Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2009, Síða 23
Hver er maðurinn? „Ármann Harri
Þorvaldsson, fertugur sagnfræðingur
og rekstrarhagfræðingur.“
Hver er fyrsta minning þín úr
æsku? „Það var þegar ég fékk að
sitja á stýrinu á reiðhjólinu hans
pabba og hann hjólaði með mig.“
Hvað drífur þig áfram? „Fjölskyld-
an og persónulegur metnaður.“
Varstu hlynntur eða andvígur
Icesave-frumvarpinu? „Ég tel að
við eigum að semja en hef ýmislegt
út á Icesave-samninginn að setja.“
Hver er eftirminnilegasta bók
sem þú hefur lesið? „Ævintýraeyj-
an að sjálfsögðu.“
Hefur sagnfræðimenntunin
komið að miklu gagni í störfum
þínum í fjármálaheiminum? „Já,
tvímælalaust. Sagnfræðimenntunin
er mjög góður grunnur.“
Hver er aðalástæða þess að
íslenska fjármálakerfið hrundi í
fyrra að þínu mati? „Það er engin
ein ástæða heldur margir samverk-
andi þættir sem orsökuðu hrunið. En
ef maður einfaldar var bankakerfið
á íslandi allt of stórt miðað við burði
ríkisins og Seðlabankans.“
Varðstu var við mikla spillingu
í íslenska fjármálageiranum?
„Nei, ekki spillingu en hins vegar
margvísleg mistök.“
Er Gordon Brown hryðjuverka-
maður í þínum augum? „Nei.“
Hvorir eru betri „live“, Duran
Duran eða Tom Jones? „Tom Jones
er meira fyrir minn smekk.“
Hver er leið Íslands út úr
kreppunni? „Hagstæð lausn
Icesave-deilunnar, farsæl lausn á
skuldastöðu heimila og fyrirtækja og
nýr gjaldmiðill.“
Horfir þú einHvern tíma á evrópska sunnudagsbíóið á rúv?
„Nei.“
RaGnaR Tómasson
70 Ára lögFrÆðINgur
„Já, ég geri það stundum.“
BJöRk ERlInGsDóTTIR
43 Ára Sölumaður
„Nei, aldrei.“
anna GuðJónsDóTTIR
47 Ára SkólalIðI
„Nei.“
GuðRún sIGuRðaRDóTTIR
31 ÁrS HJúkruNarFrÆðINgur
Dómstóll götunnar
ÁRmann ÞoRValDsson er
fyrrverandi forstjóri Singer &
Friedlander í lundúnum sem varð
gjalþrota í hruninu mikla fyrir ári.
Ármann er þekktastur á Íslandi fyrir
að hafa boðið upp á Duran Duran og
Tom Jones í áramótaveislum hjá sér.
Á dögunum kom út bók eftir hann
þar sem hann segir frá sinni upplifun
af góðærinu.
Tom Jones meira
fyrir minn smekk
„aldrei.“
GuðBJöRG ÞóRa DaVÍðsDóTTIR
51 ÁrS lEIkSkólakENNarI
maður Dagsins
Á árunum 1993 til 2007 fimmföld-
uðu 700 til 800 ríkustu fjölskyldur
landsins hlut sinn í ráðstöfunartekj-
um landsmanna allra. Þessar 700
til 800 fjölskyldur fóru úr 4 prósent-
um í 20 prósent heildarráðstöfun-
arteknanna.
Á örlagatímum segist ríkisstjórn-
in óhikað ætla að breyta skattkerf-
inu til þess að auka jöfnuð og rétt-
læti í samfélaginu. „Þar er um mikla
stefnubreytingu að ræða frá stjórn-
artímabili Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks,“ sagði Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra í
stefnuræðu sinni á Alþingi byrjun
vikunnar.
Án þess að nokkur tæki eftir því
sérstaklega var víglínan dregin í ís-
lenskum stjórnmálum á Alþingi
síðastliðið mánudagskvöld. Þetta
kvöld kaus Ögmundur Jónasson að
sitja heima og hæla andspyrnu Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar
gegn ofangreindum áformum ríkis-
stjórnarinnar.
Ekki að Framsóknarflokkurinn
skipti öllu máli, því víglínan var
dregin milli Sjálfstæðisflokksins og
stjórnarflokkanna, meira að segja
óháð leit Ögmundar að grundvall-
arlögmáli þingræðisins.
leitað að matarholum
Línan var dregin þegar þingmenn
Sjálfstæðisflokksins mótmæltu
hvers kyns skattahækkunum en
buðu þess í stað skattlagningu ið-
gjalda í lífeyrissjóði landsmanna.
Ekki máttu þeir heyra það nefnt að
nauðsynlegt væri að hækka skatta
til að rétta við ríkissjóð sem riðið var
á slig með bankahruninu fyrir ári.
Mest af öllu óttast þeir áform um
aukinn jöfnuð og réttlæti með til-
styrk skattkerfisins.
Sannleikurinn er sá að hugmynd-
ir um að afla 40 milljarða króna á ári
í ríkissjóð með því að skattleggja ið-
gjöld um leið og þau berast lífeyris-
sjóðum er eins og inngangskaflinn
í kokkabók hægrisinnaðra banda-
rískra repúblíkana sem ævinlega
hafa velt byrðum samfélagsins yfir
á herðar launamanna og fátæklinga
þegar þeir hafa fengið aðstöðu til.
