Nesfréttir - 01.07.1992, Síða 4

Nesfréttir - 01.07.1992, Síða 4
4 ft&frátt* Enn um umhverfismál Á síðustu misserum hafa augu manna verið að opnast fyrir mikilvægi umhverfis- verndar og þeirri ógn sem umhverfi okkar stafar af óvæginni umgengni okkar mannannaviðnáttúruna. Um- ræða um þessi mál stendur víða og hæst ber hana um þessar mundir á umhverfisráðstefn- unni í Ríó. En þó að mikilvægt sé að huga að þessum málum á alþjóðavettvangi, ræða þau og setja skorður við eyðileggj andi umgengni mannanna við náttúruna, er ýmislegt að gerast í okkar næsta nágrenni sem nauðsynlegt er að huga að. FramU'ðarheill byggðarinnarer að veði og við getum ekki sýnt það ábyrgðarleysi að ætla að velta okkar hlut í að vernda náttúruna og skapa mann- fólkinu lífr ænt umhverfi yfir á næstubyggðarlög. Hérmáeng- inn skorast úr leik, hvorki ein- staklingar né yfirvöld. Það sem mér er efst í huga varðandi okkarnæstanágrenni er Framnesið og Valhúsa- hæðin. Hafa þessi mál verið lítillega rædd formlega innan bæjarfélagsins nú síðla vetrar, eða á bæjarmálafundi sem haldinn var á vegum Sjálf- stæðismanna í mars eða apríl, en óformleg umræða manna á meðal hefur verið áberandi síðustu misseri. Þessi umræða vitnar í fyrsta lagi um að viðhorf manna til umhverfismála hefur breyst á síðustu misserum. Þar sem áður ríkti afskiptaleysi og jafnvel kæruleysi ríkir nú vilji til þátttöku og umhyggja. í öðru lagi finnst mér mega lesa útúrumræðunni aðbæjarstjórn okkar hefur annað hvort ekki tekið eftir þessari breytingu eða er á annarri skoðun og vill halda sínu striki með úreltar hug- myndir um landnýtingu þrátt fyrir viðhorfsbreytinguna. Bæjarstjórnin segist þó vilja heyra sjónarmið fólksins og að einungis sé verið að skoða tillögur sem ræddar verði vel og vandlega áður en nokkrar ákvarðanir verða teknar. Framnesið Betur væri að satt reyndist en ég er hræddur um að ekki hafi allur sannleikurinn verið sagður. Margir muna eftir fjaðrafokinu sem varð á síðasta ári þegar í ljós kom að níðings- verk hafði verið unnið á æva- gömlum og merkilegum skelja- lögum í Svartabakka með vinnu vélum á vegum b æj ari ns. Setti ugg að mörgum en aðrir áttuðu sig hreinlega ekki á því hvað hér hafði gerst fyrr en seinna. Enskaðinnvarskeður. Síðan urðu menn varir við vegagerð út Bakkagranda í átt að Svörtubökkum. Furðuðu menn sig á þ ví að lagður sky ldi vegur á bakkanum, bæði vegna viðkvæmrar náttúrunnar og eins vegnaþess að gamall vegur var fyrir út á nú verandi golfv öll og því væntanlega ódýrast og áhættuminnst fyrir náttúruna að láta hann standa áfram en spillaekki náttúrunni meiraen orðið var. Hver var tilgangur þessara framkvæmda? Það var og er enn óljóst en kvisast hefur að kylfingum hafi verið úthlutað svæðinu frá núverandi golfvelli og alla leiðút að Bakkatjörn og þess vegna hafi þurft að flytja veginnogbílastæðið? Erþetta kannski skýringin á þessum vegaframkvæmdum? Otrúlegt er það, en ef svo er virðist það hafa verið ákveðið fyrir löngu síðan eða áður en gerð vegar og bílastæðahófst. Nú eru iðkendur golfí- þróttarinnar alls góðs maklegir en með fullri virðingu fyrir þeim og bæjarstjórn okkar finnst mér þessi ráðstöfun landsins fráleit. Þungamiðjan í allri umræðu um náttúruvernd og landnýtingu hér á Seltjar- narnesi er að menn vilja að náttúrunni sé ekki spillt frekar en orðið er og