Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR 8. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is
Vaknaðu við sólarupprás og fuglasöng í skammdeginu.
Vekjaraklukkan sem gerir þér auðveldara að vakna.
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
Verð 14.750 kr.
Sound
Spa
Sunrise
Lúxussnekkja í eigu fjárfestingafé-
lagsins Nordic Partners er við höfn
í Marmaris. DV bárust á dögunum
myndir af skútunni þar sem hún var
í viðgerð í höfninni. Samkvæmt heim-
ildum DV hefur Jón Þór Hjaltason
notað snekkjuna á árinu. Honum var
stefnt í vikunni vegna fimmtíu millj-
óna króna skuldar.
Snekkjan sem um ræðir er stór-
glæsileg og ein sú glæsilegasta í höfn-
inni í Marmaris. Snekkjan var vígð
2008 en hún er skráð í Panama. Hún
ber sama nafn og sögufrægt hót-
el í Kaupmannahöfn sem Nordic
Partners keypti á árunum fyrir hrun,
D‘Angleterre.
Ein með öllu
Snekkjan er búin alls konar lúxus en
í henni eru alls sex klefar, einn aðal-
klefi, einn VIP-klefi, tveir klefar með
hjónarúmum og tveir til viðbótar með
tveimur einstaklingsrúmum. Auk
þess er bar, borðstofa, stofa, auk sjón-
varpsrýmis. Einnig er gervihnatta-
sjónvarp og nettenging á öllum helstu
svæðum í skútunni, ísvél, vínkælir og
símar í öllum káetum. Nuddpottur er
á palli snekkjunnar auk búnaðar til
köfunar og veiða.
Hægt er að skoða umfjöllun um
snekkjuna á mörgum vefsíðum sem
fjalla eingöngu um lúxussnekkjur.
Myndir af snekkjunni að innan sem
utan eru á þessum síðum auk upp-
lýsinga um hvaða staðalbúnaði hún
er búin.
Fimmtíu milljóna skuld
Jóni Þór var í byrjun desember stefnt
vegna fimmtíu milljóna króna skuld-
ar félagsins Arctic Capital. Félag-
ið stofnaði Gísli Þór Reynisson, sem
var viðskiptafélagi Jóns og stofnandi
Nordic Partners. Skuldin er tilkomin
vegna yfirtöku Arctic Capital á láni
sem Landsbankinn veitti Þokka ehf.
árið 2006.
Lánið hljóðaði alls upp á 45 millj-
ónir króna, og átti að greiðast til baka
á tuttugu árum með jöfnum afborg-
unum. Lánið stendur í dag í rúmlega
52,5 milljónum króna en Lands-
bankinn krefst þess einnig að drátt-
arvextir verði greiddir af upphæð-
inni.
Snekkjupartí
Elsti ógreiddi gjalddagi lánsins er 15.
mars árið 2009. Samkvæmt heimild-
um DV hefur Jón ásamt konu sinni
notið þess að kíkja á snekkjuna í
Marmaris, núna síðast í sumar, eða
eftir að hætt var að greiða af láninu.
Jón Þór er ekki lengur stjórnar-
maður í Arctic Captial en hann vék
úr eins manns stjórn félagsins 30.
mars. Í stað hans var lögmaður feng-
inn inn í félagið sem stjórnarfor-
maður þess. Skráður eigandi Arctic
Capital er nýsjálenska félagið My-
ero Invest Ltd. Félagið er skráð fyrir
hundrað prósenta eignarhlut.
Nuddpottur er á palli snekkjunn-
ar auk búnaðar til
köfunar og veiða.
50 MILLJÓNA SKULD
STÖÐVAR EKKI PARTÍIÐ
Landsbankinn hefur stefnt Arctic Capital og Jóni Þór Hjaltasyni vegna tugmilljóna króna
skuldar. Hætt var að greiða af láninu í mars árið 2009 en síðan þá hefur Jón Þór skemmt sér
á lúxussnekkju Nordic Partners, þar sem hann hefur verið í stjórn, við strendur Tyrklands.
AÐALSTEINN KJARTANSSON
blaðamaður skrifar: adalsteinn@dv.is
Snekkjan Lúxussnekkja
Nordic Partners er búinn
öllum helstu þægindum.
Ljúfa lífið Heimildarmaður DV hefur séð til Jóns og eiginkonu hans að skemmta sér
á snekkjunni.
„Við erum ekki Wikileaks en við erum
hýsingaraðili sem þjónar þrjú þúsund
fyrirtækjum, þar á meðal Wikileaks,“
segir Ólafur V. Sigurvinsson, stofn-
andi og stjórnarmaður hýsingarfyrir-
tækisins Datacell. Datacell er eina fyr-
irtækið sem gerir fólki kleift að styrkja
uppljóstrunarvefinn Wikileaks.
