Morgunblaðið - 29.05.2015, Page 2

Morgunblaðið - 29.05.2015, Page 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2015 FÓTBOLTI Guðmundur Hilmarsson Pétur Hreinsson Jóhann Ólafsson Selfoss vann í gærkvöldi frábæran 2:1 sigur á Íslands- og bikarmeisturum Stjörnunnar í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu. Liðið varð þar með það fyrsta í nítján leikjum til þess að bera sigur úr býtum gegn Stjörnunni í deildinni en Garðabæjarliðið tapaði síðast gegn Breiðabliki í 1. umferð Pepsi-deildarinnar í fyrra, þann 13. maí árið 2014. Með sigrinum komst Selfoss jafnfætis Stjörnunni að stig- um en liðin hafa sex stig í 4. og 5. sæt- inu. Harpa hafði snúið sér við Sigur Selfyssinga var fyllilega verð- skuldaður og virðist Gunnar Borg- þórsson, þjálfari liðsins, hafa und- irbúið liðið gríðarlega vel. Stjarnan er með frábæra sóknarmenn innanborðs eins og Hörpu Þorsteinsdóttur, Sig- rúnu Ellu Einarsdóttur og Rúnu Sif Stefánsdóttur fremstar í flokki. Þær fengu hins vegar varla færi í gær. Markið sem Harpa skoraði var í rauninni ekkert færi – algjört heppn- ismark úr þröngum vinkli en boltinn endaði á einhvern ótrúlegan hátt á milli fóta Chante Sandiford í markinu hjá Selfossi. Harpa sjálf var að eigin sögn búin að snúa sér við þegar hún skoraði markið. Sandiford vill vænt- anlega gleyma þessu marki sem fyrst þar sem tilburðir hennar voru afar klaufalegir. Selfyssingar áttu harma að hefna gegn Stjörnunni en Stjarnan sló liðið úr leik í undanúrslitum Lengjubikars- ins auk þess sem liðið vann allar þrjár viðureignir síðasta tímabils gegn Sel- fossi, þar á meðal úrslitaleik bikars- ins. Eins hefði Sandra í markinu hjá Stjörnunni einnig mátt gera betur í fyrra marki Selfoss. Aukaspyrna Önnu Maríu Friðgeirsdóttur af alla- vega 30 metra færi á móti sterkum vindi endaði í netinu. Söndru til varn- ar, bjuggust líklega ekki margir við skotinu. „Við höfum gefið það út að við vilj- um keppa um titla. Við fundum lykt- ina af því í fyrra. Við ákváðum í sam- einingu að setja markið hátt. Við viljum keppa um titlana, ef það geng- ur upp, þá er það frábært, ef ekki, þá reynum við aftur á næsta ári. Við höf- um háleit markmið og æfum og spilum þannig,“ sagði Gunnar Borgþórsson, þjálfari Selfyssinga, við Morgunblaðið eftir leik í gær. Framlína Vals afgreiddi Fylki Valur og Fylkir mættust í 3. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu á Hlíðarenda í gærkvöldi. Fyrir leikinn hafði Valur unnið báða leiki sína en Fylkir unnið einn og tapað einum. Mikil barátta einkenndi leikinn frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu. Sterkur vindur setti svip sinn á leik- inn en Valsstúlkur léku undan honum í fyrri hálfleik og höfðu talsverða yf- irburði. Þrátt fyrir nokkurn fjölda færa tókst þeim ekki að skora nema eitt mark og staðan því 1:0 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Fylk- isstúlkur komu ákveðnar til síðari hálfleiks og jöfnuðu leikinn með glæsi- legu marki og stemningin virtist öll þeirra megin. En Valsliðið er með eld- fljóta leikmenn frammi sem refsuðu þegar Fylkir ætlaði að færa lið sitt framar og skoruðu tvö síðustu mörk leiksins, lokastaðan 3:1 fyrir Val. Erfitt er að dæma liðin af þessum leik. Fáir glæsilegir spilkaflar náðust en Valsarar náðu þó betri tökum á knettinum. Þrír fremstu leikmenn liðsins eru allir eldfljótir og stór- hættulegir. Vanja Smiljkovic er stöð- ugt ógnandi og ákaflega leikin með boltann, Katia Maanane er öskufljót þegar hún kemst á skrið og Elín Selfoss ætl- ar að berjast um titla Horft á boltann Katia Maanane, leikmaður Vals, og Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir  