Fréttablaðið - 21.05.2015, Page 33
| FÓLK | 5
Þvagfærasýking er algengt vandamál og mun algengari hjá konum en körlum,
og er helsta ástæða þess að
styttri leið er upp í þvagrás
kvenna. Algengt er að sýkingin sé
af völdum E. coli-bakteríunnar.
Ein af hverjum þremur konum
hefur þjáðst af þvagfærasýkingu
fyrir 24 ára aldur og að minnsta
kosti helmingur allra kvenna fær
þvagfærasýkingu einu sinni á æv-
inni. Fjórðungur þeirra fær endur-
teknar sýkingar. Guðlaug Jóna
Matthíasdóttir er ein þeirra. „Ég
hef verið með króníska blöðru-
bólgu í rúmlega tvö ár og hefur
það valdið mér mikilli vanlíðan
og óþægindum. Ég gat til dæmis
aldrei farið í heitan pott eða verið
úti í miklu frosti því
það olli mér strax
mikilli vanlíðan.
Þar sem ég stunda
hestamennsku
og þarf oft að
vera á ferðinni í
vinnu þá var þetta
mjög óþægilegt
og hamlandi fyrir
mig. Læknarnir
vildu setja mig
á sýklalyfjakúr
í tólf mánuði en
ég var ekki alveg
tilbúin til þess.
Því ákvað ég að
prófa Bio-Kult Pro
Cyan þegar ég sá
umfjöllun um það í
blöðunum. Ég fann fljótlega að það
virkaði mjög vel gegn blöðrubólg-
unni. Í fyrstu tók ég bara eitt hylki
á dag, eða þegar ég fann að ég fékk
einkenni, en núna tek ég tvö hylki
um leið og ég finn fyrir óþægindum
og stundum nokkrum sinnum yfir
daginn þegar ég er verst.“
TRYGGIR HEILBRIGÐA ÞVAGRÁS
Orsakir þvagfæra-
sýkingar eru
nokkrar, meðal
annars
utanað-
komandi
áhrif á
þarma-
flóruna, breyttur lífsstíll, aukið
stress, ýmsir sjúkdómar og aukin
lyfjanotkun. Einkenni sýking-
arinnar eru meðal annars tíð
þvaglát, aukin þörf fyrir þvag-
lát án þess að kasta af sér þvagi,
verkir við þvaglát og óeðlileg
lykt og litur af þvaginu. Trönu-
ber hafa löngum verið þekkt fyrir
að virka vel sem fyrirbyggjandi
meðhöndlun gegn þvagfærasýk-
ingum. Trönuber hindra að E.
coli-bakterían nái fótfestu við
slímhúð þvagrásar. Þau drepa
ekki bakteríuna heldur skolast
hún út með þvaginu.
Bio-Kult Pro Cyan er háþróuð
þrívirk formúla sem tryggir heil-
brigða þvagrás. Hylkin innihalda
trönuberja-extrakt, vinveitta
gerla og A-vítamín. Hlutverk A-
vítamíns og vinveittu gerlanna er
að hjálpa líkamanum að viðhalda
eðlilegri bakteríu flóru í þörmum
og einnig að viðhalda eðlilegri
starfsemi í þvagrásarkerfinu.
BETRI AF BLÖÐRUBÓLGUNNI
ICECARE KYNNIR Bio-Kult Pro Cyan er háþróuð þrívirk formúla sem tryggir heilbrigða þvagrás. Guðlaug Jóna Matthíasdóttir
hefur fengið endurteknar þvagfærasýkingar en er nú betri eftir að hún fór að taka Bio-Kult Pro Cyan.
VIRKAR VEL
Guðlaug Jóna tekur Bio-Kult Pro Cyan þegar hún finnur fyrir einkennum þvagfærasýkingar.
MYND/GVA
Sigríður Alma Gunnsteinsdóttir og Ásgeir Haukur Einarsson eiga litla dóttur sem fædd-ist með mjög slæmt bakflæði. „Meltingarveg-
urinn í litlu stelpunni okkar var myndaður strax
þegar hún var eins dags gömul því uppköstin
voru mjög mikil. Við vissum því að það voru engar
þrengingar á meltingarveginum sem orsökuðu
uppköstin heldur var ástæðan sú að magaopið var
slakt og hleypti því fæðunni bæði upp og niður,“
segir Sigríður.
„Það var búið að prófa nokkur lyf á stelpunni en
við sáum aldrei neinn mun á uppköstunum. Okkur
var sagt að bíða róleg því magaopið myndi þrosk-
ast með tímanum. Þegar við prófuðum Bio Kult
Infantis sáum við hins vegar strax mikla breytingu
til batnaðar. Við prófuðum nokkrum sinnum að
sleppa því að gefa henni duftið en þá fóru upp-
köstin alltaf aftur að aukast,“ bætir Ásgeir við.