Svissneskur banki hefur lokað
reikningi sem skráður var á Julian
Assange, stofnanda Wikileaks, og hef-
ur fyrirtækið PayPal gert það sama. Í
frétt sem birtist á vef CNET í gær kom
fram að eigendur Mastercard-korta
geti ekki lengur notað þau í viðskipt-
um við vefinn eða til að styrkja hann.
Eina leiðin til að styrkja vefinn með
góðu móti sé með Visa-kortum í
gegnum fyrirtækið Datacell sem hýsir
umrædda styrktarsíðu fyrir Wiki leaks.
Datacell er skráð á Íslandi en er einn-
ig með starfsemi í Sviss þar sem um-
rædd styrktarsíða er hýst.
„Þetta er bara okkar gátt og kemur
því ekkert við hvað þeir í Wikileaks
eru að hamast. Ég get ekki séð að það
sé verið að gera neitt rangt í sjálfu
sér,“ segir Ólafur í samtali við DV.
Aðspurður hvort til greina komi að
loka fyrir þjónustuna þvertekur Ólaf-
ur fyrir það og bætir við að korthafar
Mastercard geti enn styrkt Wikileaks,
þvert á það sem haldið er fram á vef
CNET.
„Mastercard virkar á síðunni okkar.
Mastercard eru komnir helvíti langt ef
þeir reyna eitthvað svoleiðis, þá fá þeir
bara lögfræðinga á sig. Við erum með
kúnna sem nota Master card og þurfa
að borga okkur,“ segir Ólafur.
Wikileaks-vefurinn hefur orðið fyr-
ir ítrekuðum árásum að undanförnu
sem gerðu það meðal annars að verk-
um að vefurinn fékk nýtt lén. Ólafur
segir að Datacell hafi verið beitt þrýst-
ingi um að loka fyrir þjónustuna en
ekki verði orðið við slíkum beiðnum.
„Við fáum mikið af pósti og svo er
mikið um árásir á það sem við erum
að gera fyrir þá. Það er greinilega með
ráðum gert að reyna að skemma fyrir
þeim. Ef á að stoppa svona þarf að
loka öllum fréttastofum í heiminum,“
segir Ólafur og bætir við að stærstur
hluti fólks lesi um uppljóstranirnar í
fjölmiðlum, en ekki á sjálfum Wiki-
leaks-vefnum.
„Wikileaks er ekki að gera neitt
annað en miðla upplýsingum sem
þeir fá. Ef þeir fengju þær ekki myndi
einhver annar fá þær. Þessi gögn fara
út sama hvort Wikileaks er á lífi eða
ekki. valgeir@dv.is
ÍSLENSKA FÉLAGIÐ DATACELL:
Hlífir
Wikileaks
Julian Assange MYND REUTERS
Helga Sigríður hefur legið alvarlega veik á sjúkrahúsi í Gautaborg:
Á leið heim til Íslands
„Við erum á leiðinni á Landspítal-
ann á fimmtudaginn. Við verðum
sótt hingað af læknum þaðan og þar
leggst hún inn til að ná meiri bata,“
segir María Egilsdóttir, móðir Helgu
Sigríðar Sigurðardóttur.
Helga Sigríður er 12 ára stúlka
frá Akureyri sem hefur legið á
Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í Gauta-
borg undanfarna daga. Hún hneig
niður í sundtíma miðvikudaginn 24.
nóvember og var haldið sofandi í
öndunarvél þar til í gærkvöldi.
María segist ekki vita hvort Helga
Sigríður verði komin heim af Land-
spítalanum fyrir jól. „Enda skipt-
ir það svo sem engu, jólin koma og
fara,“ segir María sem er fyrst og
fremst einstaklega þakklát fyrir þann
bata sem dóttir hennar hefur náð.
Helga Sigríður er aðeins farin að
tjá sig eftir að hafa verið vakin í gær-
kvöldi. „Hún er vöknuð en hún er
ekki komin til sjálfrar sín enn. Hún
þekkir okkur alveg. Okkur er sagt að
það sé algjörlega eðlilegt ástand að
vera ekki alveg með allt á hreinu,“
segir María.
„Hún er alveg einstök og ótrú-
lega seig þannig að maður getur að-
eins farið að gleðjast núna. Alla vega
þora því.“ María segist ekki vita hvort
Helga Sigríður muni koma til með
að ná sér að fullu, en það sé eitthvað
sem tíminn verði að leiða í ljós. Hún
segir hana alla tíð hafa verið mjög
hrausta stúlku svo hún búi að því í
bataferlinu. „Hún á líka inni, hún er
svo ljúf og góð,“ segir María um dótt-
ur sína.
solrun@dv.is
Mæðgur Helga Sigríður með
Maríu móður sinni.