Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2015, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. MARS 2015
Myndlistaskólinn í Reykjavík – deildarstjóri sjónlistadeildar
Sjónlistadeild er listnámsdeild á framhaldsskólastigi. Innan deildarinnar eru tvær námsleiðir;
tveggja ára listnámsbraut til stúdentsprófs og árs listnám til undirbúnings fyrir listaháskóla.
Deildarstjóri skipuleggur skólaárið, ræður kennara og heldur utan um nemendahópinn og
starfið í deildinni. Við leitum að myndlistarmanni eða hönnuði með áhuga á skólastarfi, góða
skipulagsgáfu, reynslu af stjórnun og réttindi til kennslu á framhaldsskólastigi.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og greinargerð um ástæðu umsóknar og hæfni
viðkomandi í starfið.
Umsóknum skal skila skriflega á skrifstofu skólans fyrir 9. mars 2015. Viðkomandi þarf að geta
hafið störf í byrjun júní n.k.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólanám í myndlist eða hönnun
Réttindi til kennslu á framhaldsskólastigi
Stjórnunarreynsla
Skipulagshæfileikar
Lipurð í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar veitir Áslaug Thorlacius, skólastjóri Myndlistaskólans í Reykjavík
skolastjori@mir.is
Rangárþing eystra
Skólastjóri Hvolsskóla Hvolsvelli
Staða skólastjóra við Hvolsskóla á Hvolsvelli er laus til umsóknar. Leitað er að öflugum og framsýnum
leiðtoga sem er tilbúinn til að leiða þróttmikið skólastarf og taka þátt í eflingu skólasamfélagsins í sveit-
arfélaginu. Sveitarfélagið nær frá Eystri Rangá að Jökulsá á Sólheimasandi.
Starfssvið
• Ábyrgð á rekstri skólans og daglegri starfsemi
• Fagleg forysta á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
• Ábyrgð á samstarfi við heimili og samfélag
Menntunar- og hæfniskröfur
• Kennsluréttindi og kennslureynsla á grunnskólastigi
• Reynsla af stjórnunar- og þróunarstörfum
• Framhaldsmenntun á sviðið stjórnunar og reksturs æskileg
• Forystuhæfni og færni í mannlegum samskiptum
• Metnaður, frumkvæði og skipulagshæfni
Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra sýn í skólamálum, er metnaðarfullur, skapandi og áhugasamur um
nærsamfélagið. Æskilegt er að skólastjóri hafi búsetu í Rangárþingi eystra. Staðan er laus frá 1. ágúst nk.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ.
Umsóknarfrestur er til 20. mars 2015
Hvolsskóli er á Hvolsvelli í Rangárþingi eystra. Í skólanum eru 240 nemendur á aldrinum 6-16 ára í 12 umsjónarhópum. Við
skólann starfa 29 kennarar og 24 aðrir starfsmenn en ekki eru allir í fullu starfi. Stjórnunarteymi Hvolsskóla er auk skólastjóra,
tveir deildarstjórar og vinnur stjórnunarteymið mjög náið saman. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu skólans
www.hvolsskoli.is.
Hvolsskóli starfar í anda Uppeldis til ábyrgðar, er Grænfánaskóli og vinnur að því að verða ART skóli. Í skólanum er lögð
áhersla á einstaklingsmiðað nám. Hvolsskóli er eini grunnskóli sveitarfélagsins og þess vegna kemur fjöldi nemenda í skólann
með skólabifreiðum úr dreifbýlinu. Í skólanum er skólaskjól og einnig er lögð áhersla á að allir nemendur fái tekið þátt í íþrótta-
og félagsstarfi sem boðið er uppá í lok hefðbundins skólastarfs.
Umsóknum má skila á skrifstofu Rangárþings eystra, Hlíðarvegi 16, 860 Hvolsvöllur.
Einnig má senda inn umsóknir rafrænt á netfangið isolfur@hvolsvollur.is.
Menntamálaráðherra verður
að taka af skarið strax og
styðja við starfsemi Nátt-
úruminjasafns Íslands, sem
hann fer með yfirstjórn á,
þannig að sómi sé að. Þetta
segir í ályktun Hins íslenska
náttúrufræðifélags sem hélt
aðalfund sinn í vikunni. Þar
segir að staða safnsins sé
harmsefni. Safnið hafi verið
stofnað fyrir 125 árum, en í
árafjöld hafi verið óvissa um
aðstöðu safnsins til sýn-
ingahalds og annarar starf-
semi.
„Fjárframlög ríkisins til
Náttúruminjasafnsins eru
fyrir neðan allar hellur sem
gerir safninu nær ókleift að
sinna með sóma lögbundnum
hlutverkum á sviði rann-
sókna, sýninga, fræðslu og
upplýsingamiðlunar,“ segir í
ályktun. Er bent á að gullin
tækifæri séu til staðar. Hug-
myndir séu uppi um sjálf-
stæða grunnsýningu um
náttúru Íslands í Perlunni.
Borgaryfirvöld sýna safni á
þeim stað áhuga og fjár-
festar séu reiðubúnir til
þátttöku.
