Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2009, Side 21
miðvikudagur 3. júní 2009 21Fókus
á miðvikudegi
Þjóðvegaljós á sódómu
Hljómsveitin Lights on the Highway heldur tónleika
á Sódómu, ásamt Hauki í Dikta, annað kvöld. Þessa
dagana er sveitin í óða önn að undirbúa útkomu
annarrar breiðskífu sinnar sem hefur fengið nafnið
Amanita Muscaria. Tónleikarnir hefjast klukkan 22
og kostar 500 kall inn.
TrúbaTrixur
Túra
Nýr safndiskur með Trúbatrixunum,
Taka 1, kom út í gær. Safndiskur-
inn inniheldur fimmtán frumsam-
in lög eftir íslenskar tónlistarkon-
ur og er afar fjölbreyttur. Þar eru ný
lög frá þekktum söngkonum eins
og Fabúlu, Elízu Geirsdóttir New-
man og Þórunni Antóníu ásamt
upprennandi stjörnum á borð við
Miss Mount, Elínu Ey og Mysteri-
ous Mörtu. Til þess að fagna útkomu
plötunnar ætla Trúbatrixur að halda
í heljarinnar tónleikaferð um Ís-
land. Þeir fyrstu fóru fram í Reykja-
vík í gær en í kvöld spila þær á Kaffi
59 á Grundarfirði, verða á Græna
hattinum á Akureyri á morgun og
á föstudag og laugardag eru það
Tálknafjörður og Ísafjörður. Nánar á
myspace.com/trubatrix.
jóni spáð norð-
urlandameisT-
araTiTlinum
„Sumarljós, og svo kemur nótt-
in er fullkomlega og algerlega
ómótstæðileg,“ segir gagnrýnandi
danska blaðsins Jyllands Posten
fyrir helgi í dómi sínum um þessa
bók Jóns Kalmans Stefánssonar.
Á heimasíðu Bjarts, útgefanda
Jóns hér á landi, segir að gagn-
rýnandinn hafi ekki getað lagt frá
sér bókina og lýsir hann skrifum
höfundarins sem ótrúlega falleg-
um, skýrum og heimspekilegum
þar sem gamansemin sé þó aldrei
langt undan. Gagnrýnandinn
lýkur greininni á að segja: „Jón
Kalman Stefánsson hefur enn
ekki fengið bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs, en þess getur
ekki verið langt að bíða.“
ópera í Kópavogi
Söngdeild Tónlistarskóla Kópavogs
flytur óperuna Orfeifur og Evríd-
ís eftir Christoph Willibald Gluck
í Salnum í kvöld og á morgun,
fimmtudag, klukkan 20. Flytjendur
eru Elín Arna Aspelund, Ragnheiður
Sara Grímsdóttir og Elva Lind Þor-
steinsdóttir, um leikstjórn sér Anna
Júlíana Sveinsdóttir og píanóleikari
er Krystyna Cortes. Þetta tímamóta-
verk var frumflutt árið 1762 en með
því vildi Gluck endurreisa hið staðn-
aða, ofskreytta og innihaldslausa
óperuform þess tíma. Í uppfærslu
Tónlistarskóla Kópavogs útbjó leik-
stjórinn nýjan búning í aðeins styttra
formi og í stað kóra syngja flytjendur
einsöngskvartetta.
Við, hérna megin í skóginum, elskum
UFC og allt sem kemur nálægt því.
Undirritaður er annálaður MMA-
drullusokkur og hefur meðal annars
lýst íþróttinni á Sýn og því augljóst að
dómur um leikinn mun litast tölu-
vert af því. Það er nefnilega einu sinni
þannig að enginn leikur hefur skap-
að jafn móðursjúka eftirvæntingu
og þessi. Fyrri UFC-leikir voru skít-
lélegir, þeir duguðu ekki einu sinni
fyrir okkur örgustu perrana. Eftir að
hafa fylgst með á netinu í tvö ár, nið-
urhalað demó-inu í einum grænum,
spilað það í döðlur, grátið smá, fékk
ég loks leikinn. Og hann er skugga-
legur, og fyrir okkur örgustu perrana,
sem búum hérna megin í skógin-
um, er hann sudda-rudda-mudda-
tuddalegur. UFC Unleashed 2009 er
besti bardaga-tölvuleikur sem ég hef
nokkurn tímann spilað, á því er ekki
nokkur vafi. Í bardögum getur mynd-
ast ólýsanleg spenna, og að keppa við
vini sína, eða net-óþokka, er óvið-
jafnanlegt. Bardagakerfið er nokkuð
flókið, en maður er fljótur að læra
inn á það. Allir uppáhaldsbardaga-
kappar manns eru á vísum stað, og
að búa sér til eigin bardagamann er
fjári skemmtilegt. Hins vegar mætti
færa rök fyrir því að leikurinn bæti
ekki nógu miklu við demó-ið, að
ákveðinn hraða vanti á stöku stað í
bardögum og að lýsendurnir mættu
sýna manns eigin gæja meiri áhuga.
