Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.07.2015, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 21.07.2015, Qupperneq 40
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177 VÍSIR RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Allt sem þú þarft ... Höfuðborgarsvæðið, meðallestur á tölublað 18–49 ára. Prentmiðlakönnun Gallup, jan.– mar. 2015 YFIRBURÐIR Fréttablaðsins staðfestir 53,7% 19,6% FB L M BL BAKÞANKAR Gyðu Lóu Ólafsdóttur Ég hef allnokkrum sinnum gert heiðarlegar tilraunir til þess að sjóða hrísgrjón sem allar hafa mis- tekist. Ég er samt ekki hræðilegur kokkur, er meira að segja ágæt í ýmsu sem snýr að matseld og ýmsu öðru í lífinu. En að sjóða hrísgrjón virðist reyna á hæfni sem ég bý ekki yfir. Í draumi birtist falleg skál af hinum fullkomnu hrísgrjón- um. Raunveruleikinn er hins vegar hryggðarmynd af einlægum hrís- grjónadraumi konu á þrítugsaldri. UM daginn reyndi ég aftur, fór eftir öllum leiðbeiningum á pakk- anum og horfði á kennslumynd- band á Youtube. Þrátt fyrir við- leitnina skaðbrunnu grjónin í potti sambýliskonu minnar. Potti, sem til þess að kóróna allt saman, er erfðagripur og hefur ómetanlegt tilfinningalegt gildi. Í svitabaði og kvíðakasti leitaði ég á náðir Blands og Marthastewart.com til þess að fá ráðleggingar um hvernig mætti ná ósköpunum úr pottinum. Við tók þriggja daga ferli af tilraunastarf- semi með sítrónusafa, uppþvotta- legi, matarsóda, svamp og hníf að vopni. LEIFARNAR náðust að mestu úr botni pottsins en hann verð- ur aldrei samur og mun að eilífu standa sem vitnisburður um enn eina misheppnaða tilraun. Þau örfáu grjón sem sluppu báru vægt brunabragð en fóru samt klístruð, hálfelduð og illa þefjandi á matar- borðið með dýrindis indversku karríi sem heppnaðist vel, þrátt fyrir að matseldin ætti samkvæmt uppskrift að vera talsvert flóknari en að sjóða bolla af fræjum tveggja tegunda grasplantna í vatni. ÉG bugaðist og ákvað að ég gæti bara alls ekki soðið hrísgrjón, bara aldrei. Ekki nóg með það að hafa klúðrað grjónunum konunglega, þá skildi ég eftir varanleg för á erfðagrip sem tilheyrði ekki einu sinni mér. EN eftir frekari umhugsun og sjálfskoðun komst ég að annarri niðurstöðu. Kannski þyrfti ég bara að æfa mig meira. Ég á til að gleyma því að ég get ekki orðið góð í öllu strax og ef ég sleppi alfarið að æfa mig og gefst upp verð ég væntanlega aldrei góð í því. Hvort sem það er að sjóða bolla af hrís- grjónum eða eitthvað sem hefur þeim mun meiri þýðingu í lífinu. Að sjóða hrísgrjón 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 2 -F 2 5 C 1 7 5 2 -F 1 2 0 1 7 5 2 -E F E 4 1 7 5 2 -E E A 8 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 4 0 s _ 2 0 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.