Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2009, Qupperneq 29
Húsnæði
GistinG
Gista.is
Bjóðum upp á gistingu á besta stað
í bænum og 2 og 3 herbergja íbúðir,
fullbúnar húsgögnum og uppbúnum
rúmum. Internet-tenging er til staðar.
S. 694 4314. www.gista.is.
»
Smáauglýsingar
Smáauglýsingasíminn er
515 5550
smaar@dv.is
þjónustuauglýsingar
á m i ðv i k u d e g i
Hvað Heitir lagið?
„Hér er klappstýra sem vill
hjálpa mér með ritgerðina, ég
læt hana um alla vinnuna og
nauðga henni kannski á eftir.“
snaran
endurútgefin
Skáldagan Snaran eftir Jakobínu
Sigurðardóttur hefur verið ófáanleg
um árabil en kemur nú út í Klass-
íska kiljuklúbbi Forlagsins. Sagan
vakti mikla athygli þegar hún kom út
árið 1968 en í henni erum við stödd
í óljósri framtíð. Stóriðja er helsti
atvinnuvegurinn og erlent fjármagn
og vinnuafl hefur flætt inn í landið.
Nöpur ádeila sögunnar kemur ekki
síst fram í mannlýsingu sögumanns-
ins, sópara í verksmiðju, orðum
hans, skoðunum og viðbrögðum.
Jakobína var lengst af ævinnar hús-
móðir í Garði í
Mývatnssveit.
Þrjár skáld-
sagna henn-
ar, Dægurvísa,
Snaran og Lif-
andi vatnið,
voru valdar
sem fram-
lag Íslands til
Bókmennta-
verðlauna
Norðurlanda-
ráðs.
eitt magnað-
asta skáld-
verk 20. aldar
Skáldsagan Meistarinn og
Margaríta er af mörgum talin eitt
magnaðasta skáldverk 20. aldar.
Bókin er nú komin út í Klass-
íska kiljuklúbbi Forlagsins. Sat-
an sjálfur er kominn til Moskvu
í líki galdramannsins Wolands
ásamt afar skrautlegu fylgdarliði
sínu. Jafnframt er í bókinni sögð
ástar- og harmsaga Meistarans,
rithöfundar sem lokaður er inni
á geðveikrahæli, og ástkonu hans
Margarítu. Mikahíl Búlgakov hóf
að skrifa Meistarann og Marga-
rítu árið 1928 og hélt því áfram
til dauðadags árið 1940. Sagan
kom ekki út
fyrr en rúm-
um aldar-
fjórðungi síð-
ar og tryggði
höfundi
sínum þá
þegar sess
sem ein-
um helsta
meistara
rússneskra
bók-
mennta.
Heimildamynd Felix spannar tímabil-
ið frá hruni íslenska fjármálakerfisins
og þar til þáverandi ríkisstjórn spring-
ur undan þrýstingi almennings. Þetta
voru rosalegir tímar, eitthvað sem ís-
lenska lýðveldið hefur tæplega séð
fyrr. Fylgst er með venjulegum Íslend-
ingum bogna undan skuldunum og
grípa til örþrifaráða. Útrásarvíking-
arnir eru teknir tali sem og þáverandi
forsætisráðherra Geir H. Haarde. Það
vinnur klárlega með myndinni að
Felix sé búsettur í Svíþjóð og verði fyr-
ir takmörkuðum áhrifum lítils sam-
félags þar sem allir þekkjast og eru
skyldir. Einnig er myndin mikið til
unnin fyrir erlent fjármagn sem gerir
hann óháðari en ella.
