Nesfréttir - 01.01.1993, Page 3

Nesfréttir - 01.01.1993, Page 3
3 Nesfréttir FÉLAGSSTARF ALDRAÐRA Þóra Einarsdóttir tóm- stundafulltrúi stjómar meðal annars félagsstarfi aldraða á Nesinu og ræddu Nesfréttir við hana. Þóra sagði að mikil fjöldi aldraðra mætti í leikfimina sem er þrisvar í viku og má segja að við séum búin að sprengja utan af okkur húsið. Nú 18. janúar var að hefjast keramik og leðurvinna og 20. janúar hófst bókbandskennsla. Einnig er spiluð félagsvist þriðja hvert þriðjudagskvöld. Sólveig Lára Guðmundsdóttir sóknarprestur okkar kemur í heimsókn alla miðvikudaga kl. 14. Alltaf þegar eitthvað er um að vera er hægt að fá kaffí og meðlæti á vægu verði. Mötuneyti er starfandi í íbúðum aldraðra, hægt er að fá mat á vægu verði alla daga vikunnar. Þóra sagði að einnig væri hægt að fá mat sendan heim ef svo stæði á. Upplýsingar um það veitir Hjördís í síma 612007 í íbúðum aldraðra. Undanfarin 20 ár hefur bæjarfélagið boðið eldri borgurum í leikhúsferð og nú síðast mættu á annað hundrað manns. Fyrir hver jól hefur Selkórinn sungið fyrir aldraða og er þá boðið upp á heitt súkklaði og meðlæti. Greinilegt er að úr mörgu er að velja fyrir aldraða hér á Seltj amamesi en að lokum vildi Þóra hvetja fleiri aldraða til að mætaáföndumámskeiðin. Fólk ætti þ ví bara að taka upp símann og hringj a og láta skrá sig ef illa stendur á er boðið upp á að fólk verði sótt, þannig að engin þarf að láta sig vanta. Myndin var tekin á spilakvöldi hjá öldruðum um daginn. GARÐURINN VERÐUR ENDURREISTUR Eins ogkomiðhefurfram þurfti að fjarlæga gamla garðhleðslu þegar skurðurin var grafinn fyrir holræsinu fyrir neðan Eiði. Að sögn Steinunnar garðyrkjustjóra var hann allur mældur og myndaður í bak og fyrir og verður hann endurhlaðin á sama stað þegar framkvæmdum lýkur. Steinunn sagðist vera áhugamanneskja um vegghleðslur. Þessi garður var nánast hruninn fyrir 1980 og var þá endurhlaðinn. Steinunn benti á að fyrir neðan Kirkjubraut í áttina að Valhúsaskóla, er önnur gömul vegghleðsla sem er nánast horfin. Steinunn segist hafa áhuga fyrir því að endurhlaða hana. Margir hafa verið að furða sig á öllu fjörugrjótinu sem er við gangstéttina fyrir neðan bæjarskrifstofurnar. "Þetta grjót er ég búin að hirða úr fjörunni til þess að það verði ekki urðað og ætla að nota það í beð og hleðslur í sumar, en þetta er sérstaklega fallegt grjót sem ég hef valið"; sagði Steinunn að lokum. OPNUNARTÍMI SKÍÐA- SVÆÐANNA Að sögn Hildar Jónsdóttur sem er í Bláfjallanefnd er Seltjarnarnesbær rekstraraðili að skíðasvæðinu í Bláfjöllum ásamt Reykjavíkurborg og 11 öðrum sveitarfélögum í Reykjaneskjördæmi og nágrenni Reykjavíkur. Opið er í Bláfjöllum frá kl. 10-18 alla daga vikunnar og að auki til kl. 22 þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. Brekkur hafa verið lýstar upp í auknum mæli svo hægt sé að skíða að kvöldi til. Einnig er opið í Skálafelli og á Hengilssvæði flesta daga vikunnar. Upplýsingar um veður og færi er að fá í símsvara, sími: 801111 Hægt er að kaupa árskort, dagskort og hálfsdags kort ásamt stökum miðum í lyftur. Einnig eru troðnargöngubrautir á Bláfjallasvæði. Gangi ykkur vel í fjöllunum sagði Hildur að lokum. latTHBrcfg Seltirningar: Gangi ykkur vel á nýja árinu. Munið að versla í heimabyggð

x

Nesfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.