Hagsmunir fara saman
„Til ríkisins er einungis
gerð sú krafa að það axli þá
ábyrgð sem því ber lögum
samkvæmt og sýni vilja til
samstarfs. Þar fara saman
hagsmunir ríkis og borgar,
lands og þjóðar. Það er
vandséð að hagkvæmari
kostur finnist og ákjós-
anlegri staður er varla til –
Perlan í Öskjuhlíð er mið-
lægt í höfuðborginni, í ná-
munda við önnur höfuðsöfn
þjóðarinnar og háskóla-
umhverfið, á besta stað fyrir
ferðaþjónustu og í órofa
tengslum við íslenska nátt-
úru,“ segir í ályktun HÍN.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Perlan Er tilvalin fyrir náttúrugripasafn, segja kunnugir.
Vilja náttúrusafn í
Perlu í Öskjuhlíð
Tækifæri Ríkið axli ábyrgð
Landsnet hefur boðið út jarð-
vinnu og lagningu tveggja
verkefna sem framundan eru
á Suðurlandi. Þar ræðir um
annars vegar Selfosslínu 3 og
hins vegar Hellulínu 2.
Línan sem kennd er við
Selfoss er 25 km langur 66
kílóvolta (kV) jarðstrengur til
Þorlákshafnar sem á að auka
afhendingaröryggi raforku í
Hveragerði, Þorlákshöfn og á
Selfossi. Áreiðanleiki á vest-
ari hluta svæðiskerfisins á
Suðurlandi þykir takmark-
aður í dag og því verður, að
því er segir í tilkynningu,
ávinningur af hringtengingu
svæðisins. Ráðgert er að
leggja strenginn að mestu
meðfram vegum á svæðinu.
Útboð miðast við að verkinu
verði lokið 15. nóvember
næstkomandi.
Hellulína 2 er 13 km langur
66 kV jarðstrengur meðfram
Suðurlandsvegi frá tengivirki
við Hellu að tengivirki við
Hvolsvöll. Strengurinn mun
auka flutningsgetu og afhend-
ingaröryggi á svæðinu. Leys-
ir af hólmi núverandi loftlínu,
Hellulínu 2 frá 1948, sem er
með elstu línum í flutnings-
kerfinu og þarfnast endurnýj-
unar. Verkinu skal ljúka á
haustmánuðum. sbs@mbl.is
Hringtengja og
endurnýja lagnir
Landsnet í framkvæmdir á
Suðurlandi Strengir í jörð
Þorlákshöfn Verður loksins í
öruggu rafmagnssambandi.
Skökku skýtur við að nauð-
syn sé að innheimta viðbót-
artekjur af ferðamönnum og
öðrum til að sinna viðhaldi
og uppbyggingu ferða-
mannastaða, þegar skatt-
tekjur af ferðaþjónustu hafa
aldrei verið meiri.
Þetta segir í ályktun sem
Ferðamálasamtök Hafn-
arfjarðar sendu frá sér í vik-
unni þar sem fyrirtætlunum
iðnaðarráðherra um nátt-
úrupassa er mótmælt. Segir
að tekjur af ferðamönnum
muni aukast enn meira á
næstu árum vegna hækk-
unar virðisaukaskatts, auk
þess sem undanþágur ým-
issa ferðaþjónustufyrirtækja
í skattamálum verði felldar
niður um næstu áramót.
Komugjöldin eru fær leið
Hafnfirðingar segja þá
kröfu vera eðlilega að ríkið
láti lítinn hluta af þeim
miklu skatttekjum sem
ferðamenn skili, renna í upp-
byggingu og viðhald í stað
þess að bæta enn meiri álög-
um á ferðamenn sem koma
til Íslands. Með slíku skaðist
samkeppnisstaða Íslands
sem áfangastaður ferða-
manna. „Það hefur verið
fjallað um að margar leiðir
komi til greina og flestar
þeirra eru mun skyn-
samlegri en frumvarp um
náttúrupassa. Þar má helst
nefna komugjöld en sýnt
hefur verið fram á að sú leið
er fær. Einnig má nefna
bílastæðagjöld og salern-
isgjöld sem þykja mjög eðli-
leg í mörgum nágrannalönd-
um okkar,“ segir stjórn
Ferðamálasamtaka Hafn-
arfjarðar. sbs@mbl.is
Skatttekjur renni til
uppbyggingarinnar
Hafnfirðingar vilja ekki passa
Morgunblaðið/Eggert
Hafnarfjörður Vaxandi ferðamannastaður sem er í góðri sókn.
Fyrirtækin Orange Project
og Ritari.is hafa efnt til sam-
starfs um ritara- og símsvör-
unarþjónustu. Samstarf þetta
felst í því að Ritari.is annast
símsvörun og bókunarþjón-
ustu ásamt öðrum rit-
arastörfum sem til falla.
Að því er fram kemur í
fréttatilkynningu býður Or-
ange Project viðskiptavinum
sérsniðnar lausnir, svo sem
skrifstofurými til leigu, lög-
fræðiaðstoð, bókhald og rit-
araþjónustu. Segir í fréttinni
að með samstarfi við Ritara
sé tryggt að ritaraþjónust-
unni sé ávallt sinnt meðan
viðskiptavinirnir geta ein-
beitt sér að kjarnastarfsemi
sinni.
Ritari.is býður upp á
margþætta skrifstofuþjón-
ustu. Leitast er við að veita
framúrskarandi þjónustu á
sviði viðskiptatengsla og
skrifstofuhalds en í boði er
ritaraþjónusta, bókun og
símsvörun og fleira slíkt.
sbs@mbl.is
Fara í samstarf um
ritun og símsvörun
Orange Project og Ritari.is
Margþætt þjónusta í boði