Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Page 7
Fantagóð saga úr íslensku sjávarplássi þar sem
lífið virðist við fyrstu sýn ganga sinn vanagang.
En undir yfirborðinu ólgar allt af ástríðum og
átökum um eignir, völd og hjörtu mannanna.
Heillandi bók eftir Ólaf Hauk Símonarson.
SKRUDDA.IS
Stíll Ólafs er léttleikandi, flæðið gott og hann
skiptir á milli kersknislegra athugasemda og
alvarlegri undirtóns með hægð.
– Arnar Eggert Thoroddsen, Mbl.
Ómældur fróðleikur um nærri 400 skála á Íslandi.
Frábær leiðarvísir um landið og nauðsynleg öllum
sem vilja þekkja Ísland.
Greinargóðar leiðarlýsingar eru að skálunum og víða
er sagt frá náttúruperlum í nágrenni þeirra.
Sérlega gagnleg handbók fyrir alla þá sem ferðast
um fjöll og firnindi, göngugarpa, hestamenn og
ökuþóra.
... framtak Jóns G. er frábært og ljóst að ekki er kastað
til höndum við verkið. ... óneitanlega mikill fengur fyrir
ferðalanga þegar óbyggðirnar kalla.
– Kristján Hrafn Guðmundsson, DV