En allt þetta er eitthvað sem mun lag-
ast í UFC 2010, já hann er staðfestur.
Kaupið þennan, pottþétt.
Dóri DNA
Bardagaleikjabylting
James Brennan (Jesse Eisenberg) á
von á frábæru sumri að lokinni út-
skrift. Hann ætlar í ferðalag með vin-
um sínum til Evrópu og hyggur svo á
frekara nám. En skyndilega er hann
staddur við skítastörf í skemmtigarði
heimabæjar síns og námsdraumar
hans eru í hættu vegna peningaleys-
is. Það sem lýsir upp tilveru hans er
dularfulla samstarfsstúlkan Em sem
er leikinn frábærlega af Kristen Stew-
art. Hittingar þeirra bera ekki tilætl-
aðan ávöxt af ástæðum sem rekja
má til hennar. Hún er að hitta giftan
eldri mann og fjölskyldulíf hennar
er í slæmu ástandi eftir fráfall móð-
ur hennar. Viðbrögð Brennans við
hennar hegðun eru síðan undarleg og
grátbrosleg. Myndin kom ánægjulega
á óvart eftir að hafa séð stikluna/treil-
erinn sem gaf til kynna að hér væri á
ferðinni einhver unglingaklisjudrulla.
En það sama má reyndar segja um
snilldarmyndina Juno sem á einmitt
margt sameiginlegt með Adventure-
land. Myndin er mjög hnitmiðuð og
fer aldrei út af sporinu í frásögn sinni.
Hún er vel skrifuð, eins og unnin upp
úr dagbók, enda skilst mér að sagan
sé byggð á ævi leikstjórans. Mynd-
in gerist 1987 og strax þar sér maður
reynsluna sem byggt er á. Við heyrum
til dæmis öll réttu „eighties“ lögin en
ekki bara Billboard frá þeim tíma og
stíliseringu eftir Duran Duran-mynd-
bandi. Við sjáum æðisleg vandræða-
leg augnablik eins og þegar Brennan
fær standara í sundi með Em og verð-
ur eftir í lauginni til að fela það fyrir
henni. Augnablik með Lou Reed, ljót-
um bíl, jónum og kúbönsku rommi.
Það er næmni þessara alvöru augna-
blika sem er aðall myndarinnar.
Kímnin er ekki sprenghlægileg þótt
maður hlæi upphátt við og við. Kímni
leikstjórans (sem gerði m.a. Super-
bad) er svo sannarlega til staðar, en
hún er lúmsk og afvegaleiðir ekki frá
sögunni. Tívolístjórinn Bobby (Bill
Hader) er sennilega dæmi um hið
gagnstæða en flestir virðast samt hafa
gaman af ýktri frammistöðu hans.
Jesse Eisenberg leikur James Brennan
frábærlega og af óvenjulegri næmni.
Hér er komin ein af fáum banda-
rískum unglingamyndum sem fjalla
ekki um heiladauða ruðningsfyrir-
liða og jafnvel heiladauðari klapp-
stýrur, „góðu stelpuna“ og „nördið
með bólurnar“. Þetta er athyglisverð
og ánægjuleg sumarmynd um „nörd“
sem gera það besta úr lífinu án þess
að ganga í Star Trek-búningi.
Erpur Eyvindarson
romm
og jónur
Adventureland Er óvenjuleg tilbreyting
þar sem hér er á ferðinni amerísk ungl-
ingamynd sem er laus við heiladauða.
AdventurelAnd
Leikstjóri: greg mottola
Aðalhlutverk: jesse Eisenberg, ryan
reynold og kirsten Stewart.
kvikmyndir
uFC 2009
unleAshed
Tegund: Bardagaleikur
Spilast á: PS3/XBOX 360
tölvuleikir
UFC Unleashed
Skuggalega flott grafík og
æsispennandi bardagar.