„Núna er stelpan okkar orðin eins árs og við
gefum henni enn þá Bio-Kult Infantis því það er
auðsjáanlega gott fyrir meltinguna hjá henni. Okk-
ur líður vel með að gefa henni Bio-Kult Infantis því
þetta eru aðeins náttúru-
legir gerlar, ómega-3
og D-vítamín svo það
gerir henni bara gott.
Við hvetjum foreldra
í svipaðri stöðu til
að prófa þessa nátt-
úrulegu gerla því ef
þeir geta hjálpað fleiri
börnum þá er það
þess virði að prófa,
barnanna vegna.“
GOTT FYRIR
MELTINGUNA
Bio-Kult Infantis er vís-
indalega þróuð blanda
af vinveittum gerlum
fyrir ungbörn og börn á öllum aldri. Það inniheld-
ur sjö gerlastrengi af mismunandi mjólkursýru-
gerlum. Reynsla og rannsóknir sýna að gerlarnir
styrkja og bæta bæði meltinguna og heilsuna.
Í Bio-Kult Infantis er hátt hlutfall af ómega-3,
eða eitt milligramm í hverjum skammti. Rannsókn-
ir hafa sýnt fram á að ómega-3 leikur nauðsynlegt
hlutverk í myndun heilafrumna. Einnig hefur verið
staðfest að ómega-3 hefur bólguhamlandi áhrif og
er styrkjandi fyrir ónæmiskerfið.
Bio-Kult Infantis inniheldur fimmtíu prósent af
ráðlögðum dagskammti af D3-vítamíni en flestir
þekkja gagnsemi D-vítamíns. Einnig er í vörunni
blanda efna sem styrkja meltinguna og fyrirbyggja
niðurgang. Enginn viðbættur sykur, litar-, bragð-
eða aukefni eru í vörunni.
BIO-KULT FYRIR BÖRN
Bio-Kult Infantis er vísindalega þróuð blanda af vinveittum gerlum fyrir börn
á öllum aldri. Rannsóknir sýna að gerlarnir styrkja og bæta meltinguna. Í
Bio-Kult Infantis er hátt hlutfall af ómega-3 eða eitt mg í hverjum skammti.
BREYTING TIL BATNAÐAR
Litla dóttir þeirra Sigríðar og Ásgeirs var með mjög slæmt bak-
flæði en Bio-Kult Infantis hefur reynst vel gegn því.
MYND/VALLI
Þórunn G. Þórarinsdóttir heilsuráðgjafi hefur náð betri heilsu með notkun
Bio-Kult Original. „Forsagan
er þannig að ég var mjög veik
í mörg ár. Ég ákvað að taka
málin í mínar hendur og breytti
mataræðinu alveg en náði samt
ekki alveg fullri heilsu. Ég hóf
þá að kynna mér hvað góðir
gerlar geta gert fyrir heilsuna.
Ég fann eftir mikla leit á netinu
og víðar að sennilega vantaði
mig einn ákveðinn geril í melt-
ingarflóruna en það er svokall-
aður jarðargerill (e. Bacillus
subtillis). Ég fór að leita að lif-
andi gerlablöndum hér á landi
sem innihalda þennan geril en
það virtist ekki vera í neinu
nema Bio-Kult Original-vörunni.
Ég ákvað að prófa, og viti menn,
það varð algjör umbylting á
heilsunni hjá mér!“
BIO-KULT FYRIR ALLA
Innihald Bio-Kult
Original er öflug
blanda af vinveitt-
um gerlum sem
styrkja þarmaf-
lóruna. Bio-Kult
Original hentar vel
fyrir alla, einnig
fyrir barnshafandi
konur, mjólkandi
mæður og börn.
Fólk með mjólkur-
og soja óþol má
nota vörurnar. Mælt er með
Bio-Kult í bókinni Meltingar-
vegurinn og geðheilsa eftir Dr.
Natasha Campbell-McBride.
UMBYLTING Á HEILSU
Bio-Kult Original er öflug blanda vinveittra gerla
sem styrkja þarmaflóruna. Þórunn G. Þórarins-
dóttir mælir með Bio-Kult Original enda hefur heilsa
hennar batnað mikið eftir að hún hóf notkun á því.
MIKIL HEILSUBÓT Þórunn G. Þórarins-
dóttir heilsuráðgjafi byggir meðmæli sín
með Bio-Kult Original á eigin reynslu.
MYND/GVA
SÖLUSTAÐIR OG
UPPLÝSINGAR
Vörurnar eru fáanlegar í öllum
apótekum, heilsuverslunum og
heilsuhillum stórmarkaðanna.
Hægt er að nálgast frekari upp-
lýsingar á heimasíðu IceCare,
www.icecare.is.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
0
-D
F
3
C
1
7
6
0
-D
E
0
0
1
7
6
0
-D
C
C
4
1
7
6
0
-D
B
8
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K