Nesfréttir - 01.12.1992, Side 9

Nesfréttir - 01.12.1992, Side 9
9 Nesfréttir Siv Friðleifsdóttir, bæjarfulltrúi Bæjarmálafélags Seltjarnarness Höfnum skrökstíl Borgarafundurinn. Þann 5. nóvember síðastliðinn hélt bæjarstjórn Seltjamamess borgarafund um skipulagsmál að fmmkvæði minnihluta bæjarstjórnar. Fjölmenni sótti fundinn enda löngu tímabært að halda slíkan fund um framtíð vestursvæðis Seltjarnarness, sem verið hefur umdeilt að undanförnu. Á honum kom m.a. fram í máli Sigurgeirs Sigurðssonar bæjarstjóra að enn væri á dagskrá að leggja hringveg meðfram viðbótarbyggð og vestan Nesstofu. Einng kom fram að fleiri fulltrúar meirihluta bæjarstjómar vildu veginn, hins vegar upplýsti Erna Nielsen forseti bæjarstj ómar að þær teikningar sem nú liggja fyrir í skipulagsnefnd ganga of langt, þ.e. geri ráð fyrir of mikilli byggð. Tveir fulltrúar meirihlutans þau Petra Jónsdóttir og Guðmundur Jón Helgason hafa ekki lýst skoðun sinni á málinu. Fulltrúar minnihlutans hafa hins vegar hafnað byggð vestan Nesbala og Bygggarða og vegi vestan Nesstofu. Þeir bæjarbúar sem tóku til máls á fundinum vildu vernda svæðið sem útivistarsvæði. Biblíulestur Sigurgeirs. í síðastatölublaði Nesfrétta hefurbæjarstjóri eftirfarandi að segja: “ Við höfum notað náttúrufræðiskýrsluna sem Biblíu við okkar skipu- lagsvinnu. Skipulagsnefndin hefur legið yfir þessari bók og að auki haldið tvo fundi með höfundum og ekki hefur neinum enn tekist að benda á að við séum á vafasömum svæðum. Þvert á móti hefur til dæmis fuglafræðingurinn bent á að mannabyggð sé mjög æskileg í nábýli við fuglinn, einu vandamálin væm hundar sem kynnu að ganga lausir.” V arðandi fuglah'fið hafði ég samband við Ævar Petersen, fuglafræðing sem Sigurgeir vitnar svo fjálglega í. Ævar segir þessar óskiljanlegu staðhæfingu bæjarstjóra vera algerlega út í hött, og það sé alrangt hjá Sigurgeiri að byggð sé æskileg fuglalífinu á þessu s væði. Hann segist ekki skiljaí málflutningi bæjarstjórans. Varðandi náttúrufræði- skýrsluna, með allri virðingu fyrir Biblíulestri Sigurgeirs er augljóst að ekki hefur verið tekið mark á skýslunni né höfundum hennar við gerð skipulagstillagnanna eins og eftirfarandi línur teknar úr henni sýna: * Lagt er til að Nesstofa verði ekki afgirt með byggð, heldurhaldistfráhenni opin og óskert sjónlína yfir allt svæðið, milli Suður- og N orðurstrandar, án tmflunar frá mannvirkjum. Með því móti helst þetta skemmtilegasvæði meðmerku fuglalífi, fallegu gróðurfari, merkri jarðsögu og sögustöðum opið. Byggð milli Nesstofu og B akkatj arnar myndi þar að auki raska mikil vægum setlögum og varplönd fugla á svæðinu. *Til að aðkoma að svæðinu verði opin og óþvinguð er nauðsynlegt að Snoppa og vestasti hluti Ráðagerðistúns verði án mannvirkja. Einnig er lagt til að ekki verð byggt milli Nesstofu og Bakkatjamar. *Að í landi bæjarsins verði til dæmi um þau gróðurlendi sem cnn eru óskemmd. Þannig að þar verði um ókomin ár hægt að skoða allar þær villtu plöntutegundir sem á Nesinu vaxa í sínu umhverfi. *Tjörn í Dal, Búðatjörn og Bakkatjörn og umhverfi þeirra eru forgangssvæði, enda mjög viðkvæmar fyrir hvers kyns röskun og umferð. Kristbjörn Egilsson grasafræðingur, einn af fjórum höfundum náttúrufars skýrslunnar hefur varað mjög við raski vestan Nesbala og telur verulega hættu á að framkvæmdir þar þurrki upp eina votlendið sem eftir er á Seltjarnamesi. Ef bæjarstjóri telur framkvæmdir vestan Nesbala ekki teljast vafasamt svæði eftir að hafa sjálfur hlustað á rök Kristbjarnar á fundi varðandi votlendið er erfitt aðskilja hvað bæjarstjóri á við með hugtakinu “vafasamt svæði”. Ofangreind atriði öll sýna vel skrökstíl ogfurðulegar staðhæfingar bæjarstjórans í umhverfismálum Seltjarnar- ness. Seltirningum hótað. I viðtalinu kemur fram að bæjarstjóra finnst ekkert úrslitaatriði í sjálfu sér að stækka bæjarfélagið. Skynsamlegt væri að bæjarfélagið væri hagkvæmari rekstrareining en þó er ekkert aðalatriði að hans mati. Einnig kemur fram í viðtalinu að fjárhagur bæjarins er mjög góður, eitt best stadda bæjarfélagið á landinu. Samt leyfir bæjarstjóri sér í sama viðtali að tala í þveröfuga átt við sjálfan sig og hótar Seltirningum með eftirfarandi hætti: “ Það er spurning hvort fólk vill leggja niður almenna þjónustu við bæjarbúa og þess í stað að leggja útsvarsféð í að kaupa landið vesturfrá eða hvort þessi nýting sem við höfum verið að tala um geti samræmst hugmyndum bæjarbúa.” Þarhöfumviðþað! Bæjarstjórinn þykist láta sér málið í léttu rúmi liggja, en hótar samt öllu illu ef ekki sé farið aðhans kröfum um byggð. Vilji hans til að finna leiðir til að vernda svæðið er enginn, heldur eru okkur send þau skilaboð að ef ekki verður byggt í samræmi við skipulags tillögurnar leggist þjónusta bæjarfélagsins niður.Hérhefur e.t.v. tónnin verið gefinn fyrir væntalega skoðanakönnun varðandi framtíð vestur svæðisins. Því ef bæjarstjóri fær að ráða verða spurningarnar sem lagðar verða fyrir Seltiminga sennilega blandaðar mismiklum hótunum í samræmi við mismikla byggð. Hugmyndi nni um að bærinn gefi út skuldabréf til að létta eitthvað á kaupum vestur svæðisins er bæjarstjórinn andsnúinn. Hann virðist ekki til í að að leggja það á sig að finnaleiðirtilaðvemdasvæðið. Hvort þar er um að kenna gamaldags afstöðu til umhverfismálaskal ósagtlátið. Það er skoðun okkar fulltrúa minnihluta bæjarstjórnar að bæjarstjórn getur með vilja, krafti og áræði tekið höndum saman og tryggt að vesturs væði Seltjamarness verði fólkvangur fyrir okkur og afkomendur okkar.

x

Nesfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.