Þarna gengur aftur hugmyndin
um að aldrei nokkru sinni
megi skattleggja ríka eða
fyrirtæki því þannig taki
fyrir vilja kaupsýslu-
manna til fjárfestinga og
þannig sogi ríkið til sín
fé sem annars færi til að
skapa atvinnu og auk-
in umsvif á markaði. Í
grein í Morgunblað-
inu 30. september er
þessi skattlagning
lífeyris kölluð ein-
föld og sársauka-
laus leið.
Með þessar hug-
myndir fer Bjarni Bene-
diktsson, formaður flokksins,
fram í þinginu. Kutarnir eru brýnd-
ir. Það má aldrei verða að skattar
hækki á fyrirtæki og efnafólk. Sum-
ir skattar eru betri, svo sem eins og
að skattleggja lífeyri launafólks til
að bjarga ríkissjóði og velferðarkerf-
inu. Þetta er ein útgáfan af hamfara-
kapítalisma frjálshyggjudrengjanna
frá Chicago sem Bjarna er svo töm
í munni.
launamenn borga
alltaf brúsann
En gleymir ekki Bjarni formaður,
frændur hans og flokkssystkin, að
40 milljarðar
króna, sem
af lífeyris-
sjóðunum
yrðu tekn-
ir í ríkissjóð, er ekki samtímis hægt
að verja í fjárfestingar og ávöxtun í
atvinnulífinu?
Er ekki jafnframt dagljóst að
hættan eykst á skerðingu lífeyris því
meir sem ríkið tekur af honum fyrir-
fram í formi skatta?
Ástæðulaust er að láta blekkjast
af þessum fagurgala á hægrivæng
íhaldsaflanna. Þótt sú stefna hafi
náð sínum hæstu hæðum í hamfar-
akapítalisma Bush-stjórnarinnar að
láta almenning og fátæklinga ævin-
lega borga brúsann er hugmyndin
miklu eldri og þarf ekkert að koma
á óvart.
Árið 1936 skrifaði Halldór Lax-
ness eftirfarandi í Dagleið á fjöll-
um:
„Í leitinni að einhverjum sam-
komulagsgrundvelli hefur verið
gripið til þess örþrifaráðs, að kuðla
saman hinum tveim prinsípum al-
menningsrekstursins og einkarekst-
ursins. Árangurinn er eins og við
var að búast. Það hefur verið fram-
kvæmd kerfisbundin þjóðnýtíng - á
skuldum einstaklíngsframtaksins.
Almenníngsfé er látið standa undir
tapi séreignarfyrirtækja, bæði stórra
og smárra, þúsundum saman, til
sjós og lands.“
Kannast einhver við aðferðirnar
úr bankahruninu 2008?
Spurningin nú er aðeins þessi:
Heldur Ögmundur Jónasson og
fylgismenn hans í VG svo fast
við þá grundvallarreglu að verða
ekki viðskila við samvisku sína,
að þeir kasti á glæ tækifærinu til
þess að auka jöfnuð og réttlæti í
þjóðfélaginu í samvinnu við Stein-
grím J. Sigfússon og Jóhönnu Sig-
urðardóttur?
Víglína stjórnmálanna hefur verið dregin
kjallari
mynDin
1 Glaumgosi ákærður fyrir
handrukkun
glaumgosinn Birgir Fannar Pétursson
hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og
frelsissviptingu.
2 Ásdís Rán fær jeppa frítt
Ofurmódelið Ásdís rán gunnarsdóttir
þurfti að skila bílnum sínum um síðustu
helgi. Hún fékk afnot af jeppa í mánuð.
3 „Þetta er bara þjófnaður“
Bergur karlsson borgaði árum saman
iðgjöld til Tryggingamiðstöðvarinnar í
samræmi við brunabótamat á húseign
sinni í Bolungarvík. Eftir að húsið brann
neitaði tryggingafélagið að greiða
honum bætur í samræmi við samning
þeirra.
4 „Gengisfella trúverðugleika
blaðsins“
Birgir guðmundsson undrast mjög
vinnubrögð óskars magnússonar,
útgefanda morgunblaðsins, sem lét
yfirfara tölvupósta starfsmanna.
5 með brunasár eftir breska
snyrtivöru – myndir
Dancing with the Stars-stjarnan kelly
Osbourne, 24 ára, þjáist nú af
brunasárum í handakrika og á maganum.
6 Þór saari valtar yfir
Ríkisendurskoðun
Þór Saari, Hreyfingunni, segir að
ríkisendurskoðun vinni ekki vinnuna sína.
7 stjórnarkreppa í kreppunni
aðeins kraftaverk getur úr þessu bjargað
ríkisstjórninni frá falli.
mest lesið á DV.is
JóHann
Hauksson
útvarpsmaður skrifar
„Almenningsfé er látið
standa undir tapi séreign
arfyrirtækja, bæði stórra
og smárra, þúsundum
saman, til sjós og lands.“
umræða 7. október 2009 miðvikudagur 23
Er ekki hægt að lyfta þessari umræðu á hærra plan? Stemningin á þingpöllum var á köflum frekar dauf á meðan umræður
um stefnuræðu forsætisráðherra fóru fram og ekki annað að sjá en sumum áheyrendum leiddist beinlínis.