Selfoss lagði Íslandsmeistarana  Valskonur á toppnum  KR náði stigi gegn Blikum  Fyrsti sigur ÍBV Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers hefja úrslitaeinvígi sitt um NBA-meistaratitilinn í körfuknattleik að kvöldi fimmtudags- ins 4. júní, eða eftir tæpa viku. Golden State vann Houston Rockets, 104:90, í fimmta leik liðanna í fyrrinótt og sigraði því 4:1 í einvíginu um sigur í Vesturdeildinni og Cleveland hafði áður sópað Atlanta Hawks, 4:0, í úrslitaviðureign Austurdeildarinnar. Stephen Curry skoraði 26 stig fyrir Golden State og Harrison Barnes 24 en liðið er nú komið í úrslit NBA í fyrsta sinn í 40 ár. Vorið 1975 varð Golden State meistari í fyrsta og eina skiptið undir því nafni til þessa og sigraði þá Washington Bullets 4:0 í úrslitaeinvíg- inu. Áður vann félagið reyndar titilinn árin 1964 og 1967 en hét þá San Francisco Warriors. Liðið flutti síðan til Oakland 1971 og skipti þá um nafn. „Hvers vegna ekki við?“ hrópaði Curry til vel stemmdra áhorfenda í Oakland eftir leikinn. „Þetta svæði hefur beðið eftir titlinum í 40 ár og það er kominn tími á hann,“ sagði Curry við fréttamenn. vs@mbl.is „Hvers vegna ekki við?“ Stephen Curry Handknattleikssamband Íslands staðfesti í gær að Olís-deild kvenna yrði fjórtán liðum á næsta keppnistímabili en þá bætast við bæði Afturelding Afturelding tekur aftur upp þráðinn eftir eins árs fjarveru en Mosfells utandeild kvenna á nýliðnu keppnistímabili. Fjölnir hefur hinsvegar aldr sent kvennalið til keppni í efstu deild en var með lið í utandeildinni í vetu Þau tólf lið sem léku í deildinni í vetur verða öll áfram með, en það eru Fylkir, Grótta, Haukar, HK, ÍBV, ÍR, KA/Þór, Selfoss, Stjarnan og Valur verður tvöföld umferð, 26 leikir á lið í stað 22 í vetur, og síðan átta liða ú slitakeppni. Í karladeildunum fækkar liðum um eitt því ÍH úr Hafnarfirði tilkynnti töku að þessu sinni. Karlaliðin á Íslandsmótinu 2015-2016 verða því 18 ta 19 á síðasta tímabili. Tíu lið verða áfram í Olís-deild karla og átta lið í 1. d Í Olís-deild karla leika Afturelding, Akureyri, FH, Fram, Grótta, Hauk ÍR, Valur og Víkingur. Í 1. deild karla leika Fjölnir, Hamrarnir, HK, Mílan, KR, Selfoss, Stjarn Þróttur. vs@mbl.is Fjórtán lið í kvennadeildinni Pepsi-deild kvenna Þór/KA – Afturelding............................. 5:2 Klara Lindberg 14., Sarah M. Miller 45., 57., Sandra María Jessen 82., Kayla June Grimsley 89. – Stefanía Valdimarsdóttir 27., Elise Kotsakis 36. Rautt spjald: Mist Elíasdóttir 51. (Aftureldingu). ÍBV – Þróttur R. ...................................... 1:1 Kristín Erna Sigurlásdóttir 35. Stjarnan – Selfoss.................................... 1:2 Harpa Þorsteinsdóttir 52. – Anna María Friðgeirsdóttir 20., Guðmunda Brynja Óla- dóttir 68. Valur – Fylkir .......................................... 3:1 Elín Metta Jensen 42., Vesna Elísa Smiljkovic 57., Katia Maanane 79. – Sandra Sif Magnúsdóttir 50. Breiðablik – KR ....................................... 1:1 Fanndís Friðriksdóttir 87. – Margrét María Hólmarsdóttir 70. Staðan: Valur 3 3 0 0 11:1 9 Breiðablik 3 2 1 0 11:2 7 Þór/KA 3 2 1 0 9:3 7 Stjarnan 3 2 0 1 6:2 6 Selfoss 3 2 0 1 5:5 6 ÍBV 3 1 1 1 4:4 4 Fylkir 3 1 0 2 3:7 3 KR 3 0 1 2 1:7 1 Þróttur 3 0 0 3 0:9 0 Afturelding 3 0 0 3 3:13 0 Markahæstar: Elín Metta Jensen, Val ................................5 Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni............ 4 Fanndís Friðriksdóttir, Breiðabliki .......... 4 Vesna Elísa Smiljkovic, Val.........................4 1. deild karla Haukar – Fram ........................................ 