt að skrá sig í HeForShe vegna þess að þótt lagalegu jafn- rétti hafi næstum öllu verið náð með fáeinum lausum endum þá er menningarleg barátta mun víðtækari en sú pólitíska. Þörfin fyrir viðhorfs- breytingar er mikil og það er mikilvægt að karlar taki þátt í því til þess að konur séu metnar til jafns við karlmenn, ekki bara með lagasetningum heldur einnig í samfélaginu.“ Helgi Hrafn Gunnarsson pírati Þú getur látið til þín taka í jafnréttisbaráttunni með því að: • Hvetja aðra karlmenn og stráka til að beita sér markvisst í barátt- unni fyrir jöfnum hlut karla og kvenna á öllum vígstöðvum • Láta í þér heyra þegar þú verður var/vör við óréttlæti í garð kvenna og stúlkna á vinnustöðum, í skólum, á almenningsstöðum eða á Netinu • Stuðla að hugarfarsbreytingu með því að útrýma niðurlægjandi orðræðu um konur • Taka þátt í að breyta úreltum staðalímyndum um kynjahlutverk til dæmis innan veggja heimilisins og við uppeldi barna þinna • Mana næsta karlmann til að gerast heforshe á www.heforshe.is 2 1 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 m Á N U D A G U r22 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð 2 1 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 5 4 -4 8 D 8 1 6 5 4 -4 7 9 C 1 6 5 4 -4 6 6 0 1 6 5 4 -4 5 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.