Mikið hefur verið gert úr því
hvernig Felix notaði leynilega upp-
tekið efni í viðtölum við hina föllnu
kónga. Menn ættu aldrei að rugla því
saman þegar átt er við venjulegt fólk
annars vegar og þá sem valdið hafa
hruni samfélags hins vegar. Slíkt tíðk-
ast mikið við heimildamyndagerð
og er oft eina leiðin að valdamönn-
um dagsins í dag. Þessir viðmælend-
ur birtast hver á fætur öðrum eins
og vondu kallarnir í Batman. Fyrst
Geir H. Haarde með gervilega „Joker“
brosið sem hann setti upp í þjóðará-
varpinu víðfræga. Björgólfur, ásamt
lúpulegum aðstoðarmanni, labbar
inn í fráhnepptri skyrtu eins og maf-
íósi frá Vladivostok. Hann hefur fas
„Riddlersins“ þegar hann útskýrir
muninn á sinni hagfræði og marxískri
og gerir auk þess lítið úr vægi Icesave-
klúðursins. Bjarni Ármanns reynir að
virka alþýðlegur þar sem hann sinn-
ir tilgerðarlega landbúnaðarstörfum.
Firring hans er alger þar sem hann
ræðir hvernig hann hafi unnið með
það háar fjárhæðir að hann skynji
ekki verðmæti peninganna og sjái
tölur sem „táknmyndir“. Mikil er firr-
ingin og óborganleg. Maður spyr sig:
Hverjum datt í hug að gefa þessum
mönnum lyklavöldin?
Engin eru svörin úr þeirri átt enda
þorði Davíð Oddsson ekki í skilyrðis-
laust viðtal frekar en fyrri daginn. En
í lok dags vildi maður fá miklu stærri
hluti út úr þessum viðtölum. Það vant-
ar harðari spurningar. Felix er með þá
í snörunni en spyr spurninga of al-
menns eðlis. Mjög vont þar sem út-
rásargosarnir passa sig klárlega næst
og það flækir málið talsvert fyrir þá
sem reyna opinberlega að fá nokkuð
upp úr þeim aftur. Það sem myndin
gerir hins vegar frábærlega er að sýna
áhrif hrunsins á venjulegt fólk. Þjark-
urinn Sturla Jónsson vörubílstjóri er
nauðsynlegur sem hinn dæmigerði
íslenski borgari sem byggði myndar-
legt bú með lánum sem allir sögðu að
væru í lagi. Hinn viðkunnanlegi son-
ur Geirs Jóns, sem er líka lögregla og
hvítasunnumaður, er líka meiriháttar
innlegg.
Hæstu hæðir myndarinnar eru
Kryddsíldarviðtalið, dramatískt og
frábærlega samsett. Einn talsmanna
mótmælenda, Eva „norn“ Hauksdótt-
ir, er frábærlega skýr og setur hlut-
ina í stærra samhengi. Svipmyndir
úr mótmælum eru síðan í næmum
fókus. Til dæmis þar sem einmana-
leg hvítliðasveit konjaksfulls seðla-
bankahagfræðings stuggar við ungri
stelpu meðan bústinn bróðir hans
kallar ókvæðisorð úr Gúttóslagnum.
Einn viðmælandi gerir við net og tal-
ar um að það vanti fleiri löggur eins
og Sæma rokk sem gat talað fólk til.
Geir Jón sést hér komast ansi nálægt
því. Hálfkláraðar byggingar yfir þjóð-
legri, dramatískri og kraftmikilli tón-
list Hilmars Arnar Hilmarssonar veita
manni gæsahúð. Myndin grípur líðan
fólks sem í fyrsta skipti á ævinni fer
út og mótmælir ríkisstjórn sem neit-
aði að horfast í augu við eigin gjörðir.
Hér er á ferðinni ómetanlegt mynd-
efni í tímamótamynd sem klárar samt
ekki dæmið. Eins og einn sýningar-
gesta hafði á orði: „Þetta er frábær
forréttur.“ Íslendingar eiga von á fleiri
þungavigtarmyndum um hrunið svo
það er óhætt að segja: „You ain‘t seen
nothing yet.“
Erpur Eyvindarson
fókus 7. október 2009 miðvikudagur 29
svar: Bobby Brown Goes Down með Frank Zappa
Smáauglýsingasíminn er
smaar@dv.is
515
55
50
Guð blessi
Ísland
Leikstjóri: Helgi Felixson
Heimildarmynd
kvikmyndir
frábær forréttur
Eins og skúrkar í Batman-
mynd „Hann hefur fas
„Riddlersins“ þegar hann
útskýrir muninn á sinni
hagfræði og marxískri og
gerir auk þess lítið úr vægi
Icesave-klúðursins.“