2:1 Björgvin Stefánsson 81., sjálfsmark 90. – Ernir Bjarnason 40. Staðan: Þróttur R. 3 3 0 0 12:1 9 KA 3 2 1 0 7:4 7 Víkingur Ó. 3 2 1 0 2:0 7 Fjarðabyggð 3 2 0 1 4:2 6 Þór 3 2 0 1 8:8 6 HK 3 2 0 1 3:3 6 Haukar 4 2 0 2 4:5 6 Selfoss 3 1 0 2 2:2 3 Grindavík 3 1 0 2 3:4 3 Fram 4 0 1 3 7:10 1 Grótta 3 0 1 2 0:4 1 BÍ/Bolungarvík 3 0 0 3 1:10 0 4. deild karla A Stokkseyri – Árborg ................................ 1:8 Léttir – Hamar ......................................... 2:1 Staðan: Árborg 6, Léttir 3, ÍH 3, Hamar 3, Máni 0, Stokkseyri 0, Kóngarnir 0. 4. deild karla B Vatnaliljur – Afríka .................................. 4:0 Staðan: KH 6, Skallagrímur 3, Mídas 3, Vatnaliljur 3, Snæfell 0, Augnablik 0, Afríka 0. 4. deild karla C Stál-úlfur – Þróttur V. ............................. 0:3 Staðan: Þróttur V 6, KFG 3, Stál-úlfur 3, Hörður Í 9, Skínandi 0, Ísbjörninn 0, Örninn 0. Þýskaland Umspil um sæti í A-deild, fyrri leikur: Hamburger SV – Karlsruhe.................... 1:1 KNATTSPYRNA Danmörk Fyrri úrslitaleikur. Skjern – KIF Kolding ......................... 24:30  Aron Kristjánsson þjálfar KIF Kolding. Fyrri leikur um bronsverðlaun: Bjerringbro/Silkeb. – Aalborg.......... 24:18  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði ekki fyrir Bjerringbro-Silkeborg.  Ólafur Gústafsson skoraði ekki fyrir Aal- borg. Frakkland París SG – Saint Raphael ................... 27:22  Róbert Gunnarsson skoraði 5 mörk fyrir PSG.  Arnór Atlason skoraði 2 mörk fyrir St. Raphael.  Staðan fyrir lokaumferðina: París SG 43, Montpellier 42, Saint Raphael 32, Dunker- que 32, Chambéry 31, Nantes 29, Nimes 23, Cesson-Rennes 22, Toulouse 20, Tremblay 20, Aix 19, Créteil 19, Sélestat 10, Istres 8. HANDBOLTI Spánn 8-liða úrslit, fyrsti leikur: Unicaja Málaga – Laboral Kutxa ....... 69:55  Jón Arnór Stefánsson lék ekki með Uni- caja vegna meiðsla. Úrslitakeppni NBA Vesturdeild, úrslit, fimmti leikur: Golden State – Houston..................... 104:90  Golden State sigraði 4:1 og mætir Cleve- land í úrslitum um NBA-titilinn. KÖRFUBOLTI Annan leikinn í röð var það sjálfs- mark sem felldi Framara en Fram tapaði fyrir Haukum, 2:1, þegar liðin áttust við í 1. deild karla í knatt- spyrnu á gervigrasvellinum að Ás- völlum í gærkvöld. Það leit lengi vel út fyrir að læri- sveinar Péturs Péturssonar í Fram væru að tryggja sér fyrsta sigurinn í deildinni í ár en allt fram á 80. mínútu höfðu Framarar forystu eftir að Ern- ir Bjarnason hafði komið þeim yfir fimm mínútum fyrir leikslok. Á 81. mínútu jafnaði Björgvin Stef- ánsson metin fyrir Hauka með sínu þriða marki í deildinni og þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma urðu Framarar fyrir því óláni að skora sjálfsmark. „Þetta var baráttuleikur eins og all- ir þessir leikir sem við höfum spilað,“ sagði Þórhallur Dan Jóhannsson, að- stoðarþjálfari Hauka, við Morg- unblaðið eftir leikinn. „Fyrri hálfleik- urinn var ekki nógu góður af okkar hálfu en þetta skánaði mikið í seinni hálfleik. Við héldum þá boltanum bet- ur og Framararnir lögðust aftar á völlinn. Þegar við náðum að jafna fannst mér við alltaf líklegir til að bæta öðru við og það kom sem betur fer. Þetta unga Haukalið sýndi ótrú- legan karakter með því að hengja ekki haus,“ sagði Þórhallur, en í leik- mannahópi liðsins í gær voru 15 upp- aldir Haukamenn. gummih@mbl.is Aftur felldi sjálfsmark lærisveina Péturs  Annar sigur Hauka en Framarar án sigurs Morgunblaðið/Styrm Barningur Björgvin Stefánsson, markaskorari Hauka, í baráttu við tvo leikmenn ara á Schenkervellinum á Ásvöllum í gær þar sem Haukar höfðu betur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.