að það land sem enn er ónýtt verði haft opið almenningi til umferðar eftir því sem náttúrufarþess leyfir. Hvort tveggja er sniðgengið ef þarna kemur golfvöllur. Þá þarf bæði að gjörbreyta landinu, hrekj a burt fuglana af einum af örfáum griðastöðum sem þeir enn eiga innan bæjarmarkanna, og að loka landinu fyrir allri umferð annarra en þeirra sárafáu, tiltölulega, sem vilja stunda golfíþróttina. Enginn hættir ser inn á hann til gönguferða! Ég leyfi mér að vona að þessar fregnir um stækkun golf- vallarins séu fleipur eitt og að bæjarstjórn verði fljót að staðfesta að svo sé, þannig að kríur, gæsir, náttúruunnendur og aðrir fuglar geti tekið gleði sína á nýjan leik. Þrennt til viðbótar áður en skilið er við Framnesið: I fyrsta lagi: Byggð vestan nú- verandi byggðar finnsj mér ekki koma til greina. í öðru lagi: í stað hringvegar, sem er óþarfur, mætti geraLindarbraut að vistgötu með eyjum frá báðumhliðum, öldum o.s.frv. samanber Nesveg og fleiri götur, því hvaða máli skiptir ein eða tvær mínútur til eða frá fyrir þá sem þessa leið vilja fara? Meira að segja strætó kemst slíkar götur með léttum leik. Hraðhringvegur mundi fyrst og fremst þjóna óæsk- ilegri umferð. íþriðjalagi. Er ekki hægt að slá túnin við Nes og Nýjabæ til að gera þau fær umferðar gangandi fólki? Valhúsahæð Niðurlæging Valhúsahæðar ermikil. Mestur hluti hennar hefur nú verið tyrfður til mismunandi nota, - fyrir fót- bolta, áramótabrennu og leik- völl. Þessi svæði hafa verið girt með vindbrj ótum sem gefa landinunýjaásjónu.sviplausa, enda gerð með reglustiku og jarðýtu. Góðspildahefurverið seld undir húsbyggingar. Einungis vestasti hluti hennar, svokallaðar Klappir, fær að vera í friði, og útsýnisskífan fær reyndar að vera á sínum stað. Valhúsahæðin, rómuð af skáldum og hæsti hluti okkar láglenda sveitarfélags með fögru útsýni til allra átta, má muna fífil sinn fegurri. Ég held að núverandi nýting hennarhljóti að veraheimsmet í vannýttum tækifærum. Val- húsahæðin hafði sannarlega allaburði til að verðaein okkar fáu útivistarperla. Enn hef ég ekki hitt nokkurn mann, utan þeirrasemnúsitjaíbæjarstjóm, sem mælir þessum fram- kvæmdum bót. Ég varpa því hér fram í fullri alvöru að ráðamenn bæjarfélagsins setjist á rökstóla, ræði á nýjan leik um skipulag Valhúsa- hæðar, hlusti á bæjarbúa, og reyni að komast að niðurstöðu sem okkur bæjarbúum og Valhúsahæðersamboðin. Ég veit að þetta kostar fé og tekur tíma en það eru smámunir miðað við það tj ón og þá hneisu sem við annars hljótum af frá samtíðogframtíð. Viðverðum menn að meiri ef við viðurkennum yfirsjónir sem þessa og gemm yfirbót. Að lokum þetta: Bæjar- stjómarmeirihluti Sjálfstæðis- manna hefur stjórnað þessu bæjarfélagi árum saman og farist það að mestu vel úr hendi. Festa og ráðdeild hefur ráðið ríkjum og ffamsýni á vissum sviðum eins og í skólamálum. Fyrir þetta eiga Sjálfstæðis- menn þakkir skildar og ég vil vona í lengstu lög að þeir skemmi ekki þetta góða orðspor sem af þeim fer með skammsýni og vanhugsuðum aðgerðum í skipulags- og umhverfismálum. Haukur Björnsson SMÁAUGLÝSINGAR Garðyrkjustjórinn á Seltjarnamesi óskar eftir 3ja til 4ra herbergja'fbúð á Seltjamarnesi frá 1 júlí eða 1 ágúst. Nánari upplýsingar á bæjarskrifstofu Seltjarnarness í síma 612100.

x

Nesfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.