Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2009, Qupperneq 14
Miðvikudagur 7. október 200914 heilsaslysavegur
breikkaður
Frískandi og góður!
EI
N
N
, T
V
EI
R
O
G
Þ
R
ÍR
2
98
.0
46
Lífrænn
Lífrænar
mjólkurvörur
Chakra
nudd- og heilunarstofa
Dalvegi 2, Sími 564-5803
Komdu heilsunni í lag...
...með ilmkjarnaolíunuddi,
hefðbundnu nuddi, svæðameðferð, höfuðbeina og
spjaldhryggsmeðferð, kínversku maganuddi, heilun
• Ónóg neysla á vatni er lang-
stræsta ástæðan fyrir þreytu yfir
daginn.
• 75% Bandaríkjamanna eru með
krónískan ofþurrk.
(Á sennilega við helminginn af
heiminum, þar með talið Íslend-
inga.)
• Jafnvel vægur ofþurrkur getur
hægt á brennslukerfi líkamans
um 3%.
• Niðurstaða úr einni könnun gef-
ur til kynna að 8–10 glös af vatni
yfir daginn gætu létt á bakverk og
liðverkjum fyrir allt að 80% þol-
enda.
• Ef vatnið í líkamanum minnkar
um aðeins 2% getur það valdið
lélegu skammtímaminni, vand-
ræðum við einfalda stærðfræði
og vanda við einbeitingu við
vinnu og lestur af tölvuskjá eða á
prentuðu máli.
• Að drekka 5 glös af vatni minnkar
hættuna á krabbameini í þörm-
um um 45%, auk þess að minnka
hættu á brjóstakrabba um 79%
og blöðrukrabbameini um 50%.
• Drekkur þú jafnmikið vatn og þú
ættir að gera á hverjum degi?
Of lítið vatn
veldur þreytu
WWW.SVAR.IS
SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000
SKÓLATILBOÐ!
ALLT AÐ 8 KLST
RAFHLÖÐUENDING
FÁST Í ÖLLUM
REGNBOGANS LITUM
Ávextir Og grænmeti
Rífleg neysla grænmetis og ávaxta er
talin minnka líkur á hjarta- og æða-
sjúkdómum auk þess að geta dregið
úr hættu á ýmsum tegundum krabba-
meina, sykursýki og offitu.
ætihvönn
Ætihvönn, eða Angelica, er sögð auka
þrek og kjark, draga úr streitu og vægu
þunglyndi auk þess sem hún styrki
forvarnir gegn kvefi og flensu. Hún er
talin sérstaklega góð fyrir þá sem eru
að ná sér upp úr veikindum.
BlóðBerg
Blóðbergið er mest notað gegn flensu
og kvefi, sérstaklega lungnakvefi og
öðrum lungnasjúkdómum þar sem
þarf að eyða sýklum og losa um slím.
Blóðberg er einnig talið gott við ýms-
um meltingarsjúkdómum eins og
maga- og garnabólgu.
KjúKlingasúpa
Kjúklingasúpa hefur verið kölluð nátt-
úrulegt pensilín og lengi verið sögð
allra meina bót. Heit kjúklingasúpa er
sögð hreinsa stíflaðan öndunarveg og
sökum mikilla næringarefna hleður
hún líkamann af orku.
Kryddaður matur
Kryddaður matur, sérstaklega krydd-
aður með hvítlauk og chilli, losar um
stíflur. Indverskir réttir og mexíkansk-
ir eru oft uppfullir af sterkum krydd-
um sem talin eru góð. Radísur eru
einnig taldar góðar.
gulrætur
Efni í gulrótum er talið minnka hættu
á því að fólk fái krabbamein, sam-
kvæmt breskri rannsókn. Í gulrótum
er mikið af litarefninu karóten en það
ummyndast yfir í A-vítamín í líkam-
anum en A-vítamín er meðal annars
mikilvægt fyrir sjónina og húðina.
hvítlauKur
Hvítlauksneysla er sögð styrkja ónæm-
iskerfið. Margt bendir til að hann hafi
einnig vírusdrepandi áhrif og er því
tilvalinn í baráttunni gegn kvefi og
inflúensu. Hann er mjög virkur gegn
eyrnabólgum. Samhliða neysla stein-
selju dregur úr lyktinni.
glutathiOne
Sumar rannsóknir gefa vísbending-
ar um að þeir sem neyta Glutathi-
ones hafa færri veirur í líkamanum
en aðrir. Þetta er andoxunarefni sem
finna má í öllu kjöti, flestu grænmeti
og ávöxtum.
safar Og heitir dryKKir
Ferskir nýpressaðir ávaxta- og græn-
metissafar eru uppfullir af vítamín-
um og næringarefnum. Mikilvægt er
að drekka mikinn vökva á meðan á
veikindum stendur. Á meðal heitra
drykkja má nefna grænt te, kamillu-,
piparmyntu- og engiferte.
C-vítamín
Stórir skammtar af C-vítamíni eru
taldir geta dregið úr einkennum kvefs
og stytt þann tíma sem fólk er veikt. C-
vítamín fæst meðal annars úr sítrus-
ávöxtum, kartöflum og grænum papr-
ikum og jarðarberjum.
engifer
Engiferte er talið gott gegn hósta og
kvefi á byrjunarstigi. Fersk rótin er
töframeðal gegn hósta og hita sem oft
eru fylgifiskar kvefs og flensu. Bæði
má úr engiferi útbúa drykki, súpur og
jafnvel grænmetisrétti.
sólhattur
Sólhattur er sagður vinna gegn kvefi og
flensu og hefur einnig gefist vel gegn
hálsbólgu og eyrnabólgu hjá börnum.
Hann er sagður styrkja ónæmiskerfið
og vinna á sýklum án þess að skaða
gerlagróður meltingarfæranna.
sinK
Talið er að sink komi í veg fyrir að veir-
ur valdi sýkingum í öndunarfærum og
getur stytt þann tíma sem flensa var-
ir. Sink er helst að finna í lambakjöti,
svínakjöti, hveitikími, ölgeri, eggjum,
ostum, hnetum, fræjum, sjávarfangi,
sojabaunum og grænmeti.
grænt grænmeti
Því grænna sem grænmetið er því
meira inniheldur það af kalki og járni.
Kalk er gott fyrir beinin en járn bindur
súrefni í blóðinu og flytur það til vefja
líkamans. Járn er talið sérlega mikil-
vægt fyrir konur á barneignaraldri.
OlíulaufþyKKni
Olíulaufþykkni hefur fengið viður-
nefnið pensilín nútímans fyrir það
hversu vel það virkar á líkamann.
Það er talið koma í veg fyrir fyrir kvef
og flensur. Það er einnig virkt gegn
streptókokkum og síþreytu og er talið
styrkja ónæmiskerfið.
eplaediK
Hefur lengi verið talið töfralyf við
ýmsum kvillum. Til dæmis gegn bjúg.
Ein matskeið að morgni er að margra
mati ómissandi fyrir líkama og sál.
Eini ókosturinn er að eplaedik er ekki
sérlega ljúffengt á bragðið.
Hér að neðan eru nokkur dæmi um matvæli sem rannsóknir benda til að geti stuðlað að heilbrigði eða unnið
gegn sjúkdómum og kvillum. Fæst hefur þó verið staðfest, með óyggjandi hætti, af vísindamönnum.
húsrÁð
mynd sxc.hu
gegn flensu