Fréttablaðið - 21.09.2015, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 21.09.2015, Blaðsíða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Jarðsjór Bláa Lónsins og náttúruleg innihaldsefni hans; þörungar, kísill og steinefni, leggja grunninn að Blue Lagoon húðvörunum. Rannsóknir sýna að þörungarnir og kísillinn styrkja efsta lag húðarinnar, draga úr niðurbroti á kollageni og örva eigin kollagennýmyndun hennar.* Blue Lagoon húðvörurnar eru án parabena og prófaðar af húðlæknum. *Einkaleyfavarin innihaldsefni Blue Lagoon húðvörurnar viðhalda jafnvægi og frísklegu útliti húðarinnar Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Allt sem þú þarft ... Höfuðborgarsvæðið, meðallestur kvenna á tölublað, 18–49 ára. Prentmiðlakönnun Gallup, jan.– mar. 2015 YFIRBURÐIR Fréttablaðsins staðfestir 53,3% 18% FB L M BL Hauks Viðars Alfreðssonar Bakþankar Hvað finnst mér að Ísland eigi að taka á móti mörgum flóttamönnum? Finnst mér að Dagur B. Eggertsson eigi að segja af sér vegna Ísraelsmálsins? Treysti ég múslimum? Svo margar spurn- ingar og ég hef ekki svar við neinni þeirra. En gjammið í Útvarpi Sögu þagnar ekki og samfélagið ætlast til þess að ég haf skoðun á öllu. Lars Lagerbäck yrði reyndar fínn forseti, held ég, en ég er samt uppgefinn á skoðunum. Þær eru í kommenta- kerfunum, á kaffistofunni og í útvarpinu. Daginn út og inn. Hvergi flóarfriður. Nema á FM 87,7. „Ahh, gamla, góða Rondó,“ hugsa ég og finn hvernig það losnar um streitu- hnútinn í öxlunum. Rondó er best geymda leyndar- mál ljósvakamiðlanna. Þetta er útvarpsstöð á vegum RÚV sem mér skilst að sé bara rykfallin fartölva í skáp í Efstaleitinu. Hún er þarna næstum alveg fremst á FM–kvarðanum, langt frá dægur- þrasi og átótjúnuðu óþverrapoppi. Og henni er alveg sama hvort ég treysti múslimum eða ekki. Hún spilar bara sínar sinfóníur, óperur og djass. Ekkert blaðrandi fólk að skemma fyrir. Ef Útvarp Saga er naglarúm íslensks útvarps er Rondó dúnmjúka svampgryfjan. „Hvernig nennirðu að hlusta á þetta?,“ spyrja margir og halda eflaust að ég hafi gríðarlega mikið vit á klassískri tónlist. Það hef ég hins vegar alls ekki. Og ég hugsa að það sama megi segja um marga af þessu 0,1% okkar sem hlusta á Rondó. Þetta er bara okkar leyni- legi griðastaður á stuttbylgjunni á meðan allir hinir eru enn þá háðir áreiti og kvabbi. En það fer ekkert verr um okkur þótt fleiri hlusti, síður en svo. Reyndar trúi ég því að Ísland yrði töluvert betri staður að búa á ef fleiri skiptu af Útvarpi Sögu og kæmu yfir í djasspartíið með okkur örfáu Rondó-hræð- unum. Já, það er pláss fyrir alla á FM 87,7. Líka múslima. Svampgryfjan 2 1 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 5 4 -3 5 1 8 1 6 5 4 -3 3 D C 1 6 5 4 -3 2 A 0 1 6 5 4